Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 25

Bjarmi - 01.12.2016, Side 25
En víkjum nánar að merkingu textans. Áður var vakin athygli á, að íslenzku þýðingarnar tjáðu með viðtengingarhætti ósk, en það stenzt ekki, þegar betur er að gætt. í gríska frumtextanum vantar sögnina að vera. í hebresku er umsögninni sleppt og orðasambandið skilið sem staðhæfing og því ber að þýða semitískt litaða grískuna í framsöguhætti. Þá hefur í þessu sambandi verið bent á, að ósk rími illa við síðari hlutann um frið til handa þeim, sem Guð hefur velþóknun á. í fagnaðarsöng englanna er í tilefni af fæðingu frelsara mannkynsins minnt á orsök hennar, dýrð, vegsemd og hátign himinsins, sem hefur leitt valdhafa þessa heims og fjölskyldu Jesú til Betlehem, þar sem hann fæðist, og loks opinberar mönnum hann sem frelsara mannanna. Þessi dýrð á himnum er Guðs. Jafnframt fagna englarnir þeim friði á jörðu, sem Guð gefur mönnum í Jesú Kristi í fyrirgefningu syndanna og samfélagi við hann. Þessi friður tilheyrir þeim mönnum. Það eru þeir, sem njóta velþóknunar hans. Dýrð á himni tilheyrir Guði. Friður á jörðu tilheyrir þeim, sem njóta velþóknunar hans. Megi fagnaðarsöngurinn, sem englar Guðs hófu forðum, óma í hjörtum okkar og af vörum okkar með allri kristni. BASARINN --------Austurveri — kOIT)4u 0% Nytjamarkaður Kristniboðssambandsins --------- Opið -------- virka daga kl. 11 -18 og laugarda kl. 12-16 bjarmi | desenilx'r 2016 | 25

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.