Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 35
DESEMBER Kórónu-
veiran fer ekki í mann-
greinarálit og bankaði
hressilega upp á á alþingi
í desember. Fjölmargir
þingmenn, ráðherrar og
starfsmenn þings greind-
ust með kórónuveiruna
og þurftu að sæta ein-
angrun yfir jól. Þeirra á
meðal voru Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir,
Bjarni Benediktsson, Birg-
ir Ármannsson, Sigmar
Guðmundsson, Þorbjörg
Sigríður Gunnlaugsdóttir,
Oddný Harðardóttir og
fleiri. Kalla þurfti inn vara-
þingmenn til að hægt yrði
að klára ýmis mál fyrir
áramót.Morgunblaðið/Eggert
Veiran á
þingi
DESEMBER Ekkert lát er á útbreiðslu kórónuveirunnar og sífellt bætist í hóp þeirra sem
þurfa á skimun að halda. Miklar raðir mynduðust í desember þegar fólk flykktist í hraðpróf
svo hægt yrði að fara á tónleika og aðra viðburði á aðventunni. Eftir því sem smitum fjölgaði
gífurlega í desemberlok, mynduðust langar raðir í PCR-próf. Mörg hundruð manns greindust
með veiruna á dag þessa síðustu daga ársins.
Morgunblaðið/Eggert
Raðir í kórónuveiru-
próf lengjast sífellt
DESEMBER Kvennalandslið Íslands í hópfimleikum varð Evrópumeistari eftir hnífjafna bar-
áttu við landslið Svíþjóðar í úrslitunum á Evrópumeistaramótinu í Guimaraes í Portúgal þann
4. desember. Ísland fékk 57.250 stig í heildareinkunn, nákvæmlega jafnmörg stig og Svíþjóð,
en íslenska liðið stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa unnið fleiri greinar. Ísland vann tvær
af þremur greinum, gólfæfingar og trampólín, en Svíþjóð vann á dýnu.
Seinna sama dag endaði íslenska karlalandsliðið í hópfimleikum í öðru sæti á EM í Portú-
gal og tók þar með silfrið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gull og silfur fimleikafólks
NÓVEMBER Ný ríkisstjórn tók við hinn 28. nóvember en kosið var 25. september. Katrín Jak-
obsdóttir er áfram forsætisráðherra og segist treysta öllum ráðherrum í sinni ríkisstjórn þótt
hún neiti því ekki að margir innan flokkanna hefðu viljað færri breytingar.
Talsverð uppstokkun varð á ráðuneytum í ríkisstjórninni en Katrín segist hafa verið helsti tals-
maður þess að þeim yrði breytt fyrir komandi kjörtímabil. Svandís Svavarsdóttir fór úr ráðuneyti
heilbrigðismála og í ráðuneyti matvæla, sjávarútvegs og landbúnaðar á meðan Guðmundur
Ingi Guðbrandsson fór úr umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og í ráðuneyti félags- og vinnu-
mála. Guðlaugur Þór Þórðarson verður ráðherra umhverfis-, loftslags- og orkumála.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ný ríkisstjórn
tekur við