Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2016, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.12.2016, Blaðsíða 18
Guð er ekki iláinn BÓKIN GUÐ ER EKKI DÁINN GEFIN ÚT Á ÍSLENSKU - KYNNING ÁGÚST VALGARÐ ÓLAFSSON Daglegt líf gengur best þegar viö vitum hvernig hlutirnir virka í raun og veru. Fólk sem er í hjónabandi er ánægðast þegar það sem sagt er skilst rétt og hjónin leitast við að mæta hvort annars þörfum. Bíllinn virkar best ef honum er ekið eins og hann er hannaður til og viðhaldi sinnt reglulega. Að sama skapi fer illa þegar við gerum eitthvað af vanþekkingu, t.d. ef við notum spjaidtölvu sem skurðarbretti eða bensín til að slökkva eld. í stuttu máli sagt: Þekking er m.a. getan til að vinna með hluti á grundvelli þess hvernig þeir eru í raun og veru. Kristin trú er ein leið til að skilja lífið og tilveruna. Ef kristin trú er rétt og sönn þá endurspeglar kristin heimssýn hvernig hlutirnir virka í raun og veru og skiptir því miklu máli fyrir líf okkar, alveg eins og það skiptir máli að slökkva eld með vatni en ekki bensíni. Bókin Guð er ekki dáinn eftir Dr. Rice Broocks er komin út í íslenskri þýðingu. Þessa bók má skilgreina sem trúvarnarrit. Trúvörn er ekki orð sem þarf að óttast. Ég skal útskýra þetta. Á grísku (tungumáli Nýja Testamentisins) er apologia orðið yfir trúvörn. Þetta orð var notað af bæði Plató og Aristótelesi yfir það að rökstyðja gjörðir og skoðanir. Kristin trúvörn felst í því að rökstyðja kristna trú. í Nýja testamentinu ertrúvörn skilgreind sem þjónusta þar sem rökhugsun, eftir leiðsögn Heilags anda, er notuð til að aðstoða einlæga leitendur í því að vinna úr vantrú og vantrausti á Guði og tilgangi hans með mannkynið. Trúvörn erekki keppni í neinum skilningi þess orðs þar sem einhver vinnur en aðrir tapa. Nei, trúvörn er kærleiksrík þjónusta.1 Trúvörn snýst um að mæta þörfum þeirra sem vilja skilja hvað kristin trú er og vinna úr efa á heilbrigðan hátt með samtali af gagnkvæmri virðingu. f þessari bók er því haldið fram að séu staðreyndirnar rýndar á heiðarlegan hátt þá rökstyðji þær tilvist Guðs. Sá sem af einlægni vill vita hvernig hlutirnir virka í raun og veru mun sækjast eftir því að skoða fyrirliggjandi staðreyndir eins hlutlaust og mögulegt er. ( kjölfarið er svo tekin afstaða til staðreyndanna eða eins og í tilfelli þessarar bókar: Að sannfærast um það að Guð sé til eða ekki. Trú er einfaldlega að hafa sannfærst um eitthvað nægilega mikið til að breyta eftir því þegar við á. Tíðarandinn kennir okkur að álíta þá sem efast klárari en þá sem trúa. Ég segi því við fólk: „Ef þú ætlar að vera efasemdarmanneskja þarft þú að trúa því sem þú trúir og efast um efa þinn, rétt eins og þú efast um það sem þú trúir og trúir því sem þú efast um.“ Svona eykst þekking. Við höldum þessu ferli áfram í samtölum við aðra, hlustum á góða ræðumenn, leitum svara og lesum bækur um það sem þarf að vita. Þetta getur tekið talsverðan tíma svo við gerum þetta í samfélagi með öðrum og deilum hvert með öðru því sem við erum að læra. Þess vegna er svo mikilvægt að samfélag okkar sé opið og að fólk, sérstaklega ungt fólk, sé hvatt til 18 | bjarmi | desembei 20i6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.