Fréttablaðið - 02.04.2022, Qupperneq 4
Hætta er á að eitt fámennasta
sveitarfélag landsins missi
þjónustusamninga sína um
skóla, félagsþjónustu, slökkvi-
lið og fleiri lögbundnar
skyldur. Oddviti segir sveitar-
félagið hafa fleiri möguleika.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VESTURLAND Borgarbyggð mun
hætta að þjónusta Skorradalshrepp
frá og með 1. júní næstkomandi verði
ekki komnir á þjónustusamningar
fyrir 1. maí. Samningar hafa verið
lausir í meira en ár og viðræður
ganga afar illa.
Í Skorradalshreppi búa 58 manns
og því þarf hann að kaupa mjög
stóran hluta af þjónustunni, sem
hreppnum er lagalega skylt að sinna,
af nágrönnum sínum. Leikskólavist,
grunnskólavist, félagsþjónustu, tóm-
stundir og slökkvilið þar á meðal.
Stóra ágreiningsefnið eru grunn-
skólamálin. Borgarbyggð vill að
greitt sé hlutfall af rekstrarkostn-
aði en Skorradalur vill greiða sam-
kvæmt viðmiðunargjaldskrá Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. Þórdís
Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borg-
arbyggðar, segir hana aðeins eiga
við um skammtímaúrræði.
„Við viljum að Skorradalshreppur
greiði því sem nemur kostnaði þjón-
ustunnar,“ segir Þórdís. „Við teljum
eðlilegt að sveitarfélagið sé ekki
að greiða með þjónustu við íbúa
Skorradalshrepps.“
Samningarnir losnuðu um þar
síðustu áramót. „Við gerðum um
daginn tillögur að samningum og
hreppurinn kom með athugasemdir
sem við gátum ekki sætt okkur við. Í
apríl verður haldinn lokafundur um
hvort hægt sé að ná samningum eða
ekki,“ segir Þórdís.
Það hefur orðið breyt-
ing á mannahaldi og
þarna eru komnir inn
aðilar sem ætla að snúa
upp á höndina á
Skorradal.
Árni Hjörleifs-
son, oddviti
Skorradals-
hrepps
FÁRÁNLEGA LÁGT VERÐ
Við bjóðum upp á takmarkað magn af hjólbörðum og felgum fyrir fólksbíla, minni
jeppa, stærri jeppa og pallbíla. Ný og ónotuð dekk á ótrúlegu lágu verði.
Gott úrval af dekkjum og felgum.
Hér fyrir neðan má sjá verðdæmi um dekk og felgur í boði:
Dekkja- og felgugangar:
32” 255/75R17 - 199.000 kr.
33,5” 285/60R20 - 199.000 kr.
33” 275/70R18 - 179.000 kr.
Dekkjagangur:
15” 185/55R15 - 49.800 kr.
30” 265/60R18 - 69.960 kr.
33” 275/70R18 - 79.600 kr.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ISBAND.IS, DEKK@ISBAND.IS OG Í SÍMA 590 2323
FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 17:00
Fleiri stærðir í boði. Uppgefið verð er heill umgangur eða 4 stk með vsk.
Hætta þjónustu við Skorradalshrepp
náist ekki samningar í mánuðinum
n Þrjú í fréttum
Borgarbyggð
sinnir stórum
hluta af
þjónustu við
íbúa Skorradals-
hrepps.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJETUR
Árni Hjörleifsson, oddviti Skorra-
dalshrepps, er harðorður í garð
Borgarbyggðar og segir fulltrúa
hennar sýna hroka. „Það hefur orðið
breyting á mannahaldi og þarna eru
komnir inn aðilar sem ætla að snúa
upp á höndina á Skorradal,“ segir
Árni. „Þeir segja alla samninga sem
gerðir hafa verið ónýta og skrifa
þurfi þá upp á nýtt.“
Hann segir fráleitt að halda því
fram að nemendur úr Skorradal
auki kostnaðinn, greitt sé fyrir
alla sérþjónustu. „Það ætti nú að
vera tekjuauki að fá nemendur úr
Skorradal,“ segir Árni og líkir þessu
við viðskiptavini hjá fyrirtæki.
