Fréttablaðið - 26.02.2022, Síða 22

Fréttablaðið - 26.02.2022, Síða 22
22 Íþróttir 26. febrúar 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 26. febrúar 2022 LAUGARDAGUR Varnarmaðurinn Meikayla Moore skoraði þrennu af sjálfsmörkum gegn Bandaríkja- mönnum á SheBelives Cup í vikunni. Hún er þó ekki fyrsti leikmaðurinn sem verður fyrir því óláni að eiga slæman leik. Það hefur alveg áður gerst og mun gerast aftur. Fréttablaðið fór á stúfana og skoðaði verstu frammistöðu síðari ára. benediktboas@frettabladid.is Miklu verra en hjá Moore David Luiz gegn Þýskalandi á HM 2014 HM 2014 var haldið í Brasilíu og heimamenn ætluðu sér stóra hluti. Það gekk þó ekki því liðið tapaði eftirminnilega 7-1 fyrir Þjóðverjum þar sem David Luiz sýndi einhvern allra lélegasta varnarleik í nútímafótbolta. Luiz var fyrirliði í leiknum og segja má að hann eigi sök í öllum mörkunum. Hverju einu og einasta. sem er afrek út af fyrir sig. Ekki nóg með að fyrirliðinn hafi verið slakur í vörninni því hann virt- ist leika sér að því að senda á engan samherja fram völlinn. Frammistaða sem enn er horft og hlegið að á YouTube. Jonathan Woodgate gegn Atletic Bilbao 2005 Woodgate var frábær varnarmaður þegar hann var heill og var keyptur til Real Madrid árið 2004. Hann spilaði þó ekki fyrr en ári síðar vegna meiðsla. Skokkaði inn á fyrir Ivan Helguera í september 2005. Og það gæti vel verið að þetta sé mögulega versta frumraun í sögu fótboltans, því hann fékk gult spjald skömmu fyrir hálfleik með svakalegri tæklingu. Skömmu eftir hálfleik skoraði hann svo sjálfs- mark og fékk seinna gula á 65. mínútu. Svo því sé haldið til haga þá var seinna gula alveg fáránlegur dómur. Real reyndar vann leikinn 3-1. Martin Palermo gegn Kólumbíu 1999 Framherjinn stóri og stæðilegi var frábær fyrir framan mark andstæðinganna og skoraði í gríð og erg. Hann er jú markahæsti leikmaður í sögu Boca Juniors. Þegar hann var að byrja sinn lands- liðsferil árið 1999 var Argentína að spila í Copa America gegn Kólumbíu. Palermo var í feikna- stuði með Boca og kom inn í landsliðshópinn í stað Gabriel Batistuta. Hann tók víti fyrir Boca og fannst ekki mikið mál þegar Argentína fékk víti snemma leiks. Palermo notaði kraftinn og þrumaði boltanum í slána og yfir. Í síðari hálfleik kom annað víti. Palermo sótti boltann og enn var þrumað en nú fór boltinn hátt yfir. Kólumbía var mun betri aðilinn og skoraði þrjú mörk en undir lok leiks dæmdi dómarinn enn eitt vítið. Og enn steig Palermo upp og vandaði sig að hitta allavega markið. Því miður var það varið. Ferill Palermo var alltaf litaður af þessum klikkum en hann fékk upprisu þegar hann skaut Argentínu á HM 2010 og varð þjóðhetja. Loris Karius gegn Real Madrid 2018 Real Madrid vann sinn þriðja Meistaradeildarbikar í röð árið 2018 þegar liðið vann Liver- pool. Loris Karius markmanni Liverpool er yfirleitt kennt um tapið enda eiginlega gaf hann tvö mörk. Hann var búinn að halda markinu hreinu sex sinnum í röð fyrir leikinn en á 50. mínútu kastaði hann boltanum beint í Karim Benzema og boltinn rúllaði í rólegheit- um inn. Sadio Mane jafnaði leikinn áður en Gareth Bale skoraði svo stórkostlegt mark til að koma Real aftur yfir. Bale tryggði svo Real sigurinn með öðru marki. Þá þrumaði hann að því er virðist beint á Karius sem missti boltann í gegnum hendurnar á sér og í netið. Einkunnarorð Liverpool eru You’ll never walk alone, en félagið lét Karius svo sannarlega gangan einan í gegnum þennan storm og seldi hann korteri síðar. Emmanuel Eboué