Fréttablaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 09.02.2022, Blaðsíða 22
Sem dæmi má nefna að skipting kynja innan Ský endur- speglar vel tölvugeir- ann á Íslandi en nú eru 33% félags- manna konur og 67% karlar. Arnheiður Guð- mundsdóttir Starri Freyr Jónsson starri @frettabladid.is Undirbúningur DiversIT hófst árið 2016 og hefur Arnheiður Guðmunds- dóttir, fram- kvæmdastjóri Skýrslutækni- félags Íslands (Ský), verið í vinnuhópnum frá upphafi fyrir hönd Ský. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Með því að fjölga konum og ungu fólki í upplýsinga- tæknigeiranum eykst fjölbreytni teyma og fleiri sjónarmið og hugmyndir koma fram. Þannig eykst framleiðni, arðsemi og nýsköpun fyrirtækja. DiversIT charter er sáttmáli sem vinnuhópur innan Evrópusam- taka tölvufélaga (CEPIS) stendur fyrir. Tilgangur sáttmálans er að minnka kynjamun í tæknistörfum með því að fjölga konum og þá sérstaklega í upplýsingatækni- geiranum enda ljóst að skortur er á fólki með tæknifærni í heiminum, segir Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Skýrslutækni- félag Íslands (Ský). Undirbúningur DiversIT hófst árið 2016 og hefur Arnheiður verið í vinnuhópnum frá upphafi fyrir hönd Ský. „Það eru fulltrúar frá átta löndum í hópnum og allt einstaklingar sem brenna fyrir að fjölga fólki og auka fjölbreytni starfsmanna í tæknistörfum. Þó að við á Íslandi stöndum framarlega miðað við flest hinna landanna getum við gert enn betur. Ísland á heiðurinn af nafninu DiversIT en IT stendur fyrir Information Technology og mætti tala um Fjölbreytt UT á íslensku.“ Geta bætt sig smám saman Sáttmálinn felst í því að fá sem flest fyrirtæki og stofnanir til að skuldbinda sig til að vera með áætlun og leiðir sem hvetja til aukinnar þátttöku og stuðnings fyrir konur í tæknigeiranum með ýmsum aðgerðum. „Konur eru innan við 20% starfsmanna í tækni- og stafrænum starfs- greinum en eru samt næstum helmingur tiltæks vinnuafls. Með Markmiðið að minnka kynjamun í tæknistörfum  því að fjölga konum og ungu fólki eykst fjölbreytni teyma og f leiri sjónarmið og hugmyndir koma fram og þannig eykst framleiðni, arðsemi og nýsköpun fyrirtækja. DiversIT sáttmálinn felur í sér þrjú stig, gull, silfur og brons, og þannig geta fyrirtæki bætt sig smám saman og byrjað vegferðina sem brons en stefnt á að vera hluti af gullhópnum.“ Fyrst með gullvottun Ský sótti um gullvottun í febrúar 2021 enda hefur félagið alltaf lagt sig fram að vera með fjöl- breytta starfsemi sem hentar öllum kynjum og aldri tengda tölvugeiranum, segir Arnheiður. „Sem dæmi má nefna að skipting kynja innan Ský endurspeglar vel tölvugeirann á Íslandi en nú eru 33% félagsmanna konur og 67% karlar. Auk þess leggjum við mikla áherslu á að fyrirlesarar á viðburðum Ský endurspegli fjölbreyttan hóp einstaklinga og erum við þar að ná góðum árangri með næstum helmingaskipti milli karla og kvenna. Einnig leggjum við áherslu á að fá breiðan aldurs- hóp til að starfa með okkur ásamt ólíkum bakgrunni til að auka enn á vídd félagsstarfsins og mikilvægt er að hafa unga fólkið sýnilegt.“ Mikil viðurkenning fyrir Ský Ský sér um að halda Bebras áskorunina árlega fyrir hönd Íslands og þar reynir Ský að vekja áhuga krakkanna snemma á tæknigeiranum með því að leysa skemmtileg verkefni þar sem not- ast er við rökfræði eins og notuð er við forritun, að sögn Arnheiðar. „UTmessan sem er okkar stærsti viðburður hefur einmitt sama markmið og DiversIT sáttmálinn en það er að hvetja sem flesta til að velja sér tæknistörf í framtíðinni. Við erum gífurlega stolt af því að félagið sé það fyrsta í heiminum til að fá Gull-aðild að sáttmálanum og er hún mikil viðurkenning á því starfi sem félagið stendur fyrir en Ský er fagfélag þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á tölvu- og tæknigeiranum.“ Þessa dagana er Ský að ganga frá samningi við CEPIS um að vera tengiliðir sáttmálans á Íslandi og mun það aðstoða íslensk fyrirtæki við að taka þátt í sáttmálanum. „Það er hægt að sækja um aðild að sáttmálanum núna strax í gegnum www.cepis.org og vonandi vilja sem flest fyrirtæki taka þátt og setja sér raunhæf markmið um að auka fjölbreytni starfsmanna í tölvu- og tæknistörfum.