Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 31.12.2021, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 JÚNÍ Serbneski tennisleikarinn Novak Djoko- vic vann sigur á franska opna meistaramótinu í tennis 13. júní þegar hann bar sigurorð af Stefanosi Tsitsipas frá Grikklandi. Djokovic lenti tveimur settum undir, en tókst að snúa taflinu sér í hag og sigra í fimm settum. Djoko- vic er nú eini tennisleikarinn á seinni tímum sem unnið hefur hvert hinna stóru tennismóta tvisvar. Markmið hans er að ljúka ferli sínum með fleiri titla en nokkur annar. „Allt er mögu- legt,“ sagði Djokovic eftir sigurinn. Alslemma er það kallað að sigra í opna ástralska meistaramótinu, opna franska meistara- mótinu, Wimbledon og opna bandaríska meistaramótinu á sama keppnistímabili. Það er nokkuð sem engum karli hefur tekist í rúma hálfa öld, en var innan seilingar hjá Djokovic. Hann beið hins vegar ósigur í úrslitum opna bandaríska meistaramótsins í september. Pete Kiehart/The New York Times Djokovic sigrar í Frakklandi JÚLÍ Mikil flóð skildu eftir sig slóð eyðileggingar í nokkrum Evrópulöndum, þar á meðal Þýskalandi og Belgíu, og létust að minnsta kosti 220 manns. Eignatjónið var metið á allt frá 10 milljörðum evra (1,5 billjónum króna) til 19,5 milljarða evra (2,9 billjóna króna) eftir flóð- bylgjur og að ár flæddu yfir bakka þar sem þær streyma gegnum borgir og bæi. Brak og eðja rifu með sér brýr, bílar breyttust í málmhrúgöld og fólk flúði upp á þak undan hækkandi vatnsborði til að komast undan. Loftslagsvísindamenn sögðu að loftslagsbreytingar hefðu sennilega gert illt verra og héldu því fram að hnattræn hlýnun gerði að verkum að öfgakennt úrhelli væri að minnsta kosti 20% líklegra á flóðasvæðunum en áður. Gordon Welters/The New York Times Mannskæð flóð í Evrópu Corinna Kern/The New York Times Vopnahlé milli Ísraels og Hamas MAÍ Eftir 11 daga átök milli Ísraels og Hamas var lýst yfir brothættu vopnahléi að morgni 21. maí. Spenna hefur lengi ríkt í samskiptum Ísraels og Hamas. Eftir að Ísraelar hurfu einhliða á braut frá Gasa-svæðinu 2005 tók Hamas þar völdin 2007. Hamas viðurkennir ekki Ísrael, og Ísrael, ásamt Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og Bretlandi, flokkar Hamas sem hryðju- verkasamtök. Eftir að spenna hafði farið vaxandi milli Ísraels og Palestínumanna skutu Ham- as eldflaugum á Ísrael, flestum á suður- og miðhluta landsins og beindust nokkrar að Jerú- salem. Ísraelar svöruðu fyrir sig með loftárásum á valin skotmörk. Meðan á átökunum stóð skutu Hamas-liðar yfir 4.000 flaugum á Ísrael. Ísraelar grönduðu flestum þeirra með loftvörn- um sínum, sem kallast járnhvelfingin. Flugher Ísraels réðist á rúmlega þúsund skotmörk á Gaza-svæðinu. FRÉTTAMYNDIR AF ERLENDUM VETTVANGI JÚLÍ Jovenel Moïse, forseti Haítí, var ráðinn af dögum í árás á heimili hans fyrir utan Port-au- Prince. Kona hans særðist í árásinni. Í árásarliðinu voru 26 Kólumbíumenn og tveir Banda- ríkjamenn af haítískum uppruna, að sögn lögreglu. Morðið ýtti undir ringulreiðina í landi, sem þegar átti undir högg að sækja vegna pólitísks óstöðugleika, stjórnarskrárkreppu, valdaránstilraunar og glæpa. Mánuði síðar skullu á náttúruhamfarir, fyrst jarðskjálfti og síðan hitabeltisstormurinn Grace. Í október rændi eitt af glæpagengjunum, sem talið er að hafi hálft landið á sínu valdi, 17 bandarískum og kanadískum trúboðum. Þá er staða forseta landsins í uppnámi og hefur kosningum í landinu verið frestað um óákveðinn tíma. Federico Rios/The New York Times Jovenel Moïse ráðinn af dögum Agence France-Presse Getty Images Hvít-Rússar neyða far- þegavél til lendingar MAÍ Farþegavél frá Ryanair með flugnúmerið 4978 var á leið frá Aþenu í Grikklandi til Vilnius í Litháen með um 170 farþega um borð, þar á meðal hvítrússneska blaðamanninn og stjórnarandstæðinginn Róman Prótasevitsj, 23. maí. Vélin var á leið í gegnum hvítrússneska lofthelgi þegar viðvörun barst frá flugstjórn um að hætta gæti verið um borð. Hvítrússnesk orrustuþota fylgdi vélinni til Minsk. Við leit eftir að vélin var lent fannst engin sprengja. Hins vegar handtók lögregla Protasevitsj og setti í fangelsi og á hann nú yfir höfði sér að dúsa í rúman áratug bak við lás og slá. Aleksandr G. Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, fyrirskip- aði að vélin skyldi þvinguð til að lenda. Lúkasjenkó er harðstjóri og aðferðir hans til að þagga niður í andófsmönnum sæta vaxandi gagnrýni. Evrópskir embættismenn fordæmdu atvikið og líktu því við flugrán. JÚNÍ Joe Biden Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti funduðu í Genf 16. júní. Þetta var fyrsti leiðtogafundur Bidens og Pútíns og hittust þeir eftir viku ferðalag þess fyrr- nefnda um Evrópu. Ræddu þeir allt frá netárásum til mannréttinda. Spenna hefur ríkt milli ríkjanna vegna netvopna og er það nýbreytni frá hinni hefðbundnu ógn kjarnavopna. Pútín vísaði á bug ásökunum um að Rússar væru viðriðnir netárásir á gasleiðslur og sjúkrahús, svo eitthvað sé nefnt, í Bandaríkjunum. Biden hamraði á þörfinni á reglum um netöryggi og að þjóðirnar tvær kæmu sér saman um hvaða innviðir ættu að vera friðhelgir fyrir netárásum. Doug Mills/The New York Times Leiðtogafundur í Genf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.