Morgunblaðið - 31.12.2021, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 73
lagt til að hann verði ákærður fyrir glæpi gegn
mannkyni vegna meintrar vanrækslu hans í
aðgerðum gegn kórónuveirufaraldrinum.
Bolsonaro er gefið að sök að hafa ýtt undir út-
breiðslu veirunnar til þess að ná hjarðónæmi
og það hafi kostað nokkur hundruð þúsund
Brasilíumenn lífið.
Nóvember
Katar, 21. nóvember til 18. desember:
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu verður
haldið í Katar, litlu furstadæmi við Persaflóa.
Styr hefur staðið um landið öll þau tíu ár, sem
undirbúningur mótsins hefur staðið. Komið
hafa upp ásakanir um spillingu og mútur þeg-
ar Katar nældi sér í réttinn til að halda HM.
Landið hefur einnig verið sakað um að hugsa
ekki nægilega um velferð tveggja milljóna
verkamanna í landinu. Talið er að þúsundir
farandverkamanna, sem unnu við að reisa sjö
leikvanga, nýtt neðajarðarlestarkerfi, flugvöll,
leggja vegi og byggja nýja borg, Lusail, til að
halda úrslitaleikinn, hafi látið lífið.
Abu Dabí: Stærsta sólorkuver heims á einum
stað verður sett í gang í Al Dhafra. Þar á að
framleiða rafmagn fyrir um 160 þúsund heim-
ili. Talið er að sólorkuverið muni draga úr út-
blæstri koltvísýrings sem nemur 1,6 milljónum
tonna á ári, sem er sambærilegt við að leggja
470 þúsund bílum.
Desember
Atlantshaf: Vantar tilbreytingu í líkamsrækt-
ina fyrir jólin? Prófaðu að róa yfir Atlants-
hafið. Talisker Whiskey Atlantic Challenge
nefnist uppákoma viskíframleiðandans. Hefst
róðurinn á Kanaríeyjum og verður róið sem
leið liggur til Antigva. Dagskráin er einföld,
tveggja tíma róður og tveggja tíma hvíld til
skiptis allan sólarhringinn. Að lokum verða
tæpir 5.000 kílómetrar að baki og afrek, sem
færri hafa unnið en klifið hafa Everest.
Bandaríkin, 21. desember: Nintendo og kvik-
myndaverið Illumination ollu uppnámi á fé-
lagsmiðlum með því að fela bandaríska leik-
aranum David Pratt að raddsetja hinn ástsæla
ítalska pípulagningamann Mario í nýrri teikni-
mynd, sem byggð er á leiknum „Super Mario
Bros“. Myndina á að frumsýna í desember
2022. Í fyrri útgáfum hefur Charles Martinet,
sem er bandarískur, leikið hann auk þess að
hafa ljáð Mario rödd sína í tölvuleikjum frá
árinu 1995. Þá lék Bob Hoskins Mario í kvik-
mynd, sem gerð var árið 1993. Einvalalið leik-
ara verður við hlið Pratts. Charlie Day leikur
Luigi, Anya Taylor-Joy Peach prinsessu, Jack
Black Bowser, Seth Rogen Donkey Kong,
Keegan-Michael Key leikur Toad og Fred
Armisen Cranky Kong.
Einhvern tímann á árinu 2022
Síle, snemma árs: Hver er staða okkar í heim-
inum? Í stjörnuskoðunarstöðinni Vera C. Rub-
in er að finna stærstu stafrænu myndavél
heims. Fyrirhuguð er einstök stafræn kort-
lagning geimsins með 3.200 megapixela
myndavél, sem sett verður á Simoniy-kíkinn til
að búa til mynd með meiri dýpt og breidd af
heiminum en áður hefur verið gert.
