Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 37

Bjarmi - 01.06.2017, Blaðsíða 37
 J/ m 7 m w ' # Jjjff 1 %\ 1 ■ - y* 1 \ OOM ;! r~ \ 1 u i \ \ i ^ Is l i iv eflingu Guðs ríkis með ýmsum hætti eða að svæfa okkur til að gera okkur valdalaus og lítils eða einskis nýt. Það sem er sérstaklega merkilegt við mig er að ég varð fyrir eldingu fyrir nokkrum árum. Ég beið af mér rigninguna eins og fleiri, sumir inni í lítilli verslun en ég beið rétt fyrir utan undir litlu bárujárnsskýli. Skyndilega laust niður eldingu með háum hvelli og ég fann strauminn fara um mig um leið og ég féll og varð hálfmáttlaus við. Meðan ég var að ranka við mér var kona að kanna með mig og sagði við hina: „Hann er örugglega dáinn, það lifir enginn þetta af.“ En ég stóð upp stuttu síðar við mikla undrun. í framhaldinu fór ég til læknis en ég var með mikinn seyðing vinstra megin í líkamanum. Hann sagði við mig að eiginlega ætti ég að vera dáinn, það væri afar sjaldgæft að nokkur lifði svona lagað af. Ég var slæmur vinstra megin í tvö eða þrjú ár, en hef síðan verið góður. Annan atburð mætti nefna: Þegar ég var á leið til Úganda eitt sinn sá ég skyndilega slöngu sem var búin að reisa sig upp og tilbúin til atlögu þegar ég nálgaðist á mótorhjólinu. Mér brá og ég beygði frá, vildi ekki verða henni að bráð, en fyrir bragðið lenti ég iila utan vegar og datt. Slangan kom í átt til mín en snéri svo frá og ég sá hana ekki aftur. Enn eitt dæmið um að vel fór þó svo mjög illa hefði getað farið. Guð hefur verið mér góður og gætt mín. Viltu segja eitthvað fleira við vini kristniboðsins á íslandi? Já, ég vil undirstrika þakklæti okkar. Sérstakiega vil ég þakka fyrir myndarlegt framlag Kristniboðssambandsins til útbreiðsluverkefnisins. Án stuðnings ykkar gætum við ekki mikið gert. Þetta greiðir laun starfsmanna sem eru sex. Launin eru reyndar ekki há. Nú þegar þið hafið ekki fasta kristniboða á svæðinu, þá erum við ykkar kristniboðar. Verkefnið greiðir einnig ferðakostnað, annaðhvort með litlum rútum eða á mótorhjólum. Við þökkum fyrir að hafa getað keypt mótorhjól vegna fjárframlaga frá ykkur. Þetta allt ber ávöxt í lífi þeirra sem fá að heyra fagnaðarerindið. Svo vil ég leggja áherslu á fyrirbænir ykkar fyrir starfinu. Þetta er erfið og andleg barátta og stundum er freistandi að gefast upp. Við þurfum á bænum ykkar að halda! Við þurfum að standa saman og vinna saman. Þess vegna er ómetanlegt líka þegar kristniboðarnir koma í heimsókn og eru með okkur nokkrar vikur. Við eigum samfélag, ræðum starfið og allir leggja sitt fram til að fagnaðarerindið nái út til annarra. Bjarmi þakkar Nicholasi spjallið og biður honum og starfinu öllu í Þókothéraði og nágrenni Guðs blessunar. bjarmi | júní 2017 | 37

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.