Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 43

Bjarmi - 01.06.2017, Qupperneq 43
Eitt sinn gaf Faðirinn þennan boðskap: „Án Mín er borð þitt tómt en með Mér er borð þitt fullt." Og Jesús sagði: „Án Mín munt þú lifa eins og heimurínn; með Mér munt þú lifa eins og á Himnum, án Mín verða eiginleikar þínirheimsins en með Mér verða eðlisþættir þínir Mínir; vertu í Mér, vertu rótföst13 ÍMér, settu mig í fyrsta sæti og gefðu mér tíma þinn." 30.5.95 IÐRUN OG FYRIRGEFNING í boðskapnum frá Kristi kemur oft fram ákall til þessarar kynslóðar um að iðrast. Iðrun, segir Drottinn, er að afneita syndinni; að sættast við Guð eftir tímabil uppreisnar og misgjörða; iðrun er hliðið sem leiðir sálinafrá myrkri til Ijóss, segir Drottinn. Því einlægari iðrun, þeim mun meiri er vinátta Guðs. Og í einum skilaboðum segir Drottinn að hvert orð sem við segjum við hann í trúnaðartrausti dragi vináttu hans nær okkur því að vinátta hans siglir í kjölfarið í réttu hlutfalli við iðrunina. Þegar við erum einlæg og reiðubúin að iðrast mun Kristur sem er Óendanleg Ást fyrirgefa fyrirvaralaust. Hér er einn boðskapur af mörgum sem fjallar um hve fljótur hann er að fyrirgefa og reiðubúinn að réttlæta okkur ef að við erum reiðubúin að iðrast... „Hvers vegna óttast þú að horfast í augu við Mig? Mín elskaða, Ég mun ekki áfellast þig vegna synda þinna; Ég fyrirgef þér núna; Ég mun ekki loka dyrunum á þig; sannarlega segi Ég þér að Ég get fyrirgefið milljón sinnum og stend fyrir framan þig með opinn faðminn og býð þér að koma til Mín og finna ástina sem Ég á til handa þér, leyfðu mér að vekja hjarta þitt; komdu og kynnstu Mér; komið, öllþið sem forðist Mig og óttist Mig; öll þið sem þekkið mig ekki; komið nær Mér og þið munið skilja að Ég er Guð Kærleikans, fullur af umhyggju og miskunn. 18.3.87 Eins og ég sagði áðan er Jesús mildur og góðviljaður og hann mun ávallt leitast við að réttlæta okkur, sama hversu vansæl og óverðug við erum; jafnvel þó að við eigum það ekki skilið mun Jesús alltaf leitast við að gefa okkur annað tækifæri, hann sest niður með þeim sem síst eiga það skilið og þeim vansælu og minnir þau á hvaðan þau koma í einfaldleik, auðmýkt og ást og hann mun kenna þeim og upplýsa hjörtu þeirra og gefa þeim von. Hér eru orð hans: „Nei, Ég mun ekki vanrækja neinn; Ég mun sitja með þeim sem finna til undan byrði sinni [þau vansælu, fyriríitleguj og þau munu ekki vera hrædd við Mig; Ég mun verða vinur þeirra, berfættur, og segja þeim að allt frá upphafi hafi þau ekki verið föðurlaus og ef þau hafi aldrei skilið lögmál himnanna sé það vegna þess að enginn var til staðar til að segja þeim frá; enginn sagði þeim heldur að þau séu niðjar hins Almáttuga; þá mun Ég safna þeim í kring um Mig eins og lömbum, þétt við Hjarta Mitt og Ég mun næra þau frá Vörum Mínum, líkt og ég væri að hvísla leyndarmáli: FAÐIR VOR; þá mun Ég segja þeim að KÆRLEIKUR er fyriraugum þeirra; Brauðið Lifandi er einmitt Sá sem situr meðal þeirra, Sá sem lifði og dó fyrir þau er að tala við þau núna; Sá sem upplýsti Himnana með Anda sínum og allir hlutir urðu til fyrir Hann14 er einmitt þarna beint fyrir framan þau; Ég mun rétta út hönd mína til allra sem ganga framhjá: „Hver er fyrirlitinn og lítilsvirtur af samfélagi ykkar? Komi hann hingað þessa leið;“ Ég mun ekki láta neina hungraða, neina fátæka fram hjá mér fara, því að Blessanir Mínar eru auðugarí5 og Ást Mín fullnægjandi; Mínir vegir eru yndislegir vegir og allar götur Mínar leiða til eilífs Lífs. 16“ 11.10.93 AÐ ELSKA Drottinn segir að á dómsdegi munum við öll verða dæmd eftir mæli kærleikans sem við höfðum hér á jörðu. Að elska er að gera vilja Guðs. „Segðu þeim og komdu þeim í skilning um að kærleikur er vegurinn til himins; kærleikur sigrar hjörtu og stækkar Ríki Mitt; kærleikur er lykillinn að því að binda endi á þetta fráfall; kærleikur er gefinn ykkur fúslega; biðjið um gjöf kærleikans og Ég mun gefa ykkur hann; Kærleiksstef Mitt gef Ég öllum þjóðum og þeim sem vilja heyra munu heyra; Jesús sagði: „Komið aftur til Mín af öllu hjarta og látið bænir ykkar ná Mér17 því að það er ekki sá sem segir við Mig: Drottinn, Drottinn! sem mun ganga inn í himnaríki heldur sá einn er gerir vilja Föður Míns sem er á Himnum.18 Talið því með Kærleika og Ég mun heyra! Gefið með kærleika og Ég mun þekkja ykkur; biðjið með kærleika og dyr ríkis míns munu Ijúkast upp fyrir ykkur til að taka á móti ykkur!19 starfið í kærleika20 svo að Ég geti sagt við ykkur dag einn: „Þið eruð Mín21, þið eruð niðjar Mínir, komið til Föður ykkar!" 12.5.90 HEILAGUR ANDI Það er fyrir Heilagan anda sem við getum tekið við gjöf Kærleikans og þekkt vilja Guðs. Drottinn segir að við verðum að deyja sjálfum okkur, deyja vilja okkar og iðrast og síðan getum við gefið Heilögum anda rúm í sálu okkar til að leggja okkur undir sig og gagntaka okkur og við verðum gagntekin af Heilögum anda og Heilagur andi mun fylla okkur gjöf kærleikans. En ef við iðrumst ekki, deyjum sjálfhverfu lífi 13Ef 3.17 og Kól 2.7. 14Róm 11.36: Frá honum, fyrir hann og tíl hans eru allir hlutir. 15Sbr. Orðskv 10.22: Blessun Drottins auðgar... 150rðskv3.17: Vegir hennar [spekinnar] eru yndislegir vegir og allar götur hennar liggja til velfarnaðar. 17Sbr. 2Kron 30:27: Að lokum risu Levítaprestarnir á fætur og blessuðu fólkið. Guð heyrði hróp þeirra og bæn þeirra komst til hans heilaga bústaðar, allt til himins. 1sMatt 7.21 19Sbr. Matt 7.7-8 20Míka 6.8 og 1 Jóh 3.8 21Jes 43.1 bjarmi | júní 2017 | 43

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.