Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 86
Það er bara
ein regla
við matar-
borðið og
hún er sú
að ekki má
vera með
síma við
borðið.
Valgerður Sigurðardóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, veit fátt skemmti-
legra en að prófa sig áfram
með nýjar uppskriftir og
bjóða góðum vinum í mat.
Þrátt fyrir að hafa ekki alltaf
mikinn tíma í matseld kemur
það ekki í veg fyrir að hún
reiði fram einfaldan og góðan
mat fyrir sitt besta fólk.
Valgerður hefur komið
sér vel fyrir í Grafarvogi
ásamt manni sínum
og hafa þau búið þar í
20 ár. „Við eigum þrjú
börn og hundinn okkar, hana Betu.
Okkur líður alveg frábærlega hérna,
hér er einstakt samfélag. Mikill
náungakærleikur og fólk náið, við
höfum eignast okkar bestu vini eftir
að við fluttum hingað í Grafarvog.
Það er ekkert skemmtilegra en að
fá fólk í mat og við leggjum mikla
áherslu á að hafa börnin með, svo
oft erum við ansi mörg og mikið fjör
í eldhúsinu.“
Ein regla við matarborðið
Þau útbjuggu draumaeldhúsið fyrir
örfáum árum og þar slær hjarta
heimilisins. „Við elskum að vera í
eldhúsinu okkar, við bökum, eldum
og það er gaman að sjá að máltækið
„þau læra það sem fyrir þeim er
haft“ á svo sannarlega við hérna
hjá okkur. Krakkarnir eru mjög
duglegir að baka og eru að fikra sig
áfram í eldamennsku líka. Það er
bara ein regla við matarborðið og
hún er sú að ekki má vera með síma
við borðið. Það er því mikið spjallað
um allt og ekkert, stundum heims-
málin, stundum um lélega pabba-
brandara og allt þar á milli.“
Ferðuðust gegnum mat
„Við höfum nýtt síðustu tvö ár vel og
gefið okkur meiri tíma til að prófa
okkur áfram með nýja hluti þegar
kemur að matargerð. En Covid og
heimavinna gáfu okkur auka tíma.
Ég lærði að elda indverskan mat
sumarið 2020, en hann er í miklu
uppáhaldi hjá okkur. Þegar við
gátum ekki ferðast þá ferðuðumst
við í gegnum mat, hlustuðum á
indverska tónlist og elduðum. Ind-
verskur matur er svo fjölbreyttur
og alger veisla fyrir bragðlaukana,
ég vil hvetja fólk sem ekki hefur
eldað indverskan mat til að prófa
sig áfram. Sumarið 2021 ferðuð-
umst við til Spánar með matnum
sem við elduðum. Við keyptum
okkur kolagrill og paella-pönnu og
fórum að prófa okkur áfram með
paellur. Hlustuðum reyndar á djass
frá öllum heimshornum á meðan
við prófuðum okkur áfram í þess-
ari eldamennsku, sem við féllum
algerlega fyrir. Grillið var því óspart
notað og við vorum fljót að bæta við
okkur auka pönnu til þess að geta
boðið fleirum í mat.“
Innbakaður humar
Í þættinum Matur og heimili á dög-
unum framreiddi Valgerður þrjá
ofureinfalda og gómsæta sælkera-
rétti, tvo forrétti og einn eftirrétt.
„Réttirnir sem ég valdi eru ótrú-
lega bragðgóðir, ólíkir en ákaflega
einfaldir þegar kemur að elda-
mennsku og hráefnum. Stundum
langar mann að fá góða vini í mat en
hefur kannski ekki langan tíma til
að galdra fram eitthvað guðdómlegt
og þá eru þetta bestu réttirnir. Ég
var að vinna í Íslandsbanka og árið
2010 var haldin matreiðslukeppni á
meðal starfsmanna. Ég hafði í nokk-
ur ár eldað innbakaðan humar, sem
hljómar f lókið en er ótrúlega ein-
faldur réttur. Íslandsbanki gaf síðan
út matreiðslubók sem starfsmenn
fengu í jólagjöf það árið og í fram-
haldi fóru 12 uppskriftir á dagatal
sem viðskiptavinir fengu gefins og
þar endaði þessi frábæra uppskrift.
