Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2016, Blaðsíða 44

Bjarmi - 01.12.2016, Blaðsíða 44
missa marks“, hafa ranga stefnu, geiga framhjá markinu. Afstaðan til Guðs er hér miðlæg og bersyndugur tollheimtumaður gengur réttlættur frá bæn sinni fremur en guðhræddur faríseinn (Lúk 18). Með því að sýna fólki virðingu og viðurkenningu, leysir Jesús það undan skömm. Þetta á við um samversku konuna við brunninn (Jóh 4) svo eitt dæmi sé tilgreint. Lækningar Jesú leystu fólk einnig undan skömm því sjúkleiki var oft tengdur synd í vitund fólks. AÐ LOSNA VIÐ ÓRÉTTMÆTA SKÖMM Skömmin er andstæða þess frelsis sem Jesús heitir lærisveinum sínum og hún tengist oft lögmálshyggju (verkaréttlætingar- hugsun) sem hindrar það að taka við náðinni. Boðun á kærleika Guðs, og enn frekar snerting af kærleika Guðs, leysir undan skömm en skapar heilbrigða syndavitund og gefur kraft til nýrra lífshátta og opnar fyrir að geta nýtt sér góða leiðsögn. Skynjun, upplifun á kærleika og óverðskuldaðri náð Guðs er svarið við skömminni. Og eins og vanvirðing fólks getur aukið á skömm þá getur virðing og umhyggja annarra unnið gegn skömminni og öll góð mannleg samskipti sem byggja upp traust og nánd. Við getum þurft að greina á milli 9Bækur á íslensku, Guð, hvers vegna? og Guð s< 10„The Loneliness of Shame", viðtal við geðlæknii kennslu um náð annars vegar og hins vegar upplifunar og miðlunar náðar. Fólk, sem boðar náð Guðs í orði, kann að skorta lifun hennar og miðlun í verki. Ef umhyggju- sama og styðjandi framkomu vantar þá fellur boðunin dauð niður. Annað er það að fólk, sem þjáist af mikilli skömm, á erfitt með að meðtaka náðarboðskap og þarfnast upplifunar - dýpri skynjunar og skilnings. Það sem kann að hafa verið meðtekið með höfðinu þarf að ná til hjartans. Hljóðlát dvöl í vitund um návist kærleiksríks Guðs getur hér verið lykill að lækningu - a.m.k. opnun á lækningu Guðs. Ýmsar kristnar bæna- eða íhugunaraðferðir geta stutt slíka opnun. Sem dæmi um efni í þessa veru leyfi ég mér að birta hér örstutta bæn eða íhugun (sbr. Róm 5.5) sem sótt er (í byrjun október) á hinn frábæra, einfalda uppbyggingarvef sacredspace.ie. Svona stund getur verið örstutt eða lengri: Ég hvílist um stund og hugsa um kær- leikann og náðina sem Guð baðar mig í. Ég er skapaður/sköpuð í mynd og líkingu Guðs. Ég er dvalarstaður Guðs. í sálgæslu er friður Guðs lykilhugtak í þessu samhengi. í friði Guðs er hægt að horfast í augu við veruleikann og taka við því sem Guð vill gefa. Raunhæfan stuðning við að takast á við skömm, sem hindrar mannleg samskipti i kemur á óvart. Curt Thompson, Christianity Today, júlí/ágúst 2016. og lífsgæði almennt, er að finna í 12-spora vinnu, ekki síst kirkjulegu útgáfunni.8 Áhersla á náðina í okkar trúarhefðum er kannski stundum fremur mikilvæg trú- fræðileg kenning án þess að skilningur eða tilfinning fyrir alvöru málsins í lífi fólks sé alltaf nægilega til staðar. Ein besta kennsla eða boðun sem ég hef fengið á þessu sviði er raunar lík- lega frá rómversk-kaþólskum höfundum sem hafa virkilega þurft að glíma við verkaréttlætisuppeldi eða boðun, svo sem Gerard W. Hughes.9 Ég þakka viðbrögð við umfjöllun um þetta efni á fræðslustund hjá Kristniboðs- sambandinu og mikilvægar ábendingar síðar við drögum að þessari grein. Loks barst mér í hendur erlend grein um skömm.10 Þar leggur geðlæknirinn áherslu á hve einangrandi og hamlandi skömmin er m.a. hvað sköpunargáfu snertir. Sköpunar- gáfan er einmitt einn þáttur guðsmyndar okkar. Þetta er þá dæmi um það að skömmin spilli því hvernig við erum af Guði gerð og brengli skilning á því hvaða augum hann lítur okkur - þrátt fyrir alla okkar bresti. Þegar Guð gerist maður í Jesú Kristi er það m.a. yfirlýsing um að hann vilji vera með okkur, hann skammist sín ekki fyrir samfélag við okkur - þvert á móti þrái hann náið samfélag við okkur. Náðarríkt og gefandi samfélag við Guð og menn vinnur gegn skömminni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.