Bjarmi - 01.12.2016, Síða 57
Hallgrímur kemur í Skálholt 11. mars,
líklega að boði biskups, og segir sagan,
að hann hafi þá haft sálminn meðferðis og
lokið við að yrkja hann, morguninn sem
hann lagði af stað til Skálholts. Hinsta
kveðja hans til Ragnheiðar hafi svo verið að
rita sálminn á Passíusálmahandrit hennar,
sem hann hafði áður sent henni. Handritið
hafi síðan verið lagt í kistu Ragnheiðar, sem
lést 23. mars 1663 á 22. aldursári, og svo
verið sunginn í fyrsta skipti við útför hennar.
Sé þetta rétt, þá er handritið JS 337 4to
ekki handrit Ragnheiðar.
Vafasöm virðist mér ályktun höfundar
Hallgrímskvers, sem segir „ekkert benda
til, að sálmurinn, Allt eins og blómstrið eina,
sé sérstaklega ætlaður Ragnheiði eða ortur
til hennar. “ Ég tel þvert á móti mörg rök
hníga að því, að þessi stórkostlegi sálmur
sé einmitt ortur til Ragnheiðar, sem deyr í
blóma lífs, fremur en til Steinunnar, dóttur
skáldsins, eins og sumir álíta. Fyrir því gæti
ég fært ýmis rök, sem ekki verða tíunduð
hér. Er ekki líka stundum sagt, að sjaldan
Ijúgi almannarómur.
En um þetta verður vitanlega ekkert
fullyrt. Kannski liggja rætur sálmsins
líka víðar. Hver sem tilurð hans er, þá
stendur sálmurinn sem sígilt listaverk, sem
kynslóðirnar í þessu landi hafa sótt huggun
og styrk til, þegar mest hefur á reynt á
stund sorgarinnar, og svo er enn í dag.
Andlátssálmar á ævikvöldi
Hallgrímur Pétursson var holdsveikur
maður nokkur síðustu ár ævinnar. Þá
fluttist hann að Ferstiklu, litlu koti og næsta
bæ við Saurbæ og kirkjujörð þaðan, til
Eyjólfs, sonar síns, sem þar hafði tekið
víð búsforráðum. Þar dvaldi hann sjúkur,
að því er virðist karlægur að mestu og
nær blindur síðustu árin og yrkir þar
andlátssálma sína í kapp við dauðann og
býr sig undir komu hans.
Andlátssálmarnir verða að teljast
meðal fegurstu trúarljóða skáldsins, og
er annar þeirra, Guð komi sjálfur nú með
náð, prentaður hér í Hallgrímskveri. Þar
að Ferstiklu í lítilli baðstofukytru undir
skjáglugga yrkir skáldið andlátsbænir sínar,
hið síðasta hér á jörð, og felur sig Guði á
vald:
- Á náð legg eg mig lausnarans,
lífið mitt er í valdi hans,
gæskan þin hefur grát minn stillt,
guð, farþú með mig sem þú villt.
Sr. Hallgrímur andaðist að Ferstiklu
27. okt. 1674, sextugur að aldri, og var
jarðasettur fram undan kirkjudyrum í
Saurbæ, sem legsteinn hans vottar.
Um Hallgrímskver
Hallgrímskver er snoturleg bók að allri gerð.
Margrét Eggertsdóttir og samstarfsfólk
hennar eiga miklar þakkir skildar fyrir verk
sitt. Þessa bók þurfa sem flestir að eignast
og lesa. Kvæði Hallgríms og óbundið
mál eru vissulega mun minna þekkt en
sálmarnir, sem lengst munu halda nafni
hans á lofti. Þó mun óhætt að fullyrða, að
sá hafi ekki séð nema aðra hlið á skáldskap
hans, sem hefur ekki lesið kvæðin, sem
oft gefa aðra og fyllri mynd af skáldinu.
Hallgrímur kunni þá list að klæða Ijóð sín
þeim búningi, sem þjóðin skildi. Fólk las
Passíusálmana, lærði þá og söng.
Yfirlætisleysi og einfaldleiki einkennir
öll verk Hallgríms. í auðmýkt og trú tekur
hann lesandann við hönd sér og leiðir hann
um leyndardóma trúarinnar, þar sem Jesús
Kristur er ætíð í augsýn.
Um aldir hefur þjóðin varðveitt sálma
og Ijóð Hallgríms sem hinn dýrmætasta
fjársjóð. Engir sálmar hafa orðið þjóðinni
hjartfólgnari né staðist betur tímans tönn,
svo enn í dag eru sálmar hans ástsælir
meðal þjóðarinnar. Fátt sýnir betur ítök
þessa einstæða skálds.
Áfram þörfnumst við leiðsagnar
Hallgríms í viðsjálum heimi samtímans,
þörfnumst lífsvisku hans og hollra ráða.
íslendingar eiga skáldi sínu stóra þökk að
gjalda. Enginn hefur að mínum dómi tjáð
hugsanir og þakklæti þjóðarinnar betur en
sr. Matthías í Ijóði sínu:
Niðjar íslands munu minnast þín,
meðan sól á kaldan jökul skín.
i\T. P. Madsext
FRIÐUR Á JÖRÐU - LÚK. 2.14
Heyr, hve þeir syngja -fjöld
hinna himnesku herskara - yfir
vöggn Jesú.
Friður ájörðu.
Það var jólagjöf Guðs til hins
friðvana mannkyns. Hann var
kominn til að flytja friðinn -
hinn litli Guðs sonur ífátæklegu
jötunni í Betlehem.
Friður á jörðu, friður til
handa hverjum manni, sem vill
taka a móti honum semfrelsara
sínum.
Friður er öryggi hjartans
gagnvart öllum ákœrum og
dómi. Friður er þaðþegar sálin
er ósnortin og hljóð gagnvart öllu
illu sem getur ógnað.
Friðinn flutti Jesús ofanfrá
himnumfrá Guði. Hann andar
á móti okkur alls staðarfrá
þar sem hann er: Frájötunni
í Betlehem, frá blóði drifnum
krossinum áföstudaginn langa,
frá Ijómandi mynd hans í
upprisunni, frá skírninni, frá
kvöldmáltíðinni, frá öllu orði
hans.
Friður á jörðu! Heyrðu það
friðvana, órólega, hrœdda
mannsbarn. Einnig til þín
hljómar englasöngurinn umfrið
frá Guði.
Komdu til Jesú, taktu á móti
honum, opnaðu sál þínafyrir
honum, ogþú opnar um leiðfyrir
friði Guðs, kyrrð himinsins og
hvíld.
bjarmi | desembei 2oi6
57