Ég er enn þann dag í dag að fá skila-
boð frá fólki sem eldar réttinn ávallt
á jólum eða áramótum.“
Allt hráefnið í þessa tvo forrétti
fékk Valgerður í Bónus. Í eftirrétt-
inn er Cava sérpantað hjá ÁTVR,
óáfenga freyðivínið fæst í Krónunni
og sorbet-ísinn fær hún í ísbúðinni
Huppu.
Töfrar gestina upp
úr skónum með
freyðandi eftirrétti
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Innbakaður humar
1 hvítt samlokubrauð
1 poki skelflettur humar frá
Norðanfiski
200 g smjör
3-4 litlir hvítlaukar, pressaðir
1 búnt steinselja, söxuð
Sítrónupipar eftir smekk
Bræðið smjörið, pressið hvítlaukinn
og blandið saman ásamt steinselj-
unni. Skerið skorpuna af brauðinu/
brauðsneiðunum og f letjið það út
með kökukef linu báðum megin.
Hreinsið humarinn og leggið hann
á brauðið/brauðsneiðarnar, um það
bil tvo til þrjá humarhala á hverja
sneið. Kryddið til með sítrónupip-
arnum. Vefjið brauðinu utan um
humarinn og veltið rúllunum upp
úr hvítlaukssmjörinu. Bakið í ofni
við 200°C í 10 til 15 mínútur. Berið
fram klettasalati og hvítlaukssósu.
Steinliggur
150 g geitaostur (Chavroux)
Valgerður veit fátt skemmtilegra en að bjóða gestum í mat og er einstaklega útsjónarsöm þegar kemur að því að bjóða upp á dýrindis
rétti sem töfra gestina upp úr skónum og tekur örskamma stund að framreiða. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Innbakaði hum-
arinn þykir hið
mesta lostæti
og margir halda
að það sé ofur
flókið að útbúa
hann en það er
hinn mesti mis-
skilningur.
Steinliggur, rétturinn sem fékk nafn þegar Valgerður framreiddi hann í þættinum Matur og heimili.
Freyðandi eftirrétturinn sem samanstendur af tvenns
lags sorbet, Cava og jarðarberjum slær alltaf í gegn.
½ hvítt samlokubrauð
1 pakki parmaskinka
150 g rjómi
Salt og pipar eftir smekk
Hunang eftir smekk
1 búnt fersk basilíka
Ólífuolía
Byrjið á því að setja geitaost og sama
magn af rjóma í pott, saltið og piprið
eftir smekk og bætið við hunangi
eftir smekk. Hitið þetta saman en
passið að þetta sjóði ekki. Brauð-
sneiðarnar eru ristaðar, miðið við
eina sneið á mann, það má skera
skorpuna af eða skera sneiðarnar
horn í horn. Setjið sósuna yfir
brauðsneiðina, um það bil tvær
matskeiðar ásamt tveim sneiðum
af parmaskinku. Setjið síðan ólífu-
olíu og basilíku yfir og hafið magnið
eftir smekk hvers og eins. Sósan sem
verður eftir í pottinum er borin
fram með réttinum svo hægt sé að
fá sér ábót.
Freyðandi sorbet-eftirréttur
Honor Cava (hægt að sérpanta
frá ÁTVR) eða óáfengt freyðivín
(Tomson&Scott Noughty)
1 box sítrónu-sorbet
1 box jarðarberja-sorbet
1 askja jarðarber til skrauts
Ein kúla af jarðarberja-sorbet og
önnur af sítrónu-sorbet sett í fallega
skál eða glas á fæti. Jarðarber heil
eða skorin yfir til skrauts. Freyði-
víninu er síðan hellt yfir þegar búið
er að bera réttinn fram og þá freyðir
hann skemmtilega og slær ávallt í
gegn. ■
34 Helgin 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