Fréttablaðið - 31.03.2022, Side 20

Fréttablaðið - 31.03.2022, Side 20
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is TRAUST Í 80 ÁR Fylgdu okkur á Facebook S Í G I L D K Á P U B Ú Ð LAXDAL ER Í LEIÐINNI GlæSikjólAR Í voRveiSlURnAR Skoðið laxdal.is Tími hrútanna er nú í algleymi en þeir eru þekktir fyrir aðdáunarverðan stíl og að skapa ný tískutrend. thordisg@frettabladid.is Hrútsmerkið er það fyrsta í dýra- hringnum. Forn-Egyptar tengdu stjörnumerkið við guðinn Amon Ra sem var maður með hrúts- höfuð og sagður tákna frjósemi og sköpun. Það rímar ágætlega við þá staðreynd að hrútar eru oft ábyrgir fyrir að koma af stað nýju tískutrendi, eins og til dæmis mars-skvísurnar heimsfrægu Lady Gaga og Sarah Jessica Parker, sem báðar eru fæddar í hrútsmerkinu, eru þekktar fyrir. Þeir sem eru fæddir með sól í hrúti eða rísandi hrútar kjósa látlausan en áberandi tískufatnað sem enginn getur fett fingur út í. Hrútsmerkið stjórnar höfðinu og vilja margir hrútar því gjarnan skarta hatti eða hárskrauti, eða klæðast einlitum flíkum með fylgihlutum í djörfum litum sem fá aðra til að horfa á þá og þrá. Hrúturinn er eld- merki, ákaft og ástríðu- fullt, og fer einkar vel að klæðast rauðu. Þeir eru meira fyrir að daðra við tískuna á sinn sjálfstæða hátt í stað þess að fylgja hjörðinni eftir þegar kemur að tískustraumum. Þeir leiða tísku og trend en forðast þó fjöldaframleiðslu og kjósa frekar að klæðast flíkum eftir minna þekkta hönnuði eða unga og upp- rennandi. Flottir hattar, svartur stuttur kjóll, háir hælar, rauður fatnaður, kakí, strigaskjór, camouflage-jakki eða buxur, æfingagalli, strigaskór, second-hand flíkur, hjólajakki og há stígvél eru meðal þess sem einkennir klæðnað hrúta sem eiga það sameiginlegt sem stjörnu- merki að vera kynþokkafullir, hugrakkir, heiðarlegir, hvatvísir, ástríðufullir, ævintýragjarnir og fullir sjálfstrausts. Þeir kunna því illa að vera niðurnjörvaðir, þeim leiðist líka auðveldlega og sækja í dýnamískar og orkugefandi upp- lifanir. Hrútar eiga bágt með að fela sig í fjöldanum því þeir vekja yfirleitt eftirtekt fyrir sterkan persónuleika sem dregur aðra að sér, sem og aðdáun annarra fyrir áberandi fas. Því er engin furða að frægir hrútar, eins og söngdívurnar Cel- ine Dion, Mariah Carey og Reba McEntire fylli heilu þjóðarleikvangana með sjarma sínum, krafti og útgeislun, og óhætt að segja að hrútar ráði vel við miskunnar- lausan heim frægðar og frama, því þeir mæta því sem heimurinn færir þeim af öryggi, stæl og einstakri fagurfræði, eins og sjá má hjá hrút- unum Elton John, Lil Nas X og Lady Gaga. ■ Þokkafullir hrútar sem daðra við tískuna Lady Gaga er ein af skraut- legri konum samtímans og sannur hrútur þegar kemur að sjálfstæði í stíl. Dívan Mariah Carey elskar svarta litla kjóla eins og títt er um hrúta. Mars-hrúturinn Sarah Jessica Parker er ein af mestu skvísum heimsins. Hún sýnir hér og sannar að rautt er einkennislitur hrútsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Hrútsskvísur vilja himinháa hæla. Húfur og hermannaklæði. 4 kynningarblað A L LT 31. mars 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.