„Við erum að borga margfalt
hærra fyrir þjónustu í Borgarbyggð
en önnur sveitarfélög borga fyrir
sambærilega samninga,“ segir Árni
en auk grunnskólasamningsins sé
slökkviliðssamningurinn erfiður.
Íbúar í Skorradal greiði hátt í 140
þúsund krónur á haus en íbúar
Borgarbyggðar aðeins 15 þúsund.
Slökkviliðsbíll Skorradals, sem
Borgarbyggð eigi að hýsa á Hvann-
eyri, sé á hrakhólum. „Við erum
mjög ósátt við hvernig umhirðan
hefur verið á þessum bíl,“ segir
Árni.
Í Fréttablaðinu í gær lýsti fram-
k væmd a st jór i Þrosk a hjá lpa r
áhyggjum af því að minnstu
sveitarfélögin gætu ekki sinnt
skyldu sinni gagnvart fötluðu fólki.
Skorradalshreppur er eitt af þeim
sveitarfélögum sem mótmælt hafa
þvinguðum sameiningum. Könnun
var gerð á sameiningarkostum við
Borgarbyggð eða Hvalfjarðarsveit
árið 2014 sem íbúarnir höfðu ekki
áhuga á. Hefur engin umræða um
þetta verið síðan.
Árni segir að Skorradalshreppur
hafi aðra möguleika til að þjónusta
íbúana náist ekki samningar við
Borgarbyggð. Til dæmis við Akra-
nesbæ og Hvalfjarðarsveit. Hann
segist þó bjartsýnn á að málið leys-
ist. „Í samningum eiga báðir aðilar
að vera álíka sáttir. Annar á ekki að
valta yfir hinn,“ segir hann. n
46
prósent Reykvíkinga
vilja að Reykjavíkur-
flugvöllur verði áfram í
Vatnsmýrinni.
6.153
krónur eru meðallauna-
kostnaður á Íslandi.
865
hafa sótt um alþjóðlega
vernd á Íslandi síðan 1.
janúar.
21,3
prósent telja að sveitar-
félögin eigi að fara með
málefni fatlaðra.
6
hafa smitast þrisvar af
Covid-19 á Íslandi.
Will Smith,
kvikmyndaleikari
vakti heimsat-
hygli þegar hann
sló grínistann
Chris Rock utan
undir á Óskars-
verðlauna-
hátíðinni. Kinn-
hesturinn var
tilkominn vegna
brandara Rocks um eiginkonu
Smiths, Jödu, sem féll illa í kramið
hjá hjónunum. Smith, sem vann
til verðlauna sama kvöld, baðst
síðar afsökunar á hegðun sinni og
Rock tilkynnti að hann myndi ekki
kæra málið til lögreglu.
Edda Sif Pálsdóttir,
íþróttafréttakona
tjáði sig í fyrsta
skipti opinber-
lega um alvar-
lega líkamsárás
sem hún varð
fyrir árið 2012.
Í forsíðuvið-
tali Vikunnar
sagðist hún hafa
kært fjölmiðlamanninn Hjört
Hjartarson fyrir líkamsárás en þar
sem þau hefðu náð samkomulagi
sín á milli hefði málið aldrei farið
fyrir dóm.
Bubbi Morthens,
tónlistarmaður
Bubbi kallaði
eftir nýjum
tónlistarverð-
launum. Sagði
hann að Íslensku
tónlistarverð-
launin væru
komin „í svo
mikið bull“ þar
sem vinsælustu lögin í landinu
væru hunsuð ár eftir ár. n
n Tölur vikunnar
4 Fréttir 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