Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.2016, Side 53

Bjarmi - 01.12.2016, Side 53
1. Korintubréf 11: „Þér skuluð minnast dauða drottins þangað til hann kemur.“ Skiptar skoðanir eru um tilurð þess, að Hallgrímur tekur að yrkja Passíusálmana eða hve lengi hann var að yrkja þá. Það eitt er vitað, að hann hættir við að yrkja Samúelssálma (þá kominn aftur í 2. Samúelsbók) og tekur til við að yrkja Passíusálmana. Þess hefur verið getið til, að hann hafi þá verið farinn að kenna holdsveikinnar, þess sjúkdóms, er að lokum dró hann til dauða, en vissar heimildir benda þó til þess, að það hafi ekki verið fyrr en eftir að hann lauk við sálmana. Ekki mun fjarri lagi að álíta, að hann hafi ort sálmana á 3-4 árum. Sálmar sem lifa Passíusálmarnir eru sá kveðskapur Hall- gríms, sem lengst mun halda nafni hans á lofti, auk útfararsálmsins, enda eiga þeir engan sinn líka í sálmakveðskap íslendinga og þótt víðar væri leitað. Sálmarnir hafa orðið þjóðinni einkar hjartfólgnir, voru fyrr á tíð sungnir eða lesnir á föstunni á flestum heimilum, og enn í dag eru þeir fluttir í Útvarpinu á föstunni og í fjölmörgum kirkjum landsins. Hér stendur ekki til að gera fræðilega úttekt á Passíusálmunum. Best er að lesa sálmana og láta þá tala fyrir sig. í sálmunum lifir Hallgrímur sig inn í efni bjarmi | desember2m6 | 53

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.