“ ■ Hver er munurinn á rafræna undirskriftarferlinu og því að undirrita í eigin persónu? Fjölmörg fyrirtæki á Íslandi hafa nú þegar tekið upp notkun raf- rænna undirskrifta eða íhuga nú hvort þær henti þeirra starfsemi. Það kemur ef til vill mörgum á óvart að slíkt bætir ekki ein- göngu upplifun viðskiptavina af þjónustunni til þeirra heldur getur jafnframt sparað fyrirtækjunum kostnað og gert starfsfólki kleift að sinna mikilvægari verkefnum en að eltast við pappír. Viðmið neyt- enda um hvað er „góð þjónusta“ hefur breyst mikið á skömmum tíma, um leið og rafrænar undir- skriftir eru að verða algengari. Undirritun í eigin persónu: Hvað kostar það raunverulega? Til að skilja muninn á hand- undirritun og rafrænni undirritun skulum við byrja á því að skoða betur hvern kostnaðarlið. Að skrifa undir skjöl á pappír felur í sér ýmsan annan kostnað en pappírskaup. Oftast eru þetta útprentuð skjöl sem fela þá í sér kostnað við prentunina sjálfa eins og viðhald á prentara og kaup á bleki. Stundum þarf aðgang að ljósritunarvél og skanna og í einhverjum tilfellum þarf að senda skjöl með pósti til að fá þau undirrituð. Til viðbótar er oftast mesti kostnaðurinn falinn í starfs- krafti einstaklinganna sem sinna umsýslu skjalanna. Segjum að þitt fyrirtæki undir- riti 50 skjöl á mánuði, hvert þeirra innihaldi 2 blaðsíður og það þurfa að vera tvö eintök af hverju skjali. Þetta gerir 200 blaðsíður til viðbótar við prentkostnað. Hver útprentuð blaðsíða er talin kosta 3,5 krónur, sem þýðir að þú að greiðir um það bil 700 krónur á mánuði fyrir útprentuðu skjölin. Hlutfallslega er þetta minnsti kostnaðurinn. Ef þú myndir senda helminginn af skjölunum með pósti, eða um 25 skjöl, þar sem lágmarksverð fyrir bréfsendingu kostar 224 krónur, myndi það kosta þig að minnsta kosti 5.600 krónur á mánuði. Þetta veltur þó allt á því hversu mikill tími fer í að fá skjölin undir- rituð. Tíminn sem fer í að sýsla með skjölin felur mögulega í sér prentun, ljósritun, skönnun, að fá undirskriftir frá aðilum sem eiga að undirrita, skrá skjölin og vista þau á réttum stað og jafnvel póst- leggja þau ef þess þarf. Þetta getur verið allt frá nokkrum mínútum til nokkurra klukkutíma vinna, allt eftir því hversu umfangsmiklir þínir ferlar eru. Segjum að umsýsl- an þegar kemur að þínum skjölum sé ekki of tímafrek og allt virki eins og það á að gera, allir sem þú þarft á að halda séu alltaf til staðar til að undirrita á þeim tíma sem þú óskar eftir og að þetta taki að meðaltali 10 mínútur. Samkvæmt nýjustu tölum um meðallaun frá Hagstofunni eru tímalaunin 4.970 krónur fyrir starfsmann. Það þýðir að 10 mínútur kosta sirka 828 krónur. Fyrir öll 50 skjölin eru það 41.400 krónur. Til að taka þetta saman kosta handundirrituðu skjölin þitt fyrir- tæki í kringum 47.000 krónur á mánuði. Þessi útreikningur tekur þó ekki mið af öllum mögulegum mistökum sem gætu verið gerð, eins og endurprentun, endursending og svo framvegis, heldur miðast við að ferlið gangi fullkomlega. Rafræn undirritun skjala: er það ódýrara? Þegar þú skiptir yfir í rafræna undirritun, breytast ferlarnir algjörlega. Rafræn umsýsla skjala þýðir að prent- og póstkostnaður hverfur alveg og tími starfsmanna nýtist mun betur þar sem þeir eyða töluvert minni tíma í að sýsla með skjölin. En hvað sparar þetta þér raunverulega mikla peninga? Með Dokobit Portal tekur aðeins um mínútu að senda skjal af stað í rafræna undirskrift sem þýðir að kostnaður fyrir starfsmann verður 4.140 krónur. Þegar við tökum það saman með þjónustugjöldum Dokobit og kostnaði til Auðkennis kostar sama ferli fyrir 50 skjöl með því að að nýta Dokobit Portal fyrir rafræna undirritun í kringum 18.890 krónur, sem er um það bil 28.110 krónum ódýrara en gömlu ferlarnir. Niðurstaða Ef það að fá skjöl undirrituð á pappír tekur meiri tíma frá starfs- fólki og viðskiptavinum en það ætti að gera þá er upphæðin sem þú sparar eingöngu til að undir- strika af hverju þú ættir að byrja að nota rafrænar undirskriftir. Með nútímalegum viðskiptaháttum eins og rafrænum undirskriftum setur fyrirtækið viðskiptavini sína í fyrsta sæti, með betri þjónustu og tryggir öryggi gagnanna á sama tíma. ■ Nánari upplýsingar á dokobit.is Hversu mikið geta fyrirtæki sparað með rafrænum undirskriftum? Með Dokobit Portal tekur rétt um mínútu að senda skjal í rafræna undirritun. 6 kynningarblað 9. febrúar 2022 MIÐVIKUDAGURUPPLÝSINGATÆKNI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.