gegn Wigan 2008 Eboué spilaði lengst af með Arsenal eða frá 2005-2011. Það verður seint sagt að hann hafi verið vinsæll meðal stuðningsmanna og tímabilið 2008-2009 var sérstaklega slæmt. Í desember 2008 kom hann inn á gegn Wigan og átti skelfilegan leik. Missti boltann í tíma og ótíma og tæklaði meðal annars sinn eigin leikmann. Á endanum var Arsene Wenger nóg boðið og tók hann aftur útaf. Stuðningsmenn Arsenal bauluðu á hann þegar hann gekk af velli. Arsenal vann reyndar leikinn 1-0 en Eboué sagði fyrir skömmu að hann hefði viljað hætta hjá Arse- nal eftir þennan leik. Farið heim og grátið. En hætt við daginn eftir þegar stuðningsmenn komu og sögðu að þetta hefði verið aðeins lítill hluti af stuðningsmönnum og hann ætti ekki að hlusta á þá. kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Miðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir og miðjumað- urinn Dagný Brynjarsdóttir náðu merkum áfanga í vikunni í 5-0 tapi kvennalandsliðsins gegn Bandaríkj- unum. Þær urðu þá elleftu og tólftu konurnar sem náðu 100 landsleikj- um, tólf árum eftir að Katrín Jóns- dóttir varð fyrst til að ná því. Glódís er sú næst yngsta í sögunni í hundraðasta landsleik sínum, tæpum tveimur mánuðum eldri en Sara Björk Gunnarsdóttir var í hundraðasta landsleik sínum. Glódís var 26 ára, 7 mánaða og 27 daga gömul gegn Bandaríkjunum, en Sara var 26 ára, fimm mánaða og fjögurra daga gömul þegar hún lék hundraðasta landsleik sinn gegn Japan í mars 2017. Frá því að Glódís lék fyrsta leik sinn fyrir kvennalandsliðið, þá rúmlega sautján ára gömul, hefur hún aðeins misst af átta leikjum af 108 leikjum kvennalandsliðsins á þessum tæpu tíu árum. ■ Ólíklegt að met Söru verði bætt Glódís Perla Viggósdóttir. Hundrað leikja klúbburinn - dagsetning 100. leiks – aldur í 100. leik Edda Garðarsdóttir (103) - 11.03.2013 gegn Kína - 33 ára, 7 mánaða og 27 daga Rakel Hönnudóttir (103)- 08.10.2019 gegn Lettlandi - 30 ára, 9 mánaða og 9 daga Þóra B. Helgadóttir (108) - 07.03.2014 gegn Noregi - 32 ára, 10 mánaða og 2 daga Fanndís Friðriksdóttir (109) - 09.04.2019 gegn Suður-Kóreu - 28 ára, 11 mánaða Hólmfríður Magnúsdóttir (113) - 26.10.2015 gegn Slóveníu - 31 árs, 1 mánaða og 6 daga Dóra María Lárusdóttir (114) - 12.03.2014 gegn Svíþjóð - 28 ára, 7 mánaða og 19 daga Hallbera Guðný Gísladóttir - (123) 27.02.2019 gegn Kanada - 32 ára, 5 mánaða og 13 daga Margrét Lára Viðarsdóttir - (124) 22.09.2015 gegn Hvíta-Rússlandi - 29 ára, 1 mánaða og 28 daga Katrín Jónsdóttir - (133) 22.06.2010 gegn Króatíu - 35 ára, 0 mánaða og 22 daga Sara Björk Gunnarsdóttir - (136) 03.03.2017 gegn Japan - 26 ára, 5 mánaða og 4 daga live.is Ársfundur 2022 Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn þriðjudaginn 29. mars kl. 18:00 á Grand Hótel Reykjavík. Útsending frá fundinum verður aðgengileg sjóðfélögum í beinu streymi, nánari upplýsingar verða birtar á vef sjóðsins, www.live.is þegar nær dregur. Dagskrá fundarins Venjuleg ársfundarstörf, dagskrárliðir skv. grein 6.6 í samþykktum sjóðsins. Tillögur stjórnar til breytinga á samþykktum sjóðsins. Kynning tryggingastærðfræðings, tryggingafræðileg staða sameignar deildar LV og áhrif hækkandi lífaldurs á réttindakerfi og samþykktir sjóðsins. Önnur mál. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins skriflega eigi síðar en viku fyrir ársfund. Sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða aðgengileg á vef lífeyrissjóðsins. Reykjavík, 25. febrúar 2022 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.