Bjarmi - 01.12.2016, Page 47
BÓKAKYNNING
Kslensk hugvekjubók
SKÁLHOLTSÚTGÁFA GAF ÚT FYRIR FÁEINUM VIKUM HUGVEKJUBÓKINA
SALTOG HUNANG EFTIR SR. PETRÍNU MJÖLL JÓHANNESDÓTTUR, PREST VIÐ
ÁRBÆJARKIRKJU í REYKJAVÍK. BJARMI HAFÐI SAMBAND VIÐ PETRÍNU MJÖLL
TIL ÞESS AÐ FÁ AÐ VITA AÐEINS MEIRA UM ÞESSA BÓK EN LANGT ER SÍÐAN
HUGVEKJUBÓK EFTIR ÍSLENSKAN HÖFUND HEFUR KOMIÐ ÚT.
Hvernig bók er þetta?
Bókin Salt og hunang er íhuganir út frá
orðum Bibiíunnar fyrir hvern dag ársins.
í henni er að finna ritningarvers úr öllum
bókum Biblíunnar. Þetta eru orð sem snert
hafa við mér í gegnum tíðina og ég reyni að
heimfæratil dagsins í dag. Umfjöllunarefnin
eru fjölbreytt en fyrst og fremst er fjallað
um viðfangsefni daglegs lífs eins og gleði,
kvíða, sorg, samskipti, kærleika og von
svo eitthvað sé nefnt. Það er hægt að
lesa í henni daglega eða fletta upp í henni
annað slagið. Aftast í henni er orðaskrá
sem auðveldar lesandanum að fletta
upp íhugunum sem henta við tilteknar
aðstæður.
Hvernig varð hún til?
Ég hef heillast af Biblíunni frá unga aldri. Á
bernskuheimilinu var ein til sem átti sinn
heiðursstað í bókahillunni og ég reyndi
að lesa hana en gekk brösuglega. Á
unglingsárunum í KFUM og KFUK Keflavík
varð ég svo handgengin þessari bók þegar
ég las hana á markvissari hátt og í góðra vina
hópi. Síðan þá hef ég lesið reglulega í henni,
mismikið þó, og notið þess óendanlega
fjársjóðs sem er að finna í henni. Ég kynntist
henni svo algjörlega á nýjan og fræðilegan
hátt í guðfræðideildinni sem opnaði augun
mín enn meira fyrir því hve stórkostleg þessi
bók er. En Biblían er ekki aðgengileg bók og
í gegnum tíðina hafa margir nefnt við mig að
þeim gengi svo illa að lesa hana. Sumir opna
hana en loka strax aftur því efnið er framandi
og málfarið torskilið. Þannig að mig langaði
að búatil bók með ritningarversum sem hægt
væri að lesa daglega með íhugunum um lífið
og tilveruna og að hún væri uppbyggileg og
vekjandi.
Hvaða væntingar hefur þú til hennar?
Ég vonast til að bókin hjálpi þeim sem vilja
lesa Biblíuna en sem óar svolítið við henni
og veki með þeim löngun til að kynnast
henni betur. Ég vona líka að bókin verði
til uppbyggingar og gleði og hjálpi þeim
sem ganga í gegnum erfiðleika og líður
illa. Biblían geymir nefnilega svo mikla
visku og sannleika um hvað það er að vera
manneskja og hvernig best sé að lifa.
bjarmi | desember20i6 | 47