Fréttablaðið - 31.03.2022, Side 8

Fréttablaðið - 31.03.2022, Side 8
Við erum líka að verja Evrópu. Það má aldrei verða að verðmiði verði settur á blóð úkraínskra borgara sem nú falla í innrásinni. Björn Þorláksson bth @frettabladid.is Sigtryggur Ari Jóhannsson sigtryggur @frettabladid.is n Fréttablaðið í Póllandi Aðstoðarutanríkisráðherra Póllands segir pólsku þjóð- ina ekki óttast Pútín. Hann hvetur Evrópuríki til að herða aðgerðir gegn Rússum. Finna þurfi nýja seljendur orku því efnahagur Rússa standi og falli með olíuútflutningi ríkisins. Marcin Przydacz, aðstoðarutanrík- isráðherra Póllands, segir að aðild að NATO sé lykilatriði í vörnum heimsins í dag. Mjög gott samband hafi skapast milli Bandaríkjanna og stjórnvalda í Póllandi og gildi einu þótt stjórnvöld í Póllandi séu íhaldssamari en Demókratar í Bandaríkjunum. Hann segir að fundur Joes Biden Bandaríkjafor- seta í Póllandi á dögunum hafi verið mjög góður. Hann vill ekki ráðleggja Finnum um hvort þeir gangi í NATO en segir að innganga Pólverja í Atlantshafsbandalagið hafi verið gæfuskref. Fréttablaðið er með blaðamann og ljósmyndara í miðju atburða við Úkraínu og í Póllandi. Blaðið náði tali af ráðherranum í utan- ríkisráðuneytinu í Varsjá í gær og spurði fyrst hver viðbrögð ráð- herrans væru við þeim ummælum Pútíns að það tæki hann aðeins 48 klukkustundir að senda herlið til sex höfuðborga og Varsjá væri ein þeirra. Przydacz segir Pólverja ekki ótt- ast Pútín þótt hann belgi sig og böðlist um Úkraínu. Átakasaga Rússa sé löng og yfirgengileg. Stríðið núna sé engin nýlunda. Hann vill þó gera greinarmun á rússneskum almenningi og stjórnvöldum. Przydacz segir að ef ekki væri fyrir gasið og olíuna hefðu Rússar ekki margt fram að færa. Hann vitnar í John McCain sem sagði að Rússar væru ekki annað en ein risa- stór bensínstöð í eigu mafíunnar. Herða þurfi aðgerðir Pólverjar ákváðu í gær að hætta alfarið að kaupa olíu og gas af Rússum fram til áramóta. Pólski ráðherrann hvetur ríki Evrópu til að herða enn frekar refsiaðgerðir vegna innrásarinnar. Hann segir að núverandi aðgerðir dugi augljóslega ekki, því rússneska rúblan hafi náð vopnum sínum eftir að hafa fallið fyrst eftir innrásina. „Við erum ekki bara að verja okkur, við erum ekki bara að verja Pólland þegar við aukum herafla, verjum meira fé til varnarmála og stöndum fyrir efnahagsaðgerðum líkt og að hætta að kaupa gas og olíu af Rússum eins og ákveðið hefur verið til áramóta,“ sagði Przydacz. „Við erum líka að verja Evrópu.“ Auka fé til varnarmála Um gríðarlegan orkuskell verður að ræða fyrir Pólland að óbreyttu nema annað komi í staðinn. Hlut- deild gass og olíu í orkuforða Pól- verja hefur orðið allt að 30 prósent. Ekki er þá allt upp talið, því fyrir- sjáanlegt er að útgjöld Pólverja til varnar- og öryggismála aukist nú mjög auk þess sem þeir horfa til þess að NATO styrki varnir landsins. Pól- verjar hafa varið um 2 prósentum af landsframleiðslu til öryggismála um skeið en hækka nú hlutfallið í 3 prósent. Í lögum hefur verið veitt heimild til að þeir geti varið 6 pró- sentum af landsframleiðslu til varn- ar -og öryggismála undir sérstökum kringumstæðum. „Við verðum að finna nýja selj- endur orku,“ segir Przydacz. Horfa þurfi til Noregs og auka áherslu á græna og endurnýjanlega orku. Ráðherrann vill ekki svara því með beinum hætti hvort fjölgað hafi verið í herliði Pólverja síðustu daga. Hann segir um 300.000 hermenn klára og að allir verði að leggja lið. Hann segir helstu vonbrigðin eftir innrásina hve önnur ríki eigi enn í miklum viðskiptum við Rússa og haldi þeim með viðskiptunum efna- hagslega á floti. „Það má aldrei verða að verðmiði verði settur á blóð úkraínskra borg- ara sem nú falla í innrásinni,“ segir Przydacz. Hann segir efnahag Rússa standa og falla með þeim gríðarviðskiptum sem felast í olíuútflutningi ríkisins. Hvert einasta ár fái Rússland í sinn hlut 132 milljarða evra fyrir við- skiptin. Um aðstoð Pólverja við Úkraínu, þar sem Pólland hafi tekið við fleiri f lóttamönnum á nokkrum vikum en Þýskaland frá Sýrlandi fyrir nokkrum árum á heilu ári eins og ráðherrann orðar það, segir hann bræðalag milli Póllands og Úkraínu. „Ég er óendanlega stoltur af mínu fólki, hvernig Pólverjar hafa hjálpað til við þennan mikla vanda,“ segir Przydacz. n Segir Rússland bensínstöð í eigu mafíunnar Marcin telur inn- göngu Pólverja inn í Atlants- hafsbandalagið hafa verið gæfu- spor. Fréttablaðið ræddi við ráðherrann í Varsjá í gærdag. Pólverjar hafa tekið við gríðarlegu magni af flóttafólki. Viðbúnaður og gæsla hefur verið aukin til muna eftir að innrás Rússa hófst. 8 Fréttir 31. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐINNRÁS Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 31. mars 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.