Bjarmi - 01.12.2016, Page 9
Tjaldstaeði Lífsmótunar
Búið aá rífa allt innan úr fiúsinu og
það eins og fokhelt
fremst með almenna ferðamenn yfir
sumarmánuðina á meðan svo er. Líka til
þess að skapa okkur sjálfum tekjur, greiða
af framkvæmdunum og leggja fyrir til frekari
uppbyggingar. Markmið okkar er engu
síður að vera fyrst og fremst áningarstaður
fyrir þá sem eru að leita sér að meira en
bara gistingu — hvort sem maður kallar
það kyrrðarmiðstöð eða eitthvað annað.
Við erum að skoða með að bjóða upp á
kyrrðardaga í janúar og febrúar en eins
eigum við von á gestum frá Þýskalandi
og víðar sem koma hingað til þess að
hvílast og leita Drottins. Við fórum meðal
annars í þessa söfnun á Karolina Fund í
fyrra vetur til þess að vekja athygli á okkur
erlendis og þónokkur fjöldi fólks tók þátt í
söfnunni með því að greiða fyrirfram fyrir
dvöl á gistiheimilinu. í þeim hópi er nokkuð
af fólki sem sækist eftir því að koma til
svona dvalar hjá okkur. En við sjáum líka
tækifæri í því að fá ferðamanninn til okkar.
Þannig þyrjuðum við á því fyrir nokkru í
tengslum við tjaldstæðið að bjóða upp á
stutta bænastund að morgni, undir berum
himni, þar sem við lesum Lykilorð dagsins
og förum með stutta bæn. Þeim sem hafa
áhuga býðst að vera með og í kjölfarið
hefur þá líka stundum gefist tækifæri til
þess að ræða við fólk um trúna okkar. Við
erum samt ekkert að boða trúna okkar af
fyrra bragði í orðum við gestina - það er
bara ekki okkar stíll. Við viljum miklu frekar
boða hana í verki, með lífi okkar - að þau
sem komi til okkar finni að hér er Guðs andi
án þess að þeim sé tilkynnt um það. Guðs
andi vinnur sitt verk í hjörtum mannanna."
Bjarmi þakkar þeim Aðalsteini og
Corneliu spjallið og fyrir að leyfa lesendum
Bjarma að skyggnast inn í lífshlaup þeirra
og trúargöngu um leið og við biðjum
Drottinn að blessa þau áframhaldandi.
bjarmi
desember 2016
9