Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 48

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 48
í UMSJÁ MAGNÚSAR VIÐARS SKÚLASONAR Jón nágranni kyssir alltaf konufia sína á hverjum degi áður en hann fer til vinnu, af hverju gerir þú það aldrei? Elskan mín, af hverju ætti ég að gera það? Ég þekki hana ekki neittl TILBOÐ SEM ER HÆGT AÐ HAFNA Eitt sinn var nokkuð sérvitur milljónamæringur sem hafði það að áhugamáli að safna krókódílum. Hann safnaði þeim í áranna rás í tjörn sem hann var með á búgarðinum sínum og hugsaði hann vel um skepnurnar enda var hann mjög hrifinn af þeim. Eitt árið ákvað hinn sérvitri milljóna- mæringur að halda stóra og mikla veislu að sumri til. Bauð hann öllum úr nærsveitum, vinum, ættingjum og kunningjum þannig að úr varð ein stærsta og fjölmennasta veisla í manna minnum. Mannfjöldinn hafði safnast saman á jörðinni hjá manninum en allir pössuðu sig þó að fara ekki of nálægt tjörninni þar sem krókódílarnir voru til sýnis. Þegar allir gestirnir voru komnir þá stóð milljónamæringurinn upp á svið sem þarna var og þakkaði öllum fyrir komuna. Hann bar siðan upp tillögu að áhugaverðu veðmáli ef einhver í hópnum hefði áhuga á því: „Eins og þið sjáið og vitið þá hef ég mikið dálæti á krókódílum og því legg ég það til að ef einhver hér í hópnum hefur nægilegan kjark til þess að synda yfir tjörnina endilanga og komast á bakkann hinum megin þá skulda ég viðkomandi eina milljón króna.“ Um leið og maðurinn hafði sleppt orðinu þá heyrðist busiugangur og einhver var kominn í tjörnina. Það sást greinilega að þetta var ungur maður þrátt fyrir þá miklu skræki sem komu frá honum þegar hann þreytti sundið af lífs og sálarkröftum. Tjörnin var nokkuð stór og það tók því unga manninn nokkrar mínútur að synda yfir en það tókst á endanum og komst hann upp á tjarnarbakkann, rennvotur, nokkuð lemstraður en heill á húfi með alla útlimi heila. Milljónamæringurinn starði á hann og gapti en sagði síðan: „Ja hérna, þetta tókst þér og með þvílíkum tilþrifum. Ég þarf nú víst að standa við veðmálið og greiða þér upphæðina." Ungi maðurinn sagði þá móður og másandi: „Mér er alveg sama um upp- hæðina, ég vil bara finna þann sem hrinti mér út í tjörnina!" Á FERÐ UM ÓKUNN LÖND Maður nokkur var staddur í viðskiptaferð í Síle. Ferðin hafði tekið langan tíma og hafði hann dvalið þar í landi í nokkra daga í viðskiptaerindum. Hann kunni ekki spænsku og hafði því þurft að reiða sig á aðstoð túlks nokkurs sem þar var á vegum fyrirtækisins sem hann var að semja við. Mikið hafði gengið á þennan daginn og því ákvað maðurinn að hann þyrfti á andlegri næringu að halda og hélt því af stað út af hótelinu í leit að kirkju. Þegar maðurinn hafði gengið dágóðan spöl þá kom hann að stórri kirkju og greinilegt var að þar var að hefjast messa miðað við þann fjölda sem streymdi að kirkjunni. Hann ákvað að láta slag standa og gekk rakleiðis inn í kirkjuna. Þegar hann kom þar inn þá var þétt setið á öllum bekkjum en eins og oft vill verða þá voru laus sæti á fremsta bekk. Maðurinn settist þar við hliðina á einum miðaldra manni sem þar sat. Þar sem hann kunni varla stakt orð í spænsku þá ákvað hann að fylgja sessunauti sínum í aðgerðum svo að hann liti þó allavega út fyrir að vera í takt við það sem væri í gangi í messunni. Messan hófst og þegar miðaldra maðurinn fór að klappa þá klappaði ferðalangurinn okkar einnig. Þegar hann stóð upp þá stóð okkar maður upp líka og þannig gekk þetta alla messuna. Maðurinn fann hvernig nærvera Drottins var sterk þarna í messunni og hvernig streitan rann hreinlega úr honum við að taka þátt I messunni. Þegar presturinn hafði lokið við prédikunina þá var eins og hann væri að lesa einhverjar tilkynningar og hvað væri á dagskrá hjá söfnuðinum í vikunni. Svo gerðist það við eina tilkynninguna að miðaldra maðurinn stóð upp. Okkar maður beið ekki boðanna og stóð einnig upp þar sem hann hélt að messan væri að klárast. Það mátti heyra saumnál detta í kirkjunni og andköf nærstaddra voru nokkuð Ijós. Ailir horfðu á manninn og hann horfði í kringum sig og leit til prestsins. Presturinn gapti og fór manninn að gruna að hann hefði eitthvað hlaupið á sig þarna þannig að hann settist niður. Að messu lokinni gekk maðurinn út á eftir öðrum messugestum og tók (höndina á prestinum á leiðinni út. Presturinn spurði hann þá á ensku hvort hann skildi nokkuð stakt orð í spænsku. Maðurinn svaraði hálf skömmustulega neitandi og hvort það hefði verið svona áberandi í messunni. Presturinn svaraði: „Já, það var nokkuð augljóst enda var ég að tilkynna söfnuðinum að Acosta-fjölskyldunni hefði fæðst lítið barn og ég bað föðurinn um að rísa úr sæti svo söfnuðurinn gæti heiðrað hann.“

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.