Bjarmi - 01.12.2016, Síða 2
Friðni* frelsarans á jólum
Síðasta tölublað hvers árgangs Bjarma
kemur oftast nær út skömmu fyrir jól.
Með þessu blaði lýkur 110. árgangi og
er það nokkuð góður aldur fyrir prentað
tímarit á 21. öld. Tölublöðum hefur
fækkað með tímanum og þau stækkað
af hagkvæmniástæðum. Nú sláum við
saman 3. og 4. tölublaði eins og í fyrra. Á
næsta ári reiknum við einnig með þremur
tölublöðum.
Þetta tölublað er efnismikið og víða
komið við. Athygli er vakin á nýútkomnum
bókum íslenskra höfunda og á bókinni
Guð er ekki dáinn, minnst á 500 ára
afmæli siðbótarinnar á komandi ári,
sem væntanlega verður gerð skil nánar
á komandi ári, og kynntar nokkrar
kvikmyndir og sjónvarpsþættir með
trúarlegu ívafi eða innihaldi. Fréttamolar
koma úr nokkrum áttum, Vigfús Ingvar
Ingvarsson fjallar um kirkjusókn í Ameríku
og skömm og afleiðingar hennar og
S. Waage ehf.
Garðabæ
r^lNGI
HÓPFERÐIR
5544466
Sigurjón Árni Eyjólfsson ritar um trú og
tónlist. Viðamikið viðtal er við Corneliu og
Aðalstein Þorsteinsson, sem búa og starfa
á Norðausturlandi. Þau hafa komið víða
við og eru með ýmis járn í eldinum. Karitas
Hrundar Pálsdóttir heldur áfram með
frásögu sína, sem hófst í síðasta tölublaði,
af dvöl sinni í Japan. Ólafur Hallgrímsson
fjallar síðan um Hallgrímskver sem út
kom fyrir tveimur árum. Kristján Búason
skrifar jólahugvekju út frá fræðilegum
vangaveltum um lykilvers jólaguðspjallsins.
Ýmislegt annað er þar fyrir utan að finna
í Bjarma að þessu sinni. Það er von
ritnefndar að efnið höfði til lesenda og sé
aðgengilegt þó svo áhugasvið okkar séu
margbreytileg.
Senn líður að jólum. Aðventan er tími
eftirvæntingar en einnig sjálfsskoðunar og
iðrunar í kristinni hefð. Rétt eins og tekið er
til, þrifið og skreytt í hinu ytra, er hollt fyrir
okkur að skoða hvar þurfi hugsanlega að
xV/
GARÐHEIMAR
íSíj Hjálparstarf
yMJ kirkjunnar
taka til innra með okkur, hvaða óhreinindi
eða bresti þurfi að bera fram í Ijósið, játa
og fá fyrirgefningu fyrir. Iðrandi hjarta tekur
með gleði á móti boðskapnum um að því
sé frelsari fæddur. Friður stendur okkur
til boða í Jesú Kristi sem fæddur var og
gefinn okkur mönnunum forðum í bænum
Betlehem. Friður við Guð og menn, því
Guð faðir er fús að líkna þeim sem velur
sér samastað hjá syni hans. Um það
snýst gleði jólanna, sem segja má að sé
endurljómi þeirrar himnesku dýrðar sem við
eigum í vændum. Við það megum við ylja
okkurí myrkum heimi: „Frelsun mannanna,
frelsisins lind, frumglæði Ijóssins, en
gjörvöll mannkind meinvill í myrkrunum lá.“
Ljós Guðs birtist og kom svo við gengjum
ekki áfram í myrkri, villt og ráðalaus.
Guð gefi þér, lesandi góði, gleðileg jól og
blessunarríkt komandi ár í Jesú nafni!
Ragnar Gunnarsson
GA
SMÍÐAJÁRN
Bjarmi 3.-4. tbl. 110. árgangur, desember 2016. ISSN 1026-5244
Útgefandi: Salt ehf í samstarfi við Samband ísienskra kristniboðsfélaga
Ritstjórn: Ragnar Gunnarssonn og Vigfus Ingvar Ingvarsson.
Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson og Vigfús Ingvar Ingvarsson.
Afgreiðsla: Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík, sími 533 4900, fax 533 4909.
Kennitala Salts: 600678 0789, reikningsnúmer 0117 26 017476,
IBAN: IS18 0117 26017476 6006 7807 89, SWIFT: NBIIISRE
Vefslóðir: www.bjarmi.is,www.sik.is og www.saltforlag.is. Netpóstur: ragnar@sik.is
Árgjald 5.250 kr með greiðsluseðli (fjögur tölublöð) 4.950 ef greitt er beint eða með korti) innan-
lands, 5.950 til útlanda. Gjalddagi 1. maí. Verð í lausasölu 1.350 kr.
Forsíðumynd: Úr persónulegu myndasafni
Umbrot og hönnun: Emil Hreiðar Björnsson
Prentun: Litróf
bjarmi.is