Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 14

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 14
Atf kirkjju og krnstni í Vestmr-Japan RAGNAR GUNNARSSON Japan er meðal þeirra landa heims þar sem kristin trú stendur mjög veikt en aðeins 1% eða rúmlega það telst til kristinnar trúar. Japanir eru um 127 milljónir og því er kristið fólk um 1,3- 1,8 milljónir sem dreifist um landið og á margar kirkjudeildir. Nærri helmingur er rómversk-kaþólskir og hinn helmingurinn mótmælendur. Rétttrúnaðarkirkjan telur um 30 þúsund manns. Þegar ferðast er um landið tekur Vesturlandabúinn gjarna eftir því að fátt er um kirkjur og krossmerki á byggingum. Þrátt fyrir þetta hafa átta af forsætisráðherrum landsins síðustu hundrað árin verið kristnir. Lengi vel var alið á andúð í garð kristni á þeim forsendum að hún væri vestræn trú. Kirkjusaga Japans segir frá hörðum ofsóknum á öldum áður í kjölfar kristniboðs rómversk-kaþólsku kirkjunnar í landinu, einna verstar voru þær í kringum aldamótin 1600. Annars eru Japanir fastheldnir og vilja ekki miklar breytingar nema þær gerist hægt. Kristinna áhrifa gætir að einhverju leyti í samfélaginu. Kristnar trúarhátíðir, einkum jólin, hafa eignast viðskiptalega umgjörð, eins og reyndin er víðar. Engir opinberir frídagar eru þó um jólin. Margir vilja gifta sig í kírkju eða kapellu og þess vegna má víða sjá giftingarkapellur í Japan, gjarnan stutt frá hótelum svo stutt sé í veisluna á eftir. Starfsemi mótmælenda í landinu hefur farið vaxandi frá heimsstyrjöldinni síðari og nokkur vöxtur verið, sérstaklega á árunum fram til 1960. Hið japanska biblíufélag var stofnað fyrir 80 árum, árið 1937. Múslímar eru mikill minnihlutahópur og virðast ekki sérstaklega velkomnir til Japans. KRISTNIBOÐ ÍSLENDINGA íslendingar hafa haft kristniboða í Japan frá árinu 2010. Það eru hjónin Katsuko og Leifur Sigurðsson. Starfið er unnið í samstarfi við Norska lútherska kristniboðssambandið og kristniboðarnir eru starfsmenn evangelísk-lúthersku kirkjunnar í Vestur- Japan (WJELC). Starfið, eins og nafnið bendir til, er unnið í vesturhluta landsins, vestur af höfuðborginni Tokyo. Miðstöð kristniboðsins og að miklu leyti kirkjunnar er í Kóbe. Þar eru skrifstofur, kirkja, leikskóli, biblíuskóli, guðfræðiskóli og fjölmiðladeild. Kristniboðssambandið (SÍK) er í samstarfi við Norðmenn, NLM (Norsk luthersk misjonssamband), sem hefur verið í landinu í tæp 70 ár. Þeir hafa verið í samstarfi við Finna (FLOM) og með okkur frá 2010. Önnur finnsk kristniboðssamtök, FLM, hafa verið í beinu samstarfi við kirkjuna, en starfið er að mestu unnið í nafni evangelísk-lúthersku kirkjunnar í Vestur-Japan en kirkjan er ávöxtur þessa starfs. Nú teljast rétt tæplega fjögur þúsund manns í kirkjunni. Starfsstöðvar og 14 | bjarmi | júní 2017

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.