Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 17
SkilH með merkingum kirkjunnar í
Kobe.
í nánu samstarfi við lútherskar kirkjur og
þeirra unglingastarf á Taiwan og í Hong
Kong.
Fjölmiðladeildin sér einkum um
framleiðslu útvarpsdagskrár: Ljós fyrir
hjartað. Hún er send út á þremur stöðum
snemma dags og aftur endurtekin á
laugardögum. Útvarp er vinsælt í Japan og
gegnir lykilhlutverki í að miðla upplýsingum
frá yfirvöldum og á neyðartímum s.s. eftir
jarðskjálfta eða með flóðbylgjuviðvörunum.
Traust á útvarpsfréttum virðist mikið. Þetta
er eina lútherska kirkjan, af þeim fjórum
sem eru í landinu, sem rekur útvarpsstarf.
Starfið hófst upphaflega árið 1956 með
stuðningi frá Ameríku og var breytt 1968.
Boðið er upp á bréfanámskeið og nú er
unnt að hlusta aftur á fræðsluna í síma eða
á netinu þegar hverjum og einum hentar.
150 manns fylgja námskeiðinu daglega.
Innan kirkjunnar er nú rætt um að ná
víðar til fólks með hjálp annarra fjölmiðla
sömuleiðis.
Biblíuskólinn er rekinn með það
markmið að læra um Biblíuna og styrkjast
í trúnni. Skólinn var stofnaður 1950.
Á undanförnu starfsári voru afar fáir
nemendur en allt útlit er fyrir að fjölgi á
næsta ári.
Ein stofnunin er Hiruzen biblíubúðirnar.
Þar hófst starfið sem landbúnaðarskóli en
með minnkandi þörf og fækkun bænda var
honum árið 1990 breytt í n.k. heilsársbúðir
með gistiaðstöðu, fundarsölum, kapellu og
fleiru. Þar eru í boði námskeið, ráðstefnur
og sumarbúðir fyrir fjölskyldur. Markmiðið
að boða fagnaðarerindið þeim sem
þangað koma og dvelja. Á sumrin eru
biblíuvikur með útivist og biblíufræðslu fyrir
fjölskyldur, unglinga og ýmsa hópa. Margir
hafa orðið fyrir varanlegum áhrifum af dvöl
sinni í Hiruzen.
Guðfræðiskólinn var stofnaður árið
1957. Þar eru nemendur tiltölulega fáir og
í skoðun að hefja samstarf eða sameinast
öðrum skóla eða skólum. Nemendur geta
lokið viðurkenndu BA prófi frá skólanum en
fara í framhaldsnám annað.
Kirkjan metur þessar stofnanir mikils,
þær eru hluti af kjarnastarfsemi kirkjunnar
og varðveita og miðla áfram arfinum frá
kristniboðunum, með áherslu á lifandi
trú og vakningu, náðargjafir eru virkar og
leikmenn með ábyrgð.
FRAMTÍÐIN
Starfið í kirkjunni og kristniboðarnir
standa frammi fyrir ýmsum áskorunum.
Starfsáætlunin leggur áherslu á aukinn
þátt kærleiksþjónustu og barna- og
unglingastarf. Markmiðið er einnig að
auka sjálfstæði kirkjunnar og fjárhagslega
sjálfbærni. Rætt er um að slá saman
fræðslustofnunum og fjölmiðlastarfinu
í Kobe. Við blasir að efla þarf barna- og
unglingastarfið eigi kirkjan að lifa áfram og
eflast er fram í sækir.
Japanska þjóðin þarf á fyrirbæn að
halda. Biðjum um að fagnaðarerindið verði
skilið og meðtekið, að fólk hungri og þyrsti
eftir lifandi brauði og lifandi vatni og að
fólk eignist lifandi trú á frelsara okkar og
Drottin, Jesú Krist.
bjarmi | júní 2017 | 17