Fréttablaðið - 31.03.2022, Page 13
Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa
ákveðið að eyðileggja hluta
fjörunnar í Skerjafirði. Það á að
gera með uppfyllingu og einhvers
konar nýrri gervifjöru út frá suður
enda Reykjavíkurflugvallar.
Málið er flókið af því að það
tengist áralöngum deilum um
flugvöllinn.
Bretar byggðu þennan flugvöll
eftir að þeir hernámu Ísland og við
misstum fullveldið um skamma
hríð. Þannig er flugvöllurinn lif
andi minnismerki um þann tíma
þegar útlendingar fóru með full
veldisráðin.
Enginn hefur haldið því fram að
flugvöllurinn eigi að varðveitast
sem áminning um þá atburði. En
stundum er þó engu líkara.
Samkomulag í lausu lofti
Deilan stendur um landnotkun
ina. Annars vegar eru þeir sem
telja að landið verði best nýtt sem
byggingarsvæði. Hins vegar eru
þeir sem telja best að nota landið í
þágu flugsamgangna.
Stefna Reykjavíkurborgar
hefur legið fyrir um langan tíma.
Borgaryfirvöld vilja nýta landið og
byggja upp hverfi með íbúðum og
fjölbreyttri þjónustu.
Í öndverðu var þessi stefnu
mótun samþykkt í allsherjar
atkvæðagreiðslu kjósenda í höfuð
borginni þótt þátttakan hafi verið
dræm. En niðurstaðan sýndi góða
framtíðarsýn.
Ríkisvaldið hefur formlega
fallist á stefnu borgaryfirvalda í
Reykjavík. Það hefur um leið gert
samkomulag um að gera nýjan
flugvöll eftir skoðun á öðrum
kostum. Á móti hafa borgaryfir
völd samþykkt að framlengja líf
tíma flugvallarins á meðan. Allt er
þetta skynsamlegt.
Einhvern veginn virðist þetta
samkomulag þó hanga í lausu lofti.
Ríkið stendur ekki við sitt
Í fyrsta lagi bendir ekkert til að
innviðaráðherra ætli sér að finna
flugvellinum nýjan stað. Hann er
einfaldlega á móti breytingum. Í
besta falli f lýtir hann sér svo hægt
að í raun mun engin hreyfing
komast á málið að óbreyttu.
Því verður ekki séð að ríkis
valdið áformi að standa við sam
komulagið.
Í annan stað hafa eldsumbrotin
á Reykjanesi á síðasta ári sett strik
í reikninginn. Hugsanlega dregur
það úr kostum Hvassahrauns, sem
einkum var litið til.
Gagnvart þeim, sem vita ekki
meir um boltaleik borgaryfirvalda
og ríkisvaldsins með flugvöllinn
en það sem fram kemur opinber
lega, er eins og raunveruleikinn
felist í því að flugvöllurinn fari
ekki fyrr en sátt verður um að reka
einn flugvöll fyrir innanlands og
millilandaflug á suðvesturhorn
inu.
Enginn talar þó fyrir slíkri sátt
enn sem komið er. Með greiðari
samgöngum gæti hún þó verið
skynsamleg.
Athyglisvert er að enginn, ekki
einu sinni fjármálaráðherra, ræðir
kostnaðinn við að reka tvo stóra
flugvelli nánast hlið við hlið með
ekki meiri umferð en einn flug
völlur getur auðveldlega annað.
Rökin vantar
Þetta þrátefli um flugvöllinn milli
borgaryfirvalda og ríkisins færir
okkur aftur að þeirri ákvörðun að
eyðileggja hluta fjörunnar í Skerja
firði.
Í ljósi loforða ríkisins um
flutning flugvallarins er þegar risið
íbúðahverfi í norðausturkrika
flugvallarsvæðisins. Takmark
aður skilningur á náttúruvernd
virðist ekki vera ástæðan fyrir því
að eyðileggja á hluta fjörunnar í
Skerjafirði vegna nýja hverfisins
við suðurendann.
Rökin fyrir eyðileggingunni eru
þau að landskikinn við flugbraut
ina sé of lítill og því verði hverfið
ekki sjálfbært nema með uppfyll
ingu. Enginn dregur í efa að þetta
sé rétt reiknað.
En við þessa röksemdafærslu er
þó þetta tvennt að athuga:
Ef flugvöllurinn er á förum
innan fárra ára eins og samkomu
lagið við ríkið gengur út á er meira
en nægjanlegt pláss fyrir sjálf
bært hverfi. Örfá ár í bið eftir því
réttlæta ekki með nokkru móti
eyðileggingu fjörunnar.
Séu hins vegar engar raunveru
legar líkur á að flugvöllurinn fari
vegna afstöðu ríkisins er einfald
lega ótímabært að byggja svæðið.
Ábyrgðarleysi ráðherra
veitir ekki skjól
Augljóslega stendur upp á ríkis
valdið að framkvæma samkomu
lagið. Það er í sjálfheldu vegna
forystuleysis ríkisstjórnarinnar.
Pólitísk ábyrgð innviðaráðherra
á sjálfheldunni er augljós. Það
ábyrgðarleysi veitir borgaryfir
völdum aftur á móti ekki skjól til
að eyðileggja fjöruna.
Faxaflóahafnir eyðilögðu nýlega
hluta fjörunnar við innanvert
Laugarnes með landfyllingu. Það
var mikil skemmd á þeim friðsæla
og lítt snortna reit í borgarlandinu.
Ástæðulaust er að endurtaka
þau mistök. n
Fjöruvernd og flugvallarpólitík
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Pólitísk ábyrgð inn-
viðaráðherra á sjálf-
heldunni er augljós.
PRESSAN
Í KVÖLD KL. 20.00
Hraður þáttur um helstu
fréttamál líðandi stundar, í
umsjón Sigurjóns M. Egilssonar.
FIMMTUDAGUR 31. mars 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