Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 33
SIÍYRSLA SJALFSBJARGAR, AKUREYRI
Sjálfsbjörg á Akureyri var stofnuð jrann
8. október 1958 og heitir Sjálfsbjörg — félag
fatlaðra á Akureyri og nágrenni.
Stofnendur voru 50—60, en allir sem
gengu í félagið fyrir áramót eru taldir
stofnendur, og voru mn áiramótin um það
bil 100 manns.
Nú er þetta er skrifað eru félagar orðnir
um 140— f50 að tölu.
Fyrstu stjórn skipuðu: Formaður, Emil
Andersen; gjaldkeri, Adolf Ingimarsson;
ritari, Heiðrún Steingrímsdóttir. Með-
stjórnendur þau Kristín Konráðsdóttir og
Sveinn Þorsteinsson. Varaformaður Þór Sig-
þórsson.
Hagnaður af merkjasölu félagsins þann
26. okt. var um kr. 10 þús. og fór helming-
ur af því í húsbyggingarsjóð samtakanna í
Keykjavík.
Félagið hafði og aðrar fjáröflunarleiðir í
sambandi við merkjasöludaginn, svo sem
kaffisölu og kvikmyndasýningar og dans-
leik. Hagnaður af þessu öllu varð það
miikill að það fleytti félaginu yfir fyrstu og
verstu byrjunarörðugleikana. Félagið hafði
föndur og vinnukvöld einu sinni í viku í
allan vetur, þar sem unnir voru munir úr
ýmsu efni, svo setn basti, tágum, vír, kross-
viði, bandi og garni o. 11.
Þessi starfsemi gaf svo góða raun að félag-
ið er ákveðið í að ltafa þetta í enn stærri
stíl, enda verður nú öll aðstaða mun betri
en var á síðasta vetri. Haldinn var basar í
lok maímánaðar og þar seldir þeir munir,
sem unnir voru á vegum félagsins og enn
fremur þeir munir, sem félagar unnu
heima, en það var mjög mikið, sem þannig
var unnið.
Frá stofnfuncli Sjálfsbjargar á Akureyri.
SJÁLFSBJÖRG 31