Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.2016, Page 4

Bjarmi - 01.12.2016, Page 4
Þegar Drottiiui f ær að leiða VIÐTAL VIÐ CORNELIU OG AÐALSTEIN ÞORSTEINSSON RAGNAR GUNNARSSON Hver hefur ekki heyrt af bókinni Lykilorð sem komið hefur út á hverju ári í rúman áratug, eða af kyrrðartjaldstæði Lífsmótunar fyrir norðan, eða bara af Alla og Corneliu? Bjarma lék forvitni á því að kynnast þeim, starfi þeirra og hugsjónum og tók því hús á þeim norður í landi, nánar tiltekið á bænum Hjalla í Reykjadal, rétt hjá Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu, þar sem þau búa, stunda skógrækt, reka tjaldstæði og nú síðast, frá því í vor, reka gistiheimili, sem þau m.a. standsettu að hluta til með hópfjármögnun á Karolina Fund. Á Hjalla fyrirfinnum við þau ásamt yngri syni þeirra en eldri sonurinn og báðar dæturnar eru fluttar að heiman. Við byrjum á því að fá þau hjónin til þess að segja aðeins frá því hver þau eru og hvaðan þau koma því Ijóst er að bakgrunnur þeirra er ólíkur með áskorunum þeim sem því fylgja. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Aðalsteinn ólst upp á Akureyri en Cornelia í Suður-Þýskalandi. „Trúarlegur bakgrunnur okkar er samt ekki svo ólíkur. Bæði vorum við virk í starfi KFUM og K og á báðum stöðum voru áherslurnar mjög svipaðar: Á uppbyggilegt félagsstarf og góða ígrundaða kennslu sem byggði á Orðinu.“ Aðalsteinn kom reyndar ekki inn í KFUM starfið fyrr en á unglingsárunum en fékk grunninn að sínu trúaruppeldi hjá föðurbróður sínum, Boga Réturssyni, bæði á Ástjörn og eins í sunnudagaskólastarfi hans á Akureyri, á drengjafundum á Sjónarhæð og sem ylfingur. „Á unglingsárunum mínum vann ég líka hjá Boga á Ástjörn og fékk tækifæri til þess að læra margt af honum. Við unnum líka á sumrin með Boga á Ástjörn fyrstu hjúskaparárin svo Cornelia fékk líka tækifæri til þess að kynnast honum, starfinu hans og hugsjóninni." LEIÐIR LIGGJA SAMAN Leiðir þeirra lágu saman og þau kynntust í gegnum starf UFMH (Ungt fólk með hlutverk). Cornelia segist hafa komið til fslands af því að hún var atvinnulaus í Þýskalandi og varð strax mjög hrifinn af landinu. „Ég var ekki tilbúin til þess að fara aftur til Þýskalands þegar ég var búin að vinna hér í eitt ár og ég hafði komið á samkomur UFMH í Grensáskirkju og heyrt auglýst eftir einhverjum til þess að vinna við að passa börn starfsfólks og nemenda á fyrsta Biblíu- og boðunarnámskeíðinu sem átti að hefjast haustið 1989 á Eyjólfsstöðum. Mig langaði að iengja dvöl mína í landinu aðeins og fannst þetta spennandi og tilvalið tækifæri." Aðalsteinn hafði nýlokið stúdentsprófi á Akureyri og skráði sig sem nemanda í skólann. „í stuttu máli kolféllum við hvort fyrir öðru og vorum búin að gifta okkur hálfu ári síðar. Það hljómar auðvitað eins og eitthvert bráðræði en við höfum alla tíð leitað leiðsagnar Guðs með allar smærri og stærri ákvarðanir í okkar lífi. Þennan vetur tókum við ekki bara ákvörðun um að heitast hvort öðru, okkur fannst Guð kalla okkur til þess að starfa fyrir sig. Það má segja 4 | bjarmi desember20ió

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.