Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 44
okkar, eiginhagsmunum, og erum skuldug
syndinni, þá mun Heilagur andi hörfa frá
okkur.
Glas fullt af stöðnuðu vatni tekur ekki
við fersku vatni. Við verðum fyrst að losa
okkur við fúla vatnið. Á sama hátt verðum
við að tæma okkur af synd - iðrast með
Guðs hjálp - til að Guð geti fyllt okkur af
anda sínum.
HÉR ERU ORÐ FRÁ GUÐI UM
HEILAGAN ANDA:
„Heilögum anda mínum má líkja við
brúðguma sem birtist á ykkar tímum til að
biðla til ykkar, laða ykkur til sín og ganga
að eiga ykkur. Heilagur andi minn er lagður
eins og dýrmætur hornsteinn í hjarta ykkar,
til að vera hornsteinn trúar ykkar, vonar
ykkar, kærleika ykkar og þrár ykkar til min
sem er Guð ykkar. Já, Heilagur andi minn
er lífgefandi uppspretta: hann er innri
kraftur ríkis míns og reisir upp lærisveina
viskunnar. “ 23.12.93
„Komið nær mér og ég mun blása
ykkur ódauðleika í brjóst,22 endurlífga sál
ykkar að hún verði snortin af dýrð minni,
sækist eftir henni og andi henni að sér til
þess að þið tilheyrið ekki framar sjálfum
ykkur heldur Honum sem færir ykkur til
einingar við einingu okkar.
Segðu ekki: „Á ég, syndarinn, að þora
að sækjast eftir Ijósinu sem enginn hefur
aðgang að nema dýrlingarnir?" Ef þú trúir
því í alvöru að þú sért syndari, eins og
þú segir, og óverðug gjafa minna, mun
það sem er ómögulegt verða mögulegt.
Ég mun tendra í þér bál án tafar sem
gagntekur þig og brennir til grunna allt sem
ekki er af mér. Sfðan mun ég skipta út öllu
því sem hindraði aðgengi mitt að þér fyrir
Hann sem þú hélst að væri ómögulegt að
nálgast. Hann mun vera Ijós augna þinna,
hvati veru þinnar, hreyfiafl hjarta þíns,
tjáning orða þinna, hlátur þinn og gleði,
konunglegt skart sálar þinnar, vörður anda
þíns; Hann mun vera bróðirþinn, systirþín
og þinn trúfasti vinur. Hann mun vera veisla
þín, hlaðborð þitt, falinn fjársjóður, perlan,
lofsöngur þinn til lofsöngsins, amen þitt við
ameninu, fyrirheitna landið og grundvöllur
allra dyggða sem Hann mun greypa sitt
heilaga nafn á. “ 9.1.96
STÖÐUG BÆN
Þegar Guð sagði við mig að ég ætti að
biðja án afláts hló ég bara og sagði: „Ég
þarf nú líka að sinna fjölskyldunni, elda
og fara í búðina, hvernig á ég að geta
legið stanslaust á bæn?“ Þá gaf Guð mér
skilning á því að stöðug bæn merkir ekki
að vera á hnjánum allan sólarhringinn
heldur að finna þessa þrá í hjarta sínu, þrá
og löngun eftir nærveru Guðs.
Við erum öll kölluð til að biðja. Heilög
Guðsmóðir biður okkur um að auka bænir
okkar fyrir sinnaskiptum þessa heims.
Bæn sem kemur frá hjarta okkar, segir
Drottinn, ber strauma trúnaðartrausts og
hana heyrir Guð. Þegar við biðjum fyrirfólki
sem við þekkjum ekki einu sinni jafngildir
það því að þú úthellir þínu eigin blóði því
að slík bæn líkist kærleika Krists sem var
án nokkurra eiginhagsmuna. Þess vegna
er mesta þjónusta sem þú getur veitt Guði
að færa honum aftur eina sál.
„Biðjið án afláts;24 Ég þekki þarfir þínar
jafnvel betur en þú sjálf og jafnvel áður en
þú biður Mig þekki Éa hiarta bitt: komdu
fram fyrir Mig í bæn í öllum aðstæðum,
biddu um að bætt verði fyrir skort á bænum
á þessari jörð; láttu bænir þínar vera
alvæpni25 þitt sem skvlir bér frá öllu því illa
sem reikar um^ í krina um bia. afvopnaðu
illa andann með ást. láttu kærleika vera
voon bitt. láttu frið vera ritaðan á enni21 þitt
svo að allir aeti séð bað." 5.4.89
Að biðja án afláts er að vera í fullkominni
einingu við Guð, það er að lifa ævarandi í
Guði og að Guð lifir ævarandi í þér. Það
er þegar þú þráir Guð, þig lengir og þyrstir
eftir Guði allan daginn. Það er þegar sái þín
er laus undan öllu sem heimurinn hefur að
bjóða og hugur þinn, hjarta þítt og sál þín
leita og þrá aðeins himneskan veruleika.
Bæn án afláts er þögul bæn, hún er samtal
hjarta við hjarta án orða eða orðræðu, um
er að ræða er íhugandi bæn og á sama
tíma að lifa æðsta boðorð Guðs.28
„Svörin við vandamálum þínum er að
finna í stöðugri bæn;29 láttu hana vera vopn
þitt, biddu með hjarta þínu, talaðu við Guð
á þennan hátt, Satan flýr í hvert sinn sem
þú kallar á Guð með ást.“ 2.8.91
UPPGÖTVAÐU GUÐ í ÞÖGN
Guð þarfnast þess að við séum hljóð og
auðmjúk og við þörfnumst þagnar til að
mæta Guðí, því við njótum nærveru Guðs
í þögninni. Já, Guð kallar okkur með ákefð
að finna sig að nýju í þögninni, eins og
Jesús sagði við mig í byrjun:
„Drekktu í þig Frið Minn og mettaðu
hjarta þitt í þessari þögn, njóttu þessara
náðarstunda og drekktu í þig sætleikann
sem Drottinn þinn býður þér.” 2.11.97
Við verðum að læra að vera hljóð
og taka okkur hvíld í Guði. í þeirri þögn
munum við eiga persónulegt stefnumót við
Guð og sál okkar mun njóta gleði í návist
Drottins31 og við tjáum ást okkar til hans
með aðdáun sem dætur óg synir. Það er
því ekki í gegn um stofnanir og stjórnsýslu
sem Guð opinberar okkur sjálfan sig,
heldur aðeins fyrir nálgun í þögn og íhugun
sem hann opinberar Óendanlega Ást sína
til okkar.
AÐ ÞEKKJA OG SKILJA GUÐ
Guð vill að við bekkium sig og skiljum
22Sbr. IMós 2.7: ...og blés lífsanda [ nasir hans. Þannig varð maðurinn lifandi vera.
Esek 37.9: Kom, andi, úr áttunum fjórum og blás á þessa vegnu menn svo að
þeir lifni við. Jóh 20.22: Og er hann hafði sagt þetta andaði hann á þá og sagði:
„Meðtakið heilagan anda...“
23Sbr. Jóh 17.20-23: að þeir séu eitt, eins og við erum eitt...
241Þess 5.17.
25Ef 6.11
26Sbr. Job 1.7 og 2.2
27Sbr. 2Mós 28.36-38
28Matt 22.34-40
29Kól 4.2: Verið stöðug í bæninni, vakið og biðjið með þakkargjörð
“Sálm 69.14: En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar... Sbr. 2Kor 6.2:
hagkvæm tfð, hjálpræðisdagur
31Sálm 37.4 og Post 2.28: Návist þín fyllir mig fögnuði
44 | bjarmi | júní 2017