Frakkland: Á hafsbotni er víða að finna sjávar-
gróður, sem á latínu nefnist Posidonia oceanica
og á ensku kallast neptúnusargras. Það dregur
í sig koltvísýring og gefur frá sér súrefni, kem-
ur í veg fyrir eyðingu strandlengjunnar og veit-
ir fiskum athvarf. Svo fellur akkeri risasnekkju
til botns og dregst eftir honum og veldur var-
anlegum skemmdum á sjávargróðrinum. Svona
hefur þetta verið öldum saman, en árið 2022 á
að binda enda á þetta við hina yndislegu
Pampelonne-strönd skammt frá St. Tropez með
því að búa til vistvæn bátalægi. Fljótandi kistur
verða festar við steypt botnfarg. Verður hægt
að binda allt að 60 metra löng fley þar við festar
án þess að nota þurfi akkeri.
Kína: Kínverjar munu fullgera geimstöð sína,
Tiangong, árið 2022. Árið 2024 verður Tian-
gong síðan eina varanlega geimstöðin á braut
um jörðu. Þá verður Alþjóðlega geimstöðin,
sem Kínverjum var vikið úr árið 2011, tekin úr
umferð.
Sýndarheimurinn (eða -heimarnir): Hver
ætlar ekki að hleypa sýndarheimi af stokkun-
um á næsta ári? Meta Platforms Inc. (áður
Facebook) ætlaði að fjárfesta um 10 milljörð-
um dollara (1,3 billjónum króna) í Reality Labs
á þessu ári, en svo nefnist hin nýja deild fyrir-
tækisins um að þróa verkefni, sem snúast um
aukinn veruleika og sýndarveruleika. Verk-
efnið er að þróa sýndarheim eða metaverse
eins og það kallast á ensku. Í honum á að verða
hægt að gera hversdagslega hluti á borð við að
heimsækja foreldra sína til óvenjulegra hluta á
borð við að skylmast við skylmingameistara
sem keppir á Ólympíuleikunum. Þá ætlar
Microsoft að búa til fyrirbæri, sem nefnist
Mesh for Teams. Þar verður hægt að senda
manngerving af sér á vinnufundi á netinu og
fara inn í stafræna eftirmynd af skrifstofunni
sinni. Í Seoul á að búa til 3,3 milljóna dollara
(430 milljóna króna) sýndarborg, sem gefið
hefur verið nafnið „Metaverse Seoul“ til
bráðabirgða. Þar verður hægt að fara og skoða
sýndarútgáfu af markverðum stöðum og tala
við manngervða embættismenn. Og hafir þú
gefist upp á að leita ástarinnar í raunheimum
hefur Match Group, sem á Tinder, Match.com
og OkCupid, greint frá áætlunum um sýndar-
heimastefnumót þar sem einhleypir mann-
gervingar geta blandað geði á ýmsum sýndar-
stöðum í sýndarheimum.
©2021 The New York Times Company ogMasha
Goncharova.
Íbúi í Kína fylgist með fréttaútsendingu þar sem geimfarar í Shenzhou-12 geimferðinni eru að
störfum fyrir utan Tianhe, sem myndar kjarnann í kínversku geimstöðinni Tiangong.
Tingshu Wang/Reuters
Chris Pratt talsetur ítalska tölvuleikjapíparann
Mario í nýrri mynd og eru ekki allir sáttir.
Edmund D. Fountain/The New York Times
Nota á Vera Rubin-stjörnukíkinn í Cerro Pachón í Síle til að taka nákvæmustu mynd, sem hingað til hefur verið tekin af alheiminum.
LSST Project/NSF/AURA
Fólk nýtur lífsins á Pampelonne-ströndinni í Frakklandi. Þar á að setja upp vistvæn lægi til að
bátar þurfi ekki að kasta akkeri með tilheyrandi skemmdum á lífríkinu á botni Miðjarðarhafsins.
Clement Mahoudeau/AFP
Adrian Dennis/Agence France-Presse
Leiðbeinendur frá konunglega breska hern-
um búa sig undir róðrakeppni yfir Atlantshaf.