Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 45

Bjarmi - 01.12.2016, Side 45
breyta 11111 stefinu GERARD W. HUGHES Að þekkja syndugleika okkar og taka sinnaskiptum er ævilangt ferli. Við náum aldrei í lífi okkar því stigi að við þurfum ekki að taka sinnaskiptum því að það eru ótal vitundarlög innra með okkur. Á sérhverri stund ævi okkar getur slíkt vitundarlag lokist upp fyrir okkur, ef við leyfum því að gerast, og sýnt okkur hve djúpstæð tilhneiging til að leyfa ekki Guði að vera Guð, býr með okkur. Guð er nærgætinn. Hann birtir okkur syndugleika okkar smátt og smátt. Hann virðist ekki hafa áhyggjur af misgjörðum okkar í fortíðinni jafnvel þótt afleiðingar þeirra kunni enn að valda okkur og öðrum þjáningum. „Þó að syndir yðar séu sem skarlat skulu þær verða hvítar sem mjöll." (Jes 1.18b) Það sem hann lætur sig mestu varða er hvert við stefnum. Ef við höldum í átt til hans, sama hversu fjarri honum sem við kunnum að vera, þá gengur hann fram til að fagna okkur. Okkar raunverulega synd felst í því að hafna því að snúa við eða að óttast það, annaðhvort vegna þess að við erum fyllilega ánægð með okkur eins og við erum eða vegna þess að við álítum að við verðum fyrst að koma lífi okkar í lag áður en við snúum okkur til hans. Það sem kann að koma okkur fyrir sjónir sem ástæða til að örvænta - einhver mistök, missir atvinnu eða álits, vanvirða, þrálátur, siðferðilegur veikleiki, líkamlegur eða geðrænn sjúkdómur, brestur í hjónabandi eða mistök í trúarlegu köllunarstarfi - getur orðið náðarstund og upphaf nýs lífs ef við aðeins getum viðurkennt mistök okkar og snúið okkur í trausti til Guðs. ... Mundu einnig að sinnaskipti (iðrun) er ferli, ævilangt verkefni og hjá okkur öllum verður alltaf blanda af sönnum og fölskum sinnaskiptum. Það sem er mikilvægt er að við viðurkennum þörf okkar fyrir Guð. bjarmi | desember20i6 | 45

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.