Fréttablaðið - 31.03.2022, Síða 1
Neytendur hafa ekki
hætt að kaupa á netinu
en það hefur hægt
verulega á þróuninni
frá síðasta ári.
Diðrik Örn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá MediaCom
6 3 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 3 1 . M A R S 2 0 2 2
Ilmur leikur
flókna konu
Íslenskt hráefni
í Parísarbúningi
Menning ➤ 40 Lífið ➤ 44 HRINGINN
OPIÐ ALLAN
SÓLAR-
Á GRANDA
OG Í MJÓDD
Pssst ...
Einn smellur og
maturinn lifnar við!
– með Snjallverslun Krónunnar
Þú finnur
Snjallverslun
Krónunnar í
App store
Play store
kronan.is
Hægt hefur á stafrænni net-
verslun Íslendinga en hún
náði hámarki á síðasta ári.
magdalena@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Diðrik Örn Gunnarsson,
framkvæmdastjóri stafrænna miðla
hjá MediaCom og stundakennari við
Háskólann í Reykjavík, segir að gull-
öld netverslunar hafi náð hámarki.
„Netverslun náði hámarki árið
2021 en það hefur verið að hægja á
netverslun síðan. Neytendur hafa
ekki hætt að kaupa á netinu en það
hefur hægt verulega á þróuninni frá
síðasta ári,“ segir Diðrik. Í mars árið
2021 hafi 48 prósent landsmanna
keypt á netinu samkvæmt Netversl-
unarpúlsi Prósents en 36 prósent nú.
„Það sem hefur breyst frá árinu
2018 er að þá höfðu um 55 prósent
fólks keypt í netverslun og 66 pró-
sent svarenda höfðu keypt í erlendu
netverslununum en nú hefur sú
þróun snúist við. Síðustu mánuði
hefur innlend netverslun 70 pró-
senta vægi meðan erlend verslun
hefur 30 prósenta vægi.“
Diðrik segir að Covid-19 faraldur-
inn hafi neytt fólk til að versla meira
á netinu en áður og leitt til þess að
allir aldurshópar hafi kynnt sér
kosti tækninnar.
Diðrik bætir við að það sem sé
fram undan í þessari stafrænu þróun
sé að íslenskir kaupmenn þurfi að
finna leiðir til að nálgast neytendur
sem séu að minnka kaupin.
SJÁ SÍÐU 10
Netverslun fer minnkandi
P Ó L L A N D Ma rc i n P r z yd ac z ,
aðstoðarutanríkisráðherra Pól-
lands, ræddi við blaðamann Frétta-
blaðsins um innrásina í Úkraínu
og öryggismál Evrópuþjóða í gær.
Przydacz segir pólsku þjóðina ekki
óttast Vladímír Pútín og hvetur
Evrópu til að herða refsiaðgerðir
gegn Rússum vegna innrásarinnar
í Úkraínu.
Pólverjar ák váðu nýlega að
hætta alfarið að kaupa rússneska
olíu og gas fram til áramóta og
hafa aukið verulega við hernað-
arútgjöld sín. „Það má aldrei
verða að verðmiði verði settur á
blóð úkraínskra borgara sem nú
falla í innrásinni,“ segir Przydacz.
SJÁ SÍÐU 8
Pólska þjóðin
óttist ekki Pútín
EFNAHAGSMÁL Halldór Benjamín
Þorbergsson, framkvæmdastjóri
SA, og Vilhjálmur Birgisson, for-
maður Starfsgreinasambandsins,
eru á öndverðum meiði um hvort
rétt sé að setja þak á verðtryggingu
lána vegna mikillar og vaxandi
verðbólgu.
Þeir eru hins vegar einhuga um
að nú þurfi víðtæka samstöðu um
aðgerðir til að stemma stigu við
af leiðingum uggvænlegrar verð-
bólgu. Auk aðila vinnumarkaðarins
þurfi stjórnvöld og Seðlabankinn að
koma að borðinu. Enginn geti firrt
sig ábyrgð.
SJÁ SÍÐU 4
Vilja aðkomu
stjórnvalda og
Seðlabankans
Fréttablaðið heimsótti dagvistun í Gorskiego í Varsjá þar sem tugir úkraínskra barna á flótta dvelja. Mörg þeirra glíma við alvarleg áföll eftir vikur af árásum. SJÁ SÍÐU 4 FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI