Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 9
TILVÍSUN í GT? í II.Kron. 2:16-17 er talað um 153600 aðkomumenn í ísrael sem Salómon lét taka þátt í byggingu musterisins. Það virðist þó langsótt að talan 153 vísi til þeirra en þá væri tengingin sú að í báðum tilvikum er um að ræða heiðingja (=ekki gyðinga) sem skípta um trú og taka þátt í verki Guðs, byggja upp ríki hans. FISKIFRÆÐI FORNALDAR? Einhverjar heimildir segja að í fornöld hafi verið talað um 153 tegundir fiska í heiminum. Sá fjöldi veiddra fiska í Jóh. 21 gefur til kynna að veiðst hafi einn af hverri tegund. Það táknar að fagnaðarerindið verði boðað öllum þjóðum sem fyrirfinnast á jörðinni. Eins má þó túlka það þannig að gleðiboðskapurinn nái til alls mannkyns, óháð uppruna, stöðu, efnahag, þjóðerni og kynferði. Allar framangreindar tilgátur eiga það sameiginlegt að túlka þessa veiðisögu sem fyrirheit um útbreiðslu kristinnar trúar og vöxt kirkjunnar um allan heim. Það fyrirheit hefur sannarlega ræst og er enn að rætast. OFURNÁKVÆMNI GUÐSPJALLAMANNSINS? Þrátt fyrir þessar bollaleggingar má ekki horfa framhjá einföldustu skýringunni: Hugsanlega voru fiskarnir í raun og veru 153 og guðspjallamaðurinn tilgreindi fjölda þeirra af vísindalegri nákvæmni — eða vegna talnaáráttu. Hægt er að sjá sögumanninn fyrir sér á gamals aldri lygna aftur augum og rifja upp einstæðan atburð sem hann mundi í smáatriðum. Eftir aflalausa nótt var stórmerkilegt að fá allan þennan fjölda í netin i einu kasti og það eftir dögun. Sagan í Jóh. 21 kallast á við svipaða frásögn Lúkasar (Lúk. 5:1 -11) af mokveiði snemma á starfstíma Jesú, þegar lærisveinarnir voru rétt að kynnast honum. Þar rifnuðu netin utan af aflanum, hér er tekið fram að þau gerðu það ekki. í millitíðinni gerðist það sem skiptir öllu máli: Kristur er upprisinn! Þess vegna er kirkju hans ekkert að vanbúnaði að hefja mannaveiðar, sbr. samlíkingu Jesú sjálfs í Lúk. 5:1 Ob og Mark. 1:17. Sem kristið fólk erum við öll kölluð til að vera slíkir mannaveiðarar. Okkur er ætluð hlutdeild í því kraftaverki að boða fagnaðarerindið til ystu endimarka jarðarinnar, ná öllum 153 fiskunum í netið! bjarmi | júní 2017 | 9

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.