Fréttablaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 16
Ásta setur kollagen-duftið út í kaffið á morgnana og tekur svo ráðlagðan dagskammt af Joint Rewind-hylkjunum. Stirðleikinn í liðum hennar hefur minnkað það mikið að nú getur hún hreyft sig
meira en áður og ef hún sleppir kollageninu finnur hún að hún versnar fljótt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ásta Kristjánsdóttir, grunn-
skólakennari í Hofsstaðaskóla
í Garðabæ, er fædd og uppalin í
Vestmannaeyjum, þar sem hún
æfði handbolta og badminton.
Þegar hún var tvítug greindist hún
hins vegar með slæma liðagigt
sem varð til þess að hún þurfti að
hætta að æfa íþróttir. Með inntöku
á kollageninu frá Feel Iceland hefur
stirðleiki í liðum hennar minnkað
til muna, sem gerir henni kleift að
hreyfa sig mun meira en áður. Ásta
hefur líka fundið fyrir jákvæðum
breytingum á meltingu, hári og
nöglum.
Liðagigtin kom á óvart
„Liðagigtin byrjaði kröftuglega í
f lestum liðum líkamans og ég átti
erfitt með einföldustu hreyfingar
og flestar daglegar athafnir. Ég
átti ég erfitt með að trúa því að ég,
tvítug, verandi á fullu í handbolta,
væri með liðagigt. Liðagigtin lýsir
sér á þann hátt að hún vill ráða, þú
veist í raun sjaldnast hvað næsti
dagur ber í skauti sér varðandi
heilsuna,“ segir Ásta. „Ég bólgna
auðveldlega upp á hinum ýmsu
stöðum og stundum er ég hölt fram
undir hádegi en svo lagast stirð-
leikinn oft þegar líður á daginn.
Gigtin mín er líka mjög orkufrek,
en ég er einnig með vefjagigt og
hún tekur sinn toll.“
Hreyfir sig eins og hún getur
„Liðagigtin hefur haft mjög mikil
áhrif á líf mitt, ég þráaðist við í
nokkurn tíma að æfa handbolta
eftir að ég greindist en það gekk
ekki, þrátt fyrir að prófa hin ýmsu
lyf,“ segir Ásta. „Ég sneri mér því
að því að þjálfa handbolta hjá
Stjörnunni, liðinu sem ég var að
spila hjá þegar ég greindist, og
gerði það í fimmtán ár.
Ég hef alltaf haft áhuga á
íþróttum, hreyfingu og heilsu-
samlegu líferni og enn frekar
þegar ég þarf að hafa fyrir því að
hafa heilsuna í lagi. Þrátt fyrir að
hafa hætt keppnisíþróttum þá hef
ég alltaf verið dugleg að hreyfa
mig eins og aðstæður leyfa hverju
sinni,“ segir Ásta. „Núna syndi ég,
geng og fer í „power Pilates“ þegar
heilsan leyfir.
Ég hef farið í þó nokkrar
aðgerðir á útlimum til þess að
stemma stigu við hinum ýmsu
fylgikvillum liðagigtarinnar.
En ég hef líka lært mjög mikið
á þessu, eins og að góð heilsa sé
ekki sjálfsögð og maður þarf að
vinna í henni sjálfur þrátt fyrir
sjúkdóma,“ segir Ásta. „Ég hef líka
verið heppin með fagfólk sem
hefur hjálpað mér, eins og gigtar-
lækna og sjúkraþjálfara og ég er
afar þakklát fyrir það. Ég hef ein-
mitt fengið að heyra það frá þeim
að ef ég væri ekki svona dugleg
að gera allt sem ég er að gera og
hugsa svona vel um mig þá væri ég
mun verr á mig komin.“
Áhugasöm um íþróttir og heilsu
„Við fjölskyldan höfum verið
samstíga í öllu íþróttatengdu og
hef ég verið í f lestum nefndum og
foreldraráðum í kringum hand-
bolta- og fótboltaiðkun dætra
minna, ásamt því að sinna ýmsum
stjórnarstörfum innan Stjörn-
unnar,“ segir Ásta. „Það er ótrúlega
gefandi og jákvætt að getu stutt við
börnin sín á hliðarlínunni og svo
kynnist maður svo mörgu frábæru
fólki í kringum íþróttirnar.
Í starfi mínu hef ég fengið
tækifæri til þess að kenna meðal
annars slökun og hugleiðslu, leið-
togaþjálfun og ýmislegt annað
sem tengist líkamlegri og andlegri
heilsu og skiptir miklu máli, en að
mínu mati ætti að vera boðið upp á
slökun í öllum skólum,“ segir Ásta.
„Ég er einnig jóga nidra kennari
ásamt því að hafa lagt stund á
krakkajógakennaranám. Það
hefur verið frábært að sjá börnin í
skólanum vaxa og dafna í þessari
vinnu og upplifa hvað þau hafa
náð góðum tökum á slökun og
hugleiðslu. Einnig er ég þjálfari hjá
KVAN þar sem ég hef meðal ann-
ars kynnt mínar aðferðir í kennslu
í leiðtogaþjálfun og miðlað til
annars fagfólks.“
Versnar fljótt án kollagensins
„Ég kynntist kollageninu frá Feel
Iceland í gegnum hana Helgu
Lind, Pilates-kennarann minn.
Hún mælti með að ég myndi prófa
það til að sjá hvort það hefði áhrif
samhliða lyfjum og öðrum með-
ferðum,“ segir Ásta. „Ég er alltaf
bjartsýn á að fá bætta heilsu og
fannst áhugavert að prófa, því ég
hef leitað margra leiða til þess að fá
betri heilsu.
Ég set kollagen-duftið út í kaffið
á morgnana og tek svo ráðlagðan
dagskammt af Joint Rewind-hylkj-
unum. Eftir að hafa tekið kolla-
genið í tvo mánuði fór ég að finna
mun. Ekki eingöngu í liðunum,
heldur einnig á meltingunni, hári
og nöglum,“ útskýrir Ásta. „Með
því að taka inn Feel Iceland kolla-
genið reglulega hefur stirðleiki
minnkað til muna, sem veldur því
að ég get hreyft mig meira.
Mesta muninn finn ég samt
þegar ég hætti að taka það inn. Þá
kemur yfirleitt fljótt í ljós hvaða
áhrif þetta hefur á mann,“ segir
Ásta. „Kollagenið er því orðið hluti
af minni morgunrútínu og er einn
af fjölmörgum þáttum sem ýta
undir bætta heilsu.“ ■
Feel Iceland vörurnar fást meðal
annars á eftirtöldum stöðum:
Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyfjum og
heilsu, Hagkaupum, Fjarðar-
kaupum, Apótekaranum, Fríhöfn-
inni, Jurtaapótekinu, Krónunni og
Nettó. Sjá nánar á feeliceland.com
Ég set kollagen-
duftið út í kaffið á
morgnana og tek svo
ráðlagðan dagskammt af
Joint Rewind hylkj-
unum.
Ásta Kristjánsdóttir
2 kynningarblað A L LT 9. febrúar 2022 MIÐVIKUDAGUR