Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.06.2017, Page 26

Bjarmi - 01.06.2017, Page 26
„ÞÚ HEFUR SLÍKAR ÁHYGGJUR AÐ ÆTLA MÆTTI AÐ GUÐ VÆRIEKKIALMÁTTUGUR OG GÆTIEKKI SKAPAÐ TÍU AÐRA DOKTORA MARTÍNUSA. HÆTTU ÞESSUM ÁHYGGJUM, ÉG HEF EINN SEM SÉR UM ÁHYGGJUR MÍNAR, HANN LIGGUR íJÖTU OG ER VIÐ BRJÓST MÓÐUR SINNAR, EN SITUR UM LEIÐ TIL HÆGRI HANDAR GUÐIFÖÐUR ALMÁTTUGUM: hendur í skauti og horft á konu sína leysa vandamál. Lúther hafði sem munki verið falin fjármálastjórn og mörg stjórnunarstörf innan sinnar reglu og þannig voru þau bæði vön að stjórna. Mikið hefur verið látið með hversu gjafmildur Lúther var og höfðu sumir á orði að hann hefði hagðað sér eins og fransiskanamunkur og gefið allt frá sér í ábyrgðarleysi. Hér ber að gera skýran greinarmun á ábyrgðarleysi og gjafmildi. Lúther talar að vísu oft um að hann eyddi meira en þau hjónin þénuðu, en hafa ber í huga umfang þess rekstrar sem þau báru ábyrgð á. Ekki má heldur gleyma að klaustrið var hálfgert byggingarsvæði öll hjúskaparár þeirra. Gera þurfti umtals- verðar breytingar á klausturbyggingunni til þess að aðlaga það heimilisrekstrinum. Að sjálfsögðu var verkaskiptingin nokkuð skýr, en það er mikill misskilningur að álíta sem svo að daglegt heimilislíf og uppeldi barnanna hafi alfarið fallið Katarínu 22CI 2, 352. 23WA TR 1,1/ (nr. 49). 24WA TR 1,554 (nr. 1110). í skaut. Svo var ekki. Lúther talar um það sem sjálfsagðan hlut að skipta á börnunum sínum og þvo bleiur: „Þegar einhver skiptir á barni eða þvær bleiur og annar hæðist að því, þá skal sá vita að Guð, englar og öll sköpun hans hlæja og gleðjast yfir því verki. Því þeir sem hæðast sjá bara verkið, en ekki þá staðreynd að hér er verið að sinna ábyrgðarmesta starfi í heimi.“22 Vegna anna ber að gera ráð fyrir að Lúther hafi ekki verið „á kafi“ í barnauppeldinu, en óneitanlega bregður oft fyrir tilvísunum í heimilislífið í ritum hans. Lesandinn fær á tilfinninguna að börnin hafi setið við fætur hans á skrifstofunni þegar hann vann þar. í skrifum hans má sjá innskot þar sem hann segir „nú kallar Kata“ og því verði hann að gera eitt og annað sem tilheyrði daglegu heimilishaldi. í bréfum sínum getur hann þess líka oft hvað það er sem skorti helst og hvernig best sé að útvega það. Stundum biður hann um hluti beinum orðum. Þá talar hann oft um deilur þeirra um húshaldið, en segir svo að Kata sé mun lagnari í röksemdum en hann, hún sé herra sinn og Móse, sjálfur sé hann aðeins Aron. Þegar Katarina lagði í stórframkvæmdir við klaustrið enn einu sinni varð Lúther nóg um framkvæmdagleðina. En hann vissi vel hvern hann átti í henni og sagðist ekki myndu skipta á „Kötu sinni fyrir allt Frakkaríki eða Feneyjar".23 í einni borðræðu sinni segir hann: „Kata, þú átt trúaðan mann sem elskar þig; þú ert keisaraynja. Viðurkenndu það og þakkaðu Guði.“24 BRÉFASKRIFTIR Eins og áður er getið eru ekki margar heimildir til um líf þeirra hjóna eftir Katarínu, fyrir utan nokkur bréf. Eitt þeirra skrifar hún systur sinni stuttu eftir andlát Lúthers þar sem hún kemst svo að orði: „Ég er 26 | bjarmi | júní 2017

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.