Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Síða 42

Sjálfsbjörg - 15.09.1959, Síða 42
Grafarkirkja á Höfðaströnd i Skagafirði. Skoðuð var kirkjan og minningarturn Jóns Arasonar að Hólum i Hjaltadal. 40 SJÁLFSBJÖRG í því tjaldi ku hafa verið tvenn hjón, og er annar bóndinn hætti að skera hrúta og fremja önnur strákapör í svefninum, og við héldum að nú væri kominn á friður og ró, þá tók hinn bóndinn við og hraut nú öllu hærra og með annars konar hljómfalli og framkallaði þau feikna hljóð, að annað eins hefur ekki heyrzt í Fljótum um alda- raðir, eftir því sem elztu menn mæla, og er þó Fljótafólk vant ýmsu, hvað næturhljóm- leika snertir. Á þessu gekk svo fram eftir nóttu, og við tveir karlmenn, sem í eldhúsi gistum, gátum ekki sofnað fyrir hlátri, og enduðu þessi ósköp með því að annar eða báðir, voru búnir að fá hláturkrampa, en loks hættu nú þessir næturhljómleikar, og friður og ró komst á, og allir sofnuðu og sváfu til morguns, án frekari truflana. Á sunnudagsmorgun var svo byrjað á því að hita kaffi og sjóða eitthvað til lífsnær- ingar, og svo varð að hafa til heitt kaffi þegar félagar úr Sjálfsbjörg á Siglufirði kæmu, en þeir komu um kl. 10 f. h., og var sem áður er sagt fagnað með heitu kaffi, síðan var spjallað og farið í leiki og ýmis- legt gert til gamans, fram að hádegi, en þá var ákveðið að halda af stað heim á leið. Við fórum svo frá Skeiðfossi kl. um eitt á sunnudag og héldum að Gröf á Höfða- strönd. Þar var skoðuð hin ævagamla kirkja eða kapella, og þótti mörgum gaman og fróðlegt að koma þar. Frá Gröf var svo haldið heim að Hólum í Hjaltadal. Þar var skoðuð hin forna dóm- kirkja og minningartum Jóns Arasonar. Á staðnum var drukkið kaffi og skoðaður staðurinn, gamli bærinn og sitt hvað fleira er þar er. Er við vorum í kirkjunni, var sent eftir organleikara staðarins, hann beð- inn að leika fyrir okkur á hið veglega pípu- orgel, sem er fyrir stuttu komið að Hólum, brást organleikari vel við og spilaði fyrir okkur nokkra sálma og við tókum undir, sú stund er við dvöldum í dómkirkjunni á Hólum var mjög hátíðleg, og maður komst í alveg sérstakt andlegt ástand, og væri von-

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.