Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Side 11
Á sambandsþingi skulu m. a. afgreidd
þessi mál:
1. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
sambandsins.
2. Samþykkt fjárhagsáætlun fyrir næsta
reikningsár.
3. Skýrsla sambandsstjórnar um störf
sambandsins milli þinga.
4. Kosin sambandsstjórn.
5. Kosnir tveir endurskoðendur og tveir
til vara.
6. Ákvörðun um hvar næsta þing skuli
háð.
Sambandsstjórn sé þannig kosin: Forseti,
ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega
og mynda þeir framkvæmdanefnd sam-
bandsins. Æskilegt er, að meðlimir fram-
kvæmdanefndar séu búsettir í Reykjavík.
Þá skal kjósa varaforseta, skal hann einnig
kosinn sérstaklega, og 5 meðstjórnendur.
Atkvæðisrétt hafa aðeins kjörnir fulltrúar.
Allar kosningar á sambandsþingi skulu
bundnar við uppástungur og vera skriflegar.
Sambandsstjórn skal halda fundi eigi
sjaldnar en 4 sinnum á ári. Gerðabók skal
halda yfir fundi sambandsstjórnar, og skrifa
allir fundarmenn undir fundargerðirnar.
12. gr.
Álit og ályktanir í stórmálum, er sam-
bandsstjórn ætlar að leggja fyrir sambands-
þing, skal hún senda sambandsfélögunum
eigi síðar en mánuði fyrir sambandsþing.
Mál þau og tillögur, er félög óska að tek-
in verði fyrir á þinginu, skal senda sam-
bandsstjórn skriflega eigi síðar en mánuði
fyrir sambandsþing. Skal sambandsstjórn
leggja þau fyrir sambandsþing ásamt um-
sögn sinni.
13. gr.
I öllum málum á þinginu ræður ein-
faldur meiri hluti atkvæða úrslitum, ef ekki
er öðru vísi ákveðið í lögum þessum.
Atkvæðagreiðslur skulu vera skriflegar,
ef sambandsstjórn, eða minnst 6 fulltrúar,
krefjast þess.
14. gr.
Sambandsþingið hefur æðsta vald í öllum
málum sambandsins. Þingið er lögmætt, ef
það er löglega boðað. Þingfundur er lög-
mætur, þegar fullur helmingur þingfulltrúa
er á þingi.
V. kafli: Um sambandsstjórn.
15. gr.
Sambandsstjórn hefur, milli þinga, æðsta
vald í öllum málefnum sambandsins og ber
hverju félagi í sambandinu og hverjum
þeim er trúnaðarstarfi gegnir fyrir sam-
bandið, að hlýða fyrirmælum hennar og úr-
skurðum, en rétt hefur hvert félag og ein-
staklingar til þess að skjóta ágreiningsmál-
um sínum við sambandsstjórn, til sambands-
þings, sem þá fellir fullnaðarúrskurð í mál-
inu.
Ef ekki er hægt að ná sambandsstjórn
saman til fundar til þess að afgreiða að-
kallandi mál, hefur framkvæmdanefnd rétt
hönd milli funda sambandsstjórnar.
VI. kafli: Um lagabreytingar.
16. gr.
Lögum sambandsins má aðeins breyta á
reglulegu sambandsþingi. Skulu lagabreyt-
ingar aðeins ræddar á 2 þingfundum og
telst breyting ekki samþykkt nema 2/3 at-
kvæða á þingfundi samþykki hana.
Tillögur til breytinga á lögum, sem aðrir
en sambandsstjórn bera fram, skal senda
henni eki síðar en mánuði fyrir sambands-
þing og fer með þær eftir því er segir í 12. gr.
17. gr.
Lög þessi öðlast gildi er þau hafa verið
■samþykkt á stofnþingi Sjálfsbjrgar — sam-
bands fatlaðra, sem haldið er í Reykjavík
4.-6. júní 1959.
sjálfsbjörg 9