Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 33

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 33
Máttnr fagnaðarermdiisiii§ breytir lifi íólk§ og samfélagiim öllu VIÐTAL VIÐ SÉRA NICHOLAS LOYARA FRÁ PÓKOT í KENÍU RAGNAR GUNNARSSON Nicholas Loyara frá Pókothéraði í Keníu hefur tengst fslendingum og íslandi frá því á unga aldri en hann fór sína fyrstu ferð til fslands, og reyndar út fyrir Austur- Afríku, í lok febrúar þar sem honum var boðið að taka þátt í árlegri kristniboðsviku Kristniboðssambandsins. Hann tók þátt í fjölmörgum samverum, samkomum og guðsþjónustum þá 10 daga sem hann dvaldi hér. Bjarmadrengi fýsti að vita meira, meðal annars hvernig hann komst til trúar. íslenskir kristniboðar komu til Propoi í Chepareria árið 1978. Stuttu eftir það kynntist amma mín starfinu þar og komst til trúar á Jesú Krist. Það olli straumhvörfum í lífi hennar. Hún var með í kirkjustarfinu af lífi og sál. Hún ræddi það þá við kristniboðann, Skúla Svavarsson, hvort ekki mætti stofna kirkju líka í Tolkoghin, efst á fjallsbrúninni fyrir ofan Cheparería. Hann féllst á það. Afi og amma gáfu jarðarskika undir kirkjulóð og amma sparaði sér klukkutíma göngu niður og aftur upp fjallið hvern sunnudag og oftar ef meira var um að vera í kirkjunni. Ég ólst upp hjá ömmu minni þar sem mamma var dáin. Fyrir ömmu var.mjög mikilvægt að hún hafði fengið að kynnast og eignast trú á Jesú og það breytti lífi hennar á margan hátt. Hún var ekki í vafa um að við þyrftum líka að fá að kynnast Jesú og fylgja honum. Til að þetta allt yrði auðveldara lagði hún til við kristniboðana að hafið yrði starf heima. Skúli heimsótti Tolkoghin reglulega og síðan þeir Kjartan og Ragnar. Stundum voru konur þeirra með ef komið var yfir daginn og var þá ekið hring upp á fjallið. Þegar ég var ungur strákur man ég eftir Ragnari sem varð svo sveittur á fjallgöngunni að hann fór úr að ofan. Ég var ásamt vinum mínum virkur í barna-og unglingastarfi kirkjunnar og var skírður í desember árið 1984. Það var gaman að sjá myndir hér á íslandi hjá Ragnari frá þeim tíma þegar hann skírði mig og fleiri ÍTolkoghin. Og síðan hefur ábyrgð þín vaxið innan kirkjunnar? Já, smám saman hefur ábyrgðin vaxið og verkefnunum fjölgað. Ég var ekki gamall þegar ég var valinn „öldungur" þó svo ég væri varla fullorðinn. Þá var ég sendur á aðalfund kirkjunnar sem fulltrúi heimakirkjunnar minnar. Nokkrum árum síðar var ég kallaður til að fara á námskeið fyrir prédikara. Við sóttum námskeiðið fimm vikur [ senn, tvisvar á ári, í fjögur ár. Samtals var það eins og ársnám á biblíuskóla. Við lærðum um Biblíuna, stök rit hennar, trúfræði, siðfræði, kirkjusögu og ýmsar hagnýtar greinar fyrir okkur sem prédikara. Við þetta efldist ég og styrktist bjarmi | júní 2017 | 33

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.