Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 5
Engill norðursins - iákn borgarinnar Newcasfle.
einkakapella fjölskyldunnar og alls kyns
salir.
Á 20. öld hallaði undan fæti fyrir
þessu fólki, m.a. féllu margir karlmenn úr
fjölskyldunni í heimsstyrjöldunum. Erfitt
varð að reka slík setur og það var selt fyrir
gjafverð árið 1949, mér ókunnri reglu sem
kallast Passionists. Nokkrir reglubræður
bjuggu þarna og höfðu sitt helgihald og
ýmsa sýslan. Forstöðumaður setursins,
einkar viðkynnilegur Hollendingur á góðum
aldri, tók vel á móti okkur og var boðinn
og búinn til að sinna okkur á allan hátt.
Hann leiddi eina messu fyrir okkur með
látlausum hætti, þar sem staðið var í hring
við útdeilinguna og efnin látin ganga á milli
kirkjugesta eftir Ijúfan klið faðirvorsins á
fjölmörgum tungumálum.
Fram undan aðalbyggingunum var
hesthús Silvertop-fjölskyldunnar, svo
stórt að eftir innri breytingar á því, bjuggu
tugir okkar í þægilegum herbergjum á
hesthúsloftinu. Rekstur kyrrðarsetursins,
sem er öllum opið, er að verulegu leyti
borinn uppi af sjálfboðaliðum sem sinna
margvíslegum störfum en um 10 manns
búa á setrinu. Sjálfboðaliði úr nágrenninu
ók okkur t.d. á flugvöllinn. Mikið er um eins
dags dagskrár en einnig boðið til lengri
skipulagðra dvala eða hópar skipuleggja
að hluta til eða að öllu leyti dvalir þarna.
Fallegt og friðsælt umhverfi einkennir
staðinn og röð af amerískum risafurum
frá 19. öld meðfram heimkeyrslunni er
einstök. Miklar lendur fylgja og áhersla er
á vistvæna hætti. Kynt er með lífmassa
af landareigninni og stefnt að ræktun alls
nauðsynlegs grænmetis.
FJÖLBREYTT OG GEFANDI
SAMFÉLAG
Við, hópur um 30 útlendinga frá ýmsum
löndum allt austur til Moldavíu, nutum
þarna einstakrar gestrisni og umhyggju
og gefandi dagskrár og samfélags. Með
okkur voru svo einnig heimamenn, bæði
úr nágrenninu og lengra að. Kaþólski
biskupinn leit inn til okkar og einnig
starfssystir hans úr ensku kirkjunni,
Christine Hardman, biskup af Newcastle,
önnur konan til að verða biskup yfir
biskupsdæmi í ensku kirkjunni.
Yfirskrift dvalarinnar var: Nourishing
roots for dialogue and peace (Nærandi
rætur fyrir samtal og frið). Athygli var beint
að því merka kristna fólki sem grundvallaði
kristni á Norðymbralandi löngu fyrir
þekktan klofning á milli kirkjudeilda. Fæst
af þessu fólki höfðum við heyrt nefnt. Ég
þó t.d. þau Aidan (keltneskur, d. 651) og
Hildu (engilsaxnesk, um 614-680, mótuð
af keltneskum áhrifum). Hilda stofnaði
Hesfhúsið.
m.a. hið kunna klaustur í Whitby sem
var „tvöfalt" það er bæði með nunnum
og munkum en slík klaustur voru forðum
algeng á Englandi og jafnan undir stjórn
konu. Beda prest hafði ég heyrt um og víst
hina merku kirkjusögu hans (lokið árið 731)
en ekki margt annað um þennan einstaka
lærdóms- og trúmann sem var mikill
latfnugarpur og kunni auk þess nokkuð í
grísku og hebresku. Gríðarmikið reit hann
af biblíuskýringum og fékkst mikið við
alls kyns tímatalsútreikninga og átti þátt í
að festa í sessi að miða ártöl við fæðingu
Krists. Hann mun hafa ritað yfir 60 bækur.
Einna þekktastir þarna virðast þó Oswald
konungur (d. 642) og heilagur Cuthbert (d.
687).
Helgihaldið, sem hópar fólks frá
ýmsum löndum önnuðust, var einstaklega
bjarmi | júní 2017 | 5