Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 47

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 47
til alls heimsins. Um er að ræða árlegan viðburð síðasta laugardag maímánaðar. Nánar má fræðast um hvað þetta snýst á GlobalOutreachDay.com og lindin.is. AGAPE TIL ÍSLANDS Agape International, eða Campus Crucade for Christ vinnur þessa mánuðina að því að festa rætur á íslandi. Eins og seinna nafnið bendir til er einkum um að ræða kristilegt starf meðal stúdenta sem unnið er á samkirkjulegum grunni. Fulltrúar samtakanna frá Lettlandi og Frakklandi hafa dvalið nokkrar vikur á landinu á liðnu ári og reyna að fylgja tengslum sínum eftir í samráði við kirkjur og kristilega starfsemi á íslandi. í tengslum við bæði Hátíð vonar árið 2013 og Kristsdaginn 2014 voru heilmikil tengsl við CCFC í Sviss sem meðal annars lögðu sitt fram til að gera þessa atburði mögulega en umsjón þeirra var ( höndum svokallaðs Friðrikskapelluhóps. HILLSON LONDON MEÐ TÓNLEIKA í haust er von á tónlistar- eða lofgjörðarteymi Hillson kirkjunnar í London og er ætlunin að halda tónleika með þeim í Háskólabíói 13. október. Miðasala á midi.is fór vel af stað í byrjun júní og langt komið með að selja þá 900 miða sem í boði eru. BREYTINGAR í KÓPAVOGI Ýmsar breytingar hafa orðið á landslagi frjálsu safnaðanna á liðnum árum. Trúfélagið Krossinn heitir í dag Smárakirkja. Fasteign Smárakirkju og áfangaheimilisins við Hlíðasmára í Kópavogi var seld á liðnu ári og er nú óðum verið að breyta því í hótel. Smárakirkja fékk aðstöðu í Hjallakirkju fyrir samkomur í vetur en frá apríl á þessu ári hafa þau verið með sínar samkomur að Víkurhvarfi 1. Ýmsar breytingar hafa orðið á trúfélaginu Veginum við Smiðjuveg í Kópavogi á liðnum tveim árum. Vegna fjárhagsstöðu kirkjunnar var ekki stætt á að hafa Högna Valsson lengur á launaskrá. Kristilegu samtökin United Reykjavík fengu inni í húsnæði Vegarins og fjölgaði fólki úr þeim hópi innan raða safnaðarins og áhrif þess um leið. Nú hefur orðið þónokkur breyting á samsetningu forystunnar. Sum úr hópi trúfastra „Vegara“ í áraraðir kusu að yfirgefa kirkjuna og mörg þeirra eru komin yfir í Fíladelfíu. Aðrir sem verið hafa virkir í langan tíma sitja enn áfram og gegna forystu innan safnaðarins. Hálfdán Gunnarsson prentsmiður er forstöðumaður Vegarins í ólaunuðu starfi. VAXANDI OFSÓKNIR í INDLANDI Árásum á kristið fólk í næstfjölmennasta landi veraldar, Indlandi, virðist fara fjölgandi. Skráð tilfelli um ofsóknir fyrstu fjóra mánuði ársins voru 316 samkvæmt upplýsingum kristniboðssamtakanna Opnar dyr. Að baki standa yfirleitt harðlínuhindúar sem hafa ráðist gegn fullorðnu fólki jafnt sem börnum á götum úti, með hnefum og sverðum og lagt eld að byggingum. Oft er lítið um viðbrögð af hálfu lögreglu og fáir kæra sig um örlög þeirra lægst settu í landinu. (Tro og mission nr. 10, 2017) ÞRENGT AÐ KRISTNU FÓLKI í RÚSSLANDI Við fall járntjaldsins svokallaða árið 1991 batnaði trúfrelsi til muna í Rússlandi og hefur það verið virt að miklu leyti. f fyrra voru hins vegar sett ný lög sem þrengja að starfi trúarhópaog minni trúfélaga. Þáeru hömlur settar á umsvif kristniboða og prédikara sem koma utan frá. f stuttu máli má segja að ný lög komi niður á öllum trúfélögum nema rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni. Markmiðið er sagt vera að koma í veg fyrir starf harðlínumúslíma og öfgahópa en lögin koma niður á mörgum öðrum í leiðinni m.a. evangelísku fólki í landinu. Áherslan á rétttrúnaðarkirkjuna og vaxandi vinsældir hennar á liðnum árum er í takt við vaxandi þjóðernishyggju sem svo aftur bitnar beint og óbeint á mótmælendum sem eru taldir vera um 1% þjóðarinnar. (Utsyn nr. 7, 2017) DEKKRA ÚTLIT í TYRKLANDI OG INDÓNESÍU Tyrkir samþykktu í apríl þónokkrar breytingar á stjórnarskrá landsins. Sumir óttast að ríkið sé að færast í vaxandi mæli í átt frá lýðræði, sem geti með tímanum lent á trúarlegum minnihlutahópum, eins og kristnu fólki. Eins eru breytingar fyrirsjáanlegar í Indónesíu sem hefur haft umburðarlyndi gagnvart öðrum trúarbrögðum en íslam á stefnuskránni. Fólk sem tilheyrir trúarlegum minnihlutahópum eða litlum þjóðarbrotum getur ekki lengur gegnt mikilvægum embættum ( stjórn landsins. Sérfræðingar á sviði ofsókna á hendur kristnu fólki fylgist vel með framvindu mála í þessum tveimur löndum. (Ápne Dorer 6/2017) bjarmi | júní 2017 | 47

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.