Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 32
MARS Eldgos hófst í Geldingadölum 19. mars þegar jörð opnaðist eftir mikla jarðskjálftahrinu.
Eldgosið stækkaði óðum og ný op mynduðust á fyrstu vikunum. Eldgosið dró að sér mörg
hundruð þúsund manns, en gosið er það langlífasta á 21. öldinni og stóð yfir í sex mánuði.
Engin virkni hefur verið í gosinu síðan 18. september en goslokum var formlega lýst í byrj-
un desember.
„Þetta er eitt fallegasta eldgos sem ég hef séð og sérstaklega vegna þess að það var svo
rólegt á tímabilum og því svo auðvelt að komast að því,“ segir Ármann Höskuldsson eld-
fjallafræðingur. „Það sem truflar okkur er það að þetta er eldgos sem við höfum aldrei séð
áður, sem sagt dyngjugos. Við vitum í sjálfu sér ekki hvernig þau ganga fyrir sig,“ segir hann
við mbl.is í byrjun desember.
Þá nefnir Ármann að síðast hafi verið dyngjugos fyrir 2.500 árum og að eldgos í dyngjum
sem hafa verið skoðaðar hafi staðið yfir í 50 til 150 ár. Ármann hafði varla sleppt orðinu þegar
jarðskjálftar hófust á nýju á Reykjanesi og óróapúls mældist. Nýtt eldgos, eða framhald af
því gamla, gæti því verið í uppsiglingu.
Morgunblaðið/Eggert
Eldgosið í Geldingadölum ef til vill ekki dautt úr öllum æðum
32 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021
JANÚAR-DESEMBER Bólusetningar hófust í raun rétt fyrir áramótin síð-
ustu þegar heilbrigðisstarfsfólk og eldra fólk á hjúkrunarheimilum fékk sinn
fyrsta skammt. Þjóðin var svo smátt og smátt bólusett fram eftir ári. Í fyrstu
var boðið upp á tvo skammta en þegar hausta tók var boðið upp á örvunar-
skammt, enda ljóst að mögulega væru fyrstu tveir skammtarnir ekki nægir
til að koma í veg fyrir veikindi af völdum nýrra afbrigða. Kári Stefánsson er
ötull stuðningsmaður bólusetninga og lét ekki sitt eftir liggja í baráttunni við
Covid á árinu. Hann gleymdi þó að mæta í stuttermabol og þurfti því að
toga skyrtuna vel niður á bringu svo hjúkrunarfræðingurinn gæti stungið
hann í handlegginn.
Morgunblaðið/Eggert
Kári bólusettur eins og aðrir
FRÉTTIR AF INNLENDUM VETTVANGI
Morgunblaðið/Eggert
Snjóflóð á skíðasvæði Siglufjarðar
JANÚAR Snjóflóð féll á skíða-
svæðinu á Siglufirði hinn tutt-
ugusta janúar og olli miklum
skemmdum. Flóðið féll á
skíðaskála, áhaldageymslu og
snjótroðara.
„Eftir því sem ég best veit
slokknaði á eftirlitsmyndavél
um hálfníu í morgun, þannig að
þetta hefur gerst í morgun. Við
vitum svo sem ekki um tjón en
við vitum að skíðaskálinn er far-
inn og þetta er eitthvert töluvert
tjón,“ sagði Elías Pétursson,
bæjarstjóri Fjallabyggðar, í við-
tali við mbl.is sama dag og flóð-
ið féll.
Níu hús voru rýmd síðdegis
þennan dag og þurftu rúmlega
tuttugu íbúar að leita annað.
Íbúar Fjallabyggðar, í Siglu-
firði og Ólafsfirði, voru innilok-
aðir nánast alla vikuna á eftir
vegna vegalokana og snjó-
flóðahættu.
Óvissustigi var lýst yfir víða
á Norðurlandi vegna snjó-
flóðahættu en stór snjóflóð
féllu á Tröllaskaga, meðal ann-
ars við Smiðsgerði í austan-
verðum Skagafirði, á Öxna-
dalsheiði og á Ólafsfjarðar-
veg.