Fréttablaðið - 31.03.2022, Side 26

Fréttablaðið - 31.03.2022, Side 26
Tinna Gunnarsdóttir Snert á landslagi Touching Landscape 66°05’35.2”N 18°49’34.1”W 26. febrúar – 15. maí 2022 Hallgerður Hallgrímsdóttir Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti A Few Thoughts on Photography – Vol. III 22. janúar – 18. apríl 2022 Menningar- og lista- miðstöð Hafnarfjarðar The Hafnarfjörður Centre of Culture and Fine Art Opið kl. 12–17 Lokað á þriðjudögum Ókeypis aðgangur Open 12–5 p.m. Closed on Tuesdays Strandgata 34 220 Hafnarfjörður www.hafnarborg.is 6 kynningarblað 31. mars 2022 FIMMTUDAGURMYNDLIST Á ÍSLANDI Þórunn Bára Björnsdóttir myndlistarmaður hefur verið virk í íslenskri myndlist á undanförnum árum. Þórunn fæst við náttúruskynjun og samspil manns og umhverfis í verkum sínum. Hún gengur út frá náttúruvísindum í verkum sínum. elin@frettabladid.is „Myndefni mitt síðustu tvo áratugi er þróun lífs í Surtsey með tilvísun í framlag náttúrufræðinga sem þar stunda rannsóknir á tilurð og framþróun lífs frá upphafi,“ útskýrir Þórunn en segist þó aldrei hafa komið í Surtsey enda eyjan friðuð. „Kveikjan að verkunum tengist hugleiðingum um tilvistina almennt, stöðu náttúrunnar í ljósi loftslagsbreytinga og afleiðingar af atferli mannsins, aðlögunarhæfn- ina, lífsbaráttuna, seiglu, rótfestu og samtengingu alls í tilverunni og mikilvægi hverrar einingar fyrir sig í lífskeðjunni sem aldrei má brotna,“ bætir hún við. Þórunn Bára lauk listnámi frá listaháskólanum í Edinborg og frekara námi við Wesleyan- háskóla í Bandaríkjunum. Hún er félagi í SÍM og hefur haldið sýningar árlega hérlendis og erlendis, meðal annars hjá Gallerí Fold. Hún starfar að myndlistinni á vinnustofu sinni að Grenimel 21 þar sem fólk getur komið í heimsókn. Verk hennar eru auk þess til sýnis og sölu á Gallerí Fold og á vefsíðu Apollo Art frá því að það fyrirtæki tók til starfa, sjá apolloart.is. Apollo er góð viðbót í listageiranum sem leiðir saman áhugasaman listunnanda og lista- manninn í gegnum traust fagfólk en það opnar möguleika til heima- mátunar á listaverkum og spjalli við listamanninn. Endalaus uppspretta hugmynda Náttúran er Þórunni ofarlega í huga þegar rætt er um listsköpunina. „Það má segja að ég eyði löngum stundum í hugleiðingar um lífið og tilveruna í gegnum Surtsey,“ segir hún. „Surtsey er mjög áhugavert fyrirbæri í náttúrunni og okkar eigin samtíma og í raun mynd- birting þess sem gerist í náttúrunni í víðari skilningi. Þarna upphefjast hlutirnir úr engu og síðan verða sífelldar breytingar eins og eru alltaf í náttúrunni. Í mínum huga er Surtsey blómleg en ég er með tilvísun í fyrirmyndir eins og berg- tegundir og jarðveg, þótt plöntu- lífið hafi átt huga minn undanfarið. Mögulega mun ég flytja mig yfir í grænna gras en mig langar að taka fyrir landsvæði á Íslandi með villiplöntum, til dæmis vatna- eða hálendisplöntum. Ég mun samt ekki sleppa Surtsey því þar er enda- laus uppspretta hugmynda,“ segir Þórunn Bára. Fegurðin í náttúrunni „Ég lít svo á að listin hafi mikil- vægu hlutverki að gegna við að breyta viðhorfi áhorfandans til náttúrunnar með þjálfun í nátt- úruskynjun. Skynhyggja er van- nýtt í samfélaginu en hún er ekki síður mikilvæg en rökhyggja. Við þurfum að þora og megna að ná utan um náttúruna til að tryggja okkur og afkomendum okkar betri framtíð,“ bendir hún á og bætir við: „Náttúruvísindin færa okkur þekkingu og leiðir til betra lífs. Önnur leið er að gera fólki kleift að skynja og upplifa meðvitað og draga þannig eigin ályktanir af því sem fyrir augun ber. Slík upplifun setur listina í persónubundið sam- hengi við reynslu, minningar og tilfinningar. Án skynjunar verður engin hugsun. Frá því að ég var barn var ég alltaf með hugann við jörðina, eilíflega að safna, skapa og búa til úr mold, grjóti og blómum,“ Þórunn hefur þá trú að nátt- úran sé góð fyrir alla. „Fegurðin í náttúrunni gerir okkur að betra fólki. Að vera í náttúrunni hefur jákvæð áhrif á sál og líkama. Sam- spil manns og náttúru er flókið og brothætt. Breytt hugmyndafræði gegnum aldirnar hefur talið okkur trú um að við séum yfir náttúruna hafin og þannig rofið tengslin við okkar eigin uppruna, jörðinni og okkur sjálfum til óhamingju og vanlíðunar. Við berum sameigin- lega ábyrgð á umhverfi okkar og náttúru og þurfum að auka nátt- úrusiðfræði með tilliti til velferðar jarðar. Það verður að gerast með hraði því að vandinn felst mikið til í stigvaxandi skerðingu á lífs- skilyrðum jarðarinnar,“ segir hún með áherslu á orð sín. „Ég reyni að færa náttúruna til fólksins með myndlistinni. Við gleymum því oft að við erum hluti af náttúrunni og eigum að lifa í sátt við hana. Jörðin er okkar eina heimili.“ ■ Sækir innblástur í Surtsey Þórunn Bára myndlistarmaður segir að við berum sameiginlega ábyrgð á umhverfi okkar og náttúru og þurfum að auka náttúrusiðfræði með tilliti til velferðar jarðar. MYND/AÐSEND Surtsey er Þórunni hugleikin en þessi mynd nefnist Fjaran. Hjúpur er annað verk eftir Þórunni þar sem innblásturinn kemur frá Surtsey en verkin eru margs konar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.