Sjálfsbjörg - 01.07.1960, Blaðsíða 18

Sjálfsbjörg - 01.07.1960, Blaðsíða 18
Gervilima- og umbúðaverkstæði Arnórs Halldórssonar Árið 1921 stofnaði Halldór Arnórsson verkstæði, sem smíðaði gerfilimi og aðrar umbúðir handa fötluðu fólki. Áður var ekk- ert slíkt verkstæði starfandi hér á landi, og urðu þeir, sem fengu gerfilimi að fara utan, ef einhver von átti að vera um hjálp við fötlunum. Eins og gefur að skilja höfðu ekki nærri allir fjárhagslegt holmagn til svo kostnaðarsamra ferða, auk kaupa á dýrum stykkjum, og var þá stundum gripið til þess örþrifaráðs að panta þessa hluti eftir máli, en eins og gefur að skilja gafst það misjafn- Arnór me$ gerfifót, sem hann hefur smíSaS. lega. Það var mikið fyrir tilhlutan og hvatn- ingu læknafélags Reykjavikm: að Halldór fór utan til þess að læra þessa iðngrein og setja síðan á stofn áðumefnt verkstæði, en Hall- dór var fyrsti fslendingurinn, er lærði gerfi- limasmíði. Þegar Halldór hóf starfsemi sína að Aðal- stræti 9, en þar var verkstæðið fyrst til húsa, urðu ýmsir erfiðleikar í vegi. Hinir fötluðu urðu þó undantekningarlaust að greiða gerfilimina og aðrar umbúðir sjálfir, og var það þeim oft um megn, því að smíði og efni á þessum hlutum er kostnaðarsöm. Einnig reyndist erfitt að fá skó, sem hægt væri að nota og hóf Halldór því nokkru síð- ar sjálfur smíði á skóm. Þegar ríkið fór að taka þátt í kostnaði við kaup á gerfilimum árið 1936, batnaði að- staða hinna fötluðu til mikilla muna. Árið 1955 lézt Halldór, og tók þá Amór sonur hans við rekstri verkstæðisins. Arnór byrj- aði að lesa læknisfræði, en varð vegna heilsubrests að leggja þau áhugamál sín á hilluna. —■ Hann hóf þá haustið 1838 að læra gerfilimasmíði hjá föður sín- um og vann með honum þar til hann tók sjálfur við rekstri verkstæðisins. Einnig vann hann um tíma hjá hliðstæðum fyrirtækjum í Danmörku til að kynna sér nýjungar á sviði gerfilima og umbúðasmíða. 1 dag er verkstæðið til húsa að Grettis- götu 2 og starfa þar 8 manns sem stendur. Margvísleg verkefni eru leyst af hendi. Til glöggvunar þeim, sem ef til vill gera sér ekki grein f}rrir því, hvað hægt er að fá við líkamlegri fötlun, skal hér greint frá því helzta, sem framleitt er á verkstæðinu. Gerfifætur: Þegar limurinn er tekinn fyrir ofan hné, um hné eða fyrir neðan hné. Gerfihandleggi: Þegar handleggir eru teknir fyrir ofan eða neðan olnboga, ásamt föstum eða hreyfan- legum krókum og tækjum fyrir þá. Umbúðir (spelkur): Fyrir lamanir í öllum fæti, einnig þegar 18 SJÁLFSBJÖRG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.