Bjarmi - 01.06.2017, Page 45
sig og finnum32 eða smökkum, brögðum
á, sætleika sínum. Það er eitt að trúa á
Guð og annað að þekkja Guð. Margir trúa
á Guð en jafnvel illir andar trúa á Guð en
elska hann ekki; Svo margir tala um Guð
en aðeins mjög fáir þekkja hann og skilja
hann.
„Þáspyrð þú: Og hvaðeraðskiljaGuð?
Að skilja Mig er grundvallarregla Viskunnar;
það er að viðurkenna Mig sem Guð þinn
og óttast Mig... að óttast Mig er að forðast
allt illt og einnig að sjá Mig með þínum
andlegu augum á meðan þú ert enn á
jörðinni. Það er grundvallaratriði fyrir ykkur
öll að hafa fundið Mig [bragðað á Mér] á
meðan þið eruð á jörðinni." 20.1.2001
Skortur á guðsþekkingu er synd. Þegar
við þekkjum Guð vitum við það vegna
þess að það verður umbreyting innra með
okkur og það er engu líkara en að við lifum
nú þegar á himnum þó við séum enn á
jörðinni.
Hjá Jeremía spámanni segir (9.22-23):
Svo segir Drottinn:
Hinn vitri hrósi sér ekki af visku sinni,
hinn sterki hrósi sér ekki afafli sínu
og hinn ríki hrósi sér ekki afauði sínum.
Nei, sá sem vill hrósa sér hrósi sér afþví
að hann sé hygginn og þekki mig.
Drottínn segir um þetta efni í boðskap
sínum til okkar:
„Komdu og lærðu um merkingu
þessara orða: „Það sem ég vil er kærleikur,
ekki fórnir; það sem ég vil er þekkina á
siálfum Mér. ekki brennifórnir;33 Ég mun
ekki vera strangur við neinn ef Ég finn hjá
þeim fúsleika; hefur þú ekki heyrt: „Maður
er tekinn gildur með því sem hann hefur
fram að færa;“ þannig að þið sem lesið Mig
og eru verk handa Minna, komið til Mín eins
og þið eruð og Ég mun fullkomna ykkur í
fullkomnum Kærleika Mínum. “25.9.97
Ég mun gagntaka hjarta þitt svo að
Ég geti fengið frá því sjaldgæfasta og
fíngerðasta ilm sem hugsast getur; síðan
mun Ég, til að gefa Heilagleika Mínum
angan, eins og einhver væri með gullskál
fulla af reykelsi í útréttum höndum, lyfta
hjarta þínu upp og láta þessi sjaldgæfu
ilmefni þyrlast yfir jörðina og dreifa sætum
ilmi þínum allt í kring um Mig, Mér til gleði,
og til að gleðja alla heilaga og englana
á himnum; gleði Mín mun verða slík að
henni verður helst líkt við brúðkaupsdans;
munnurengla Minna mun verða fylltur hlátri
og varirþeirra söng; og Ég mun, í fagnandi
gleði, breyta hjarta þínu, sem ekkert ert, í
gimstein, og smyrja þig, gimsteininn minn,
og biessa þig með hendur Mínar hátt upp
hafnar og hjarta þitt íþeim... “34 25.9.97
VIÐ SAMAN: ÉG í ÞÉR OG ÞÚ í MÉR
Eitt af því allra mikilvægasta sem Guð
hefur lagt mér á hjarta er eining sálarinnar
við skapara sinn og frelsara. Þannig er
Jesús Kristur í mér og ég í honum eins og
grein á vínviðinum sem ekki getur lifað án
þess að vera á stofninum.35 Guð er ekki
bara með mér þegar ég sit við að skrifa
boðskapinn sem ég heyri með mínum
innri eyrum. Jesús fer með mér að sinna
eldhúsverkunum. Hann er með okkur við
matarborðið og situr við hlið mér í strætó.
Og þannig talar hann til okkar allra: Elskaðu
mig, elskaðu náunga þinn því ég elska þig
- eins og þú ert.
^Sálm 34.9: Finnið og sjáið að Drottinn er góður... Sálm 119.103: Hve sæt eru fyrirheit þín gómi mínum...
“Sbr. Míka 6.6-8
^Matt 5.48: Verið þvi fullkomin eins og faðir yðar himneskur er fullkominn
“Jóh 15.1-10
Hjar+ans [oakkir fyrir samúáarkveðjur og hlýhug
vegna andló+s móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu, Vilborgar Jóhannesdó+tur.
Þökkum enn fremur s+uðning við þau mó lefni sem
henni voru kær.
Guð blessi ykkur öll.
Gunnar Jóhannes Gunnarsson,
Sigurjón Gunnarsson, Ragnar Gunnarsson, Guðlaugur
Gunnarsson, Ragnhildur Gunnarsdót+ir, Bjarni
Gunnarsson og fjölskyldur.