Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 19
afhjúpa - þegar það fær rangt sæti í lífi
okkar. Ýmislegt gott getur auðveldlega
orðið æðsta markmið lífsins. Ef það gerist
mun það auðveldlega eyðileggja; ef ég næ
aldrei markmiði mínu verð ég í rauninni
aldrei ánægður eða sáttur. Það vita allir,
sem hafa til dæmis starfsframa sem
lífsmarkmið og hefur tekist að ná því. Og ef
ég næ ekki markmiði mínu mun það sem
ég leita aldrei bjarga mér. Þess vegna eru
hjáguðir hinna kristnu og ómeðvitaðir guðir
guðleysingjanna í raun og veru hinir sömu.
Við löðumst að því sama og reynum sömu
vonbrigði og svik. Hvað svo sem ég vonast
eða sækist eftir þá mun það aldrei svala
dýpsta þorsta lífsins. Aðeins Guð getur
slökkt hann. Og þá skiijum við betur þriðju
staðhæfinguna.
Þess vegna gengur það upp að
„lögmálið getur orðið að fagnaðarerindi."
Boðorðið sem Guð gefur, „þú skalt ekki
hafa aðra guði en mig,‘‘ er krafa sem getur
orðið að gjöf, samkvæmt Lúther. Þegar ég
leita hjáguðanna og verð fyrir vonbrigðum
- því þeir lofa miklu en standa við lítið - og
átta mig á því að til er Guð sem leitar mín,
elskar mig, kemur nærri mér í Jesú Kristi,
sem hefur greitt fyrir öll mín mistök og
heimskulegu lífsmarkmið - þá er það lausn
og sannarlega fagnaðarerindi að ég skuli
ekki þurfa á öðrum guðum að halda við hlið
hins eina sanna Guðs. Að vera minntur á
hinn eina sanna Guð er fagnaðarerindi sem
hinn kristni og guðleysinginn þurfa báðir á
að halda.
Með Guð sem hinn eina Guð í lífi mínu
mun allt það góða sem Guð gefur og lætur
mig þrá, fá sinn rétta sess. Starfsframi
minn verður bara starfsframi, en hvorki
sjálfsmynd mín eða líf. Eignir mínar verða
bara eigur, en ekki markmið lífsins og
tilgangur. Ég átta mig á því að ég get bæðí
lifað með og án hins góða sem ég leita eftir,
þegar ég á æðstu gæði lífsins: Samfélag
við Guð í Jesú Kristi. Það gefur frelsi.
Þýtt úr sænska blaðinu Budbáraren
nr. 4 , 2017 og birt með góðfúslegu leyfi
útgefanda, EFS. Þýðing: RG.
Þýðing: Þorgils Hlynur Þorbergsson