Fréttablaðið - 12.03.2022, Síða 98
Um stærri bíl en CX-5
er að ræða sem aðeins
verður seldur í tengil-
tvinnútgáfu.
njall@frettabladid.is
Með nýjasta sportjeppa sínum er
Mazda greinilega á höttunum eftir
samkeppni við lúxusflokkinn, en
Mazda frumsýndi á miðvikudag
CX-60 sportjeppann. Um stærri bíl
en CX-5 er að ræða sem aðeins verð-
ur seldur í tengiltvinnútgáfu. Ofan
í húddinu er 2,5 lítra bensínvél sem
ásamt rafmótor skilar samtals 327
hestöflum, sem gerir bílinn að afl-
mestu Mözdu sem hingað til hefur
komið beint frá verksmiðju. Bíllinn
er búinn átta þrepa sjálfskiptingu
og er aðeins 5,8 sekúndur í hund-
raðið. Rafhlaðan undir bílnum er
17,8 kWst og kemst bíllinn 63 km á
rafmagninu einu saman.
Von er á f leiri útgáfum seint á
þessu ári með sex strokka línu-
vélum. Önnur þeirra er 3,3 lítra með
48V tvinnkerfi og þriggja lítra línu-
sexa með mildu 12V tvinnkerfi mun
fylgja í kjölfarið. Innandyra er bíllinn
innréttaður með leðri og viði, ásamt
málmi á ákveðnum stöðum. Farang-
ursrýmið er 570 lítrar sem gerir hann
samkeppnishæfan í sínum flokki. Að
sögn Benný Ósk Harðardóttur, sölu-
stjóra Mazda hjá Brimborg, er bíllinn
væntanlegur síðla sumars til lands-
ins. „Þetta er spennandi tengiltvinn-
bíll með 2.500 kílóa dráttargetu. Við
munum kynna verð á bílnum núna
í vor,“ segir Benný. ■
Mazda CX-60 fyrir almenningssjónir
Útlit nýja CX-60
sportjeppans er
mildari útfærsla
Kodo-hönnun-
innar.
Fljótandi
upplýingaskjá
er stjórnað með
skruntakka og
það eru eigin-
legir takkar sem
stjórna mið-
stöðvarkerfi.
njall@frettabladid.is
Opel hefur lýst því yfir að merkið
ætli að rafvæðast fyrir 2028 og
hluti af þeirri áætlun er að koma
með Mantra-nafnið aftur á markað.
Þótt að Mantra verði ennþá Coupe
þegar hann kemur á markað árið
2025 er það þó með öðru formi
en áður, því að ný Mantra verður
kúpulaga blendingsbíll líkt og Tesla
Model Y og Polestar 2. Þannig mun
hann fylgja nokkurn veginn línum
Mantra-e tilraunabílsins sem frum-
sýndur var í fyrra. Þar sem Opel er
nú í eigu Stellantis mun bíllinn
koma á STLA-undirvagninum sem
þýðir að rúmlega 700 km drægi gæti
verið í spilunum. ■
Opel Mantra sem rafbíll árið 2025
Opel Mantra-e tilraunabíllinn var frumsýndur árið 2021 og verður grunnur
nýrrar Möntru þegar hún kemur á markað árið 2025.
njall@frettabladid.is
Nýjasta módelið í f lokki rafbíla frá
VW-bílarisanum er ID. Buzz sem
frumsýndur var á miðvikudag í
Wolksburg í Þýskalandi. Um fjöl-
notabíl er að ræða sem byggir á
sama undirvagni og ID.3 og er því
með 201 hestafls rafmótor við aftur-
drif. Hægt verður að fá bílinn með
allt að 77 kWst raf hlöðu en ekki
hefur verið gefið upp hversu mikið
drægi bíllinn hefur. Búast má við
aðeins lægri tölum en í ID.3 þar sem
bíllinn er bæði þyngri og stærri en
loftmótstaða er samt ekki nema
0,28 Cd. ID.
Buzz verður með 170 kW hleðslu
sem virkar í báðar áttir, þannig að
einnig verður hægt að fá rafmagn
frá bílnum aftur inn á heimilið ef
því er að skipta. Eins og sjá má af
myndunum er bíllinn mjög svip-
aður tilraunabílnum sem fyrst kom
fram á sjónarsviðið 2017. ID. Buzz er
4.712 mm langur og hjólhafið rétt
tæpir þrír metrar, en samt kemur
hann bara í fimm sæta útgáfu,
reyndar þá með 1.121 lítra farangurs-
rými sem stækka má í 2.205 lítra með
því að taka burtu aftari sætaröðina.
Upplýsingakerfi og þess háttar er
það sama og áður hefur sést í ID.3 og
ID.4. Von er á öflugri fjórhjóladrif-
inni útgáfu árið 2023 og 2024 kemur
bíllinn í California Camper útgáfu.
Framleiðsla á bílnum hefst seinna
á árinu en fyrstu eintökin koma til
Íslands í september, og mun verð
liggja fyrir eftir þrjár vikur.■
VW frumsýnir loks ID. Buzz
VW ID. Buzz var fyrst frumsýndur
sem tilraunabíll á Bílasýningunni í
Detroit árið 2017.
Bíða þarf þar til lengri útgáfan kemur
til að fá bílinn í sjö sæta útgáfu.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA?
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR