Sjálfsbjörg - 01.07.1960, Blaðsíða 22
ENDURÞJÁLFUNAR
STÖÐIN
/
I
BERGEN
Enn sem komið er höfum við íslendingar
lítil kynni haft af einni tegund heilbrigði-
stofnana, sem flestar grannþjóðir okkar hafa
þó fyrir nokkru komið á fót, hinum svo-
nefndu endurþjálfunarstofnunum, en þær
rækja það hlutverk að aðstoða öryrkja við
að komast út í atvinnulífið. f stuttu máli
vil ég lýsa einni slíkri, og vel þá „Statens
Attföringsinstitutt“ í Bergen. Við gætum
kallað það endurþjálfunarstofnun ríkisins, en
hana skoðaði ég s. 1. sumar, er ég dvaldi
í Bergen nokkra daga.
f Noregi eru þrjár stofnanir af þessu tagi.
Ein er í Oslo, er hún þeirra stærst og elzt
frá 1945. önnur er í Bergen, hóf hún starf-
semi sína fyrir 5 árum. Loks er hin þriðja
að taka til starfa í Þrándheimi. Ég tel ótví-
rætt þörf á starfsemi af svipuðu tagi hér á
landi, og held, að stofnanir Norðmanna geti
að mörgu leyti verið okkur til fyrirmyndar,
vil ég því skýra frá starfi og tilhögun einnar
þeirrar.
Endurþjálfunarstofnunin i Bergen tekur
til athugunar og þjálfunar öryrkja frá suð-
vesturhéruðum Noregs. Á því svæði búa um
600 þúsund manns eða rúmlega þrisvar sinn-
um fleiri en á íslandi. Stofnunin er sýnilega
of litil, því að helmingi fleiri sækja um rúm
þar en hægt er að taka á móti.
Endurþjálfunarstofnunin í Bergen.
Verkefni stofnunarinnar er að rannsaka
öryrkja með tilliti til starfsvals, gera áætlun
um nám þeirra eða starf í framtíðinni í sam-
ráði við þá sjálfa og láta þeim í té fyrstu
þjálfun til undirbúnings því að ganga út í
atvinnulífið. Aðaldeildir stofnunarinnar eru
tvær, rannsóknardeild og þjálfunardeild. —
Auk þess er lítil heimavist, þar sem menn
geta búið um tíma að lokinni athugun og
þjálfun, ef erfitt er að útvega húsnæði eða
þeir þarfnast æfingarmeðferðar vegna löm-
unar, en þar er einnig sérstök œfingastöS
fyrir lamaða og fatlaða.
Á rannsóknardeild dvelja öryrkjamir oft-
ast um það bil tvær vikur. Það er rúm fyrir
12 manns, og koma því 6 nýir öryrkjar þang-
að vikulega. Er því hægt að rannsaka þar
og leiðbeina 250—300 manns árlega. Athug-
anir eru gerðar af læknum og nákvæmum
upplýsingum safnað um heilsufar öryrkjans
til að komast að raun um, hvort bæta megi
heilbrigði hans eða auka verkhæfni með
aðgerðum, þjálfun eða annarri meðferð. —
Einnig miða athuganir lækna að því að finna
út, hvað maðurinn geti unnið og hvað hann
þurfi að forðast.
Sálfræðingur stofnunarinnar athugar hæfi-
leika og áhugamál, kannar hvort nám komi
til greina, hversu vandasöm störf mætti ætla
22 SJÁLFSBJÖRG