Bjarmi - 01.06.2017, Page 46
Endurútgáfa á bák Rolands Bain+on:
Martemn Lúiher
í tilefni af fimm alda afmæli siðbótarinnar
var lagt til við Salt ehf að endurútgefa
bókina Marteinn Lúther (á ensku Here I
Stand) eftir Roland Bainton í þýðingu sr.
Guðmundar Óla Ólafssonar. Bókin kom
út árið 1984 og hefur verið uppseld um
nokkurt skeið.
Til að draga úr áhættu hefur verið
ákveðið að láta endurprentun ráðast af því
hvort tekst að selja að minnsta kosti 50
eintök fyrirfram fyrir 15. ágúst. Takist það
verða prentuð 250-300 eintök og bókin
gefin út sem kilja. Bókin er 362 blaðsíður
með 86 tréristum.
Bókina má panta með tölvupósti
á ragnar@sik.is. Gefa þarf upp nafn,
heimilisfang og kennitölu og að erindið
sé að panta bókina. Verð er 4.500 krónur
með sendingarkostnaði til þeirra sem
panta fyrirfram.
HÉÐAN OG ÞAÐAN
NÝTT ALFA-EFNI
Alfa-námskeið hafa nú verið haldin í
næstum 22 ár á (slandi og trúlega hafa
um fimm þúsund manns setið námskeiðið,
en þátttaka var eflaust mest kringum og
eftir aldamótin. í tengslum við námskeiðin
voru gefin út námshefti, bæklingurinn Hver
er Jesús?, námsbókin Spurningar lífsins
og efni til notkunar í eftirfylgd, Líf á nýjum
nótum (Filippíbréfið) og Lífið er áskorun
(Fjallræðan) en höfundur þessara rita er
Nicky Gumbel, sóknarprestur Holy Trinity
Brompton í Lundúnum.
Alpha
í fyrra var ákveðið að uppfæra
námskeiðið með útgáfu á nýju efni sem
þá byggir á því gamla, en með styttri,
hnitmiðaðri og fjölbreyttri framsetningu.
Kallast það Alfa Film Series (AFS) sem má
kalla Alfa-þáttaröðina. Þátttakendur horfa
saman á um hálftíma þátt þar sem bæði
Nicky Gumbel og ýmsir aðrir koma fram
með sitt sjónarhorn og vitnisburð. Þættirnir
hafa fengið afar góða dóma og hafa verið
þýddir og textaðir á íslensku af Kristjáni Þór
Sverrissyni. Aldrei hefur verið auðveldara
og skemmtilegra að halda Alfa-námskeið.
Hafið gjarnan samband við skrifstofu
Salts ehf og Kristniboðssambandsins um
frekari upplýsingar. Einn þessara þátta
með íslenskum texta er aðgengilegur
á Youtube-síðu Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga.
Einnig er verið að kanna með þýðingu
og textun á Unglinga-Alfa sem sumir
prestar þjóðkirkjunnar hafa áhuga á að
nýta sér við fermingarundirbúning. Efnið er
aðgengilegt og mjög vel unnið.
ALÞJÓÐLEGI
ÚTBREIÐSLUDAGURINN
Kristilega útvarpsstöðin Lindin hafði
forgöngu um að vekja athygli á og hvetja
fólk til að nýta sér svokallaðan alþjóðlegan
útbreiðslu- eða trúboðsdag sem minnst
var víða um heim laugardaginn 27. maí
síðastliðinn. Hugmyndin var að hvetja fólk
til að tala og vitna um trú sína og boða
fagnaðarerindið. Fjölmargar kirkjur og
kirkjuleg samtök í samtals 193 löndum
heims sameinuðust í að vekja athygli á
þeim tækifærum sem okkur bjóðast til
að bera vitni og ræða um trú okkar - og
að láta þau ekki okkur úr greipum ganga.
Lindin lét einnig þýða og gefa út bæklinginn
Þrjú skref til að hjálpa fólki og hvetja það
í þessu efni. Hugsjónin er að allir nái til
einhvers og þannig náum við sameiginlega
46 | bjarmi | júní 2017