Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 41

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Page 41
Andersen að nafni, en liann hafði, sem einn af félögum Sjálfsbjargar á Siglufirði, boði/t til að greiða götu okkar er að fossinum kænri, það gerði liann og þau hjón bæði, á myndarlegan hátt, fyrir það viljum við færa þeinr hjónum okkar beztu þakkir. Jón hafði fundið fyrir okkur góðan tjald- stað, en jrað var í fögrum hvammi fyrir aust- an aflstöðina, þar var svo slegið upp tjald- borg einni mikilli. Þegar allir höfðu tjald- að í hvamminum hinum fagra (nema tvenn hjón og einn lausamaður, er gerðu ráð fyrir þvi að ekki mundi svefnsamt í tjaldborg- inni, drógu sig út úr hópnurn og tjölduðu niður við á, sennilega til þess að hafa þar frið með sínar næturhugleiðingar, en það ku vera háttur djúpt hugsandi manna að einangra sig svo) fóru þær af stúlkum okkar er duglegastar voru, að liita kaffi og finna einhverja lífsnæringu handa fólkinu, en það var ekki vanþörf á því eftir hina löngu ferð. Þetta gekk allt mjög vel, allir voru ánægðir og allir hjálpuðust að. Þegar ferða- iangarnir höfðu hresst sig á kaffi og öðru góðgæti var farið í gönguferðir (þeir sem það gátu), og ýmsa leiki. Sumir fóru upp á topp sem kallað er, en það er að fara upp að vatninu, sem stíflað var efst í hólunum fyrir ofan aflstöðina. Þegar þessi stífla var gerð, fóru margar jarðir fyrir framan stífluhóla undir vatn, og lögðust sumar alveg í eyði, en aðrar misstu meira en helming af túnum sínum, þannig verður eitt að víkja fyrir öðru. Þegar líða tók á laugardagskvöldið, fóru menn að búa sig undir nóttina, skríða í tjöldin og taka fram svefnpoka sína. Þá er allir voru komnir í tjöldin, og ætl- nðu að fara að sofa, þá fóru að heyrast tíst og önnur ankanarleg hljóð úr tjaldi og tjaldi. Við vorum sex, sem gistum í tjaldi sem notað var fyrir eldhús, og er við hugð- umst sofna svefni hinna réttlátu, fóru að heyrast svefnlæti all ferleg úr næsta tjaldi við okkur. Öldungarnir rceðast við, urn landsins gagn og nauðsynjar. Þegar tjaldstaður var yfirgefinn, tók gjaldkeri Sjálfsbjargar, Ak. að sér að brenna öllu rusli og ganga vel frá. SJÁLFSBJÖRG 39 Félagar úr Sjálfsbjörg, Akureyri, rœða við félaga frá Siglufirði, sem mœttu okkur við Skeiðfoss.

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.