Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 34
Nú hef ég tekið
sæbjúgnahylkin í
nokkur ár og fer allra
minna ferða án óþæg-
inda. Það er algjör bylt-
ing frá því sem áður var.
Magnús Friðbergsson mælir
með sæbjúgnahylkjum frá
Arctic Star, en hann finnur
mun á sér eftir að hann fór
að nota þau. Sæbjúgu inni-
halda yfir fimmtíu tegundir
af næringarefnum.
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem
heilsubótarfæði og notuð til bóta
við hinum ýmsu meinum. Kín-
verjar kalla sæbjúgu gjarnan „gin-
seng hafsins“ og til eru sagnir um
notkun sæbjúgna þar fyrir meira
en þúsund árum.
Arctic Star sæbjúgnahylkin inni-
halda yfir fimmtíu tegundir af nær-
ingarefnum sem geta haft jákvæð
áhrif á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis er mikið
kollagen í þeim, en það er eitt helsta
uppbyggingarprótein líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum.
-Hylkin eru framleidd úr íslensk-
um, hágæða, villtum sæbjúgum
sem eru veidd í Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson hefur tekið
sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
undanfarin ár. „Vinur minn kynnti
mig fyrir sæbjúgnahylkjunum og
þar sem ég hafði lengi verið slæmur
í hnjám, með liðverki og lítið
getað beitt mér, ákvað ég að prófa.
Tveimur til þremur vikum seinna
fann ég mikinn mun.
Nú hef ég tekið sæbjúgnahylkin
í nokkur ár og fer allra minna
ferða án óþæginda. Það er algjör
bylting frá því sem áður var. Nú get
ég gert hluti eins og að fara í langar
gönguferðir, sem ég gat varla gert
áður. Að minnsta kosti gerði ég
það ekki með bros á vör og það tók
mig langan tíma að jafna mig eftir
álag,“ útskýrir hann. Magnús, sem
er 71 árs, hafði fengið að heyra frá
lækni að mikið slit væri í hnjám
hans og ekki væri von á að það
gengi til baka. „Hann sagði mér að
kíkja á fæðingardaginn minn og
að ég gæti ekki búist við að fara
aftur í tíma. Mér fannst vont að
heyra þetta og var því tilbúinn að
prófa ýmislegt sem gæti mögulega
lagað þetta. Sæbjúgnahylkin frá
Arctic Star virka mjög vel á mig og
ég mæli með að fólk prófi þau.“ n
Arctic Star sæbjúgnahylki+D3 fást
í flestum apótekum og heilsubúð-
um ásamt Hagkaupum, Fjarðar-
kaupum og á Heimkaup.is.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús er betri í
hnjám og finnur
minna fyrir lið-
verkjum eftir að
hann fór að taka
sæbjúgnahylkin.
MYND/AÐSEND
Jóhanna Laufdal Friðriks-
dóttir byrjaði að taka inn
Protis® Kollagen fyrir um
ári, eftir að hafa lesið sér til
um góð áhrif þess á líkam-
ann, liði, hár, neglur, húð og
fleira.
Kollagen hefur margvísleg áhrif
á líkamsstarfsemina. Kollagen er
eins og lím í líkamanum sem hefur
áhrif á liði, hrukkumyndun, hárið
og margt fleira. Þegar við eldumst
byrjar líkaminn að framleiða
sífellt minna magn af þessu mikil-
væga efni. Þá er ekki úr vegi að
taka kollagenið inn sem bætiefni.
„Undanfarið hef ég verið að
kynna mér hvað kollagen getur
gert fyrir líkamann. Það vakti
sérstaklega áhuga minn þegar
ég las um áhrif þess á liðina. Ég
er 43 ára gömul og byrjaði að
finna fyrst fyrir liðaverkjum um
35 ára aldurinn. Aðallega hef ég
fundið fyrir liðaverkjum í tám og
fingrum. Þetta er ættgengt í fjöl-
skyldunni minni. Langamma mín
var svona, amma líka og mamma
og líka systur mömmu.
Þetta kemur þá helst
fram í fingrum og tám.
Stundum eru þær svo
slæmar að þær festast
í liðunum,“ segir
Jóhanna.
Hætt að finna fyrir
pirringi í liðum
„Þegar maður er
kominn á ákveðinn
aldur er gott að huga
að því hvað maður
getur gert til að
njóta lífsins lengur.
Hvort sem það er að
styrkja liðina, bæta
ónæmiskerfið eða
hægja á öldrun, til dæmis hrukku-
myndun. Ég byrjaði að taka inn
kollagen frá Protis fyrir ári síðan
til að fyrirbyggja frekari liða-
vandamál. Ég var farin að finna
fyrir miklum pirringi í tánum
sérstaklega.
Ég veit ekki hversu lengi ég hafði
tekið kollagenið inn, en á ákveðn-
um tímapunkti fann ég að ég var
orðin miklu betri af liðaverkj-
unum, sem versna alla jafna þegar
það tekur að kólna. Þrátt fyrir að
veturinn sé hafinn þá finn ég ekki
lengur fyrir þessum ofsapirringi í
tánum og ég er orðin mun betri í
liðunum í fingrum.“
Húðin ljómar
„Annað sem ég hef tekið eftir er að
hár og neglur vaxa ótrúlega hratt
á mér. Húðin hefur líka verið ein-
staklega góð og fín. Það er eins og
hún ljómi. Ég myndi ekki segja að
bólur hafi verið veigamikið vanda-
mál hjá mér, en ég hef varla fengið
eina einustu bólu síðan ég byrjaði
að taka inn kollagen frá Protis.
Ég hef prófað að taka kollagenið
inn í duftformi en það
hentar mér ekki þar sem
mér finnst bragðið ekki
gott. Margir blanda því út
í kaffi, en sjálf drekk ég
ekki kaffi. Það hentar
mér því mjög vel að
kollagenið frá Protis
fæst í töfluformi. Ég
get bara gleypt töfluna
og þarf ekki að finna
neitt bragð. Ég er líka
rosalega léleg í að
muna eftir að taka inn
bætiefni, því ég borða
ekki morgunmat.
Til að sporna við því
að ég gleymi að taka
inn kollagenið hef ég
dolluna á skrifborðinu mínu í
vinnunni. Þá man ég eftir að taka
það inn að minnsta kosti á virkum
dögum. Svo á ég aukaskammt
heima fyrir helgarnar.“
Íslensk framleiðsla
„Það skiptir mig máli að vita
hvaðan bætiefnin koma sem ég
bæti inn í mitt mataræði. Kollagen-
ið frá Protis er unnið úr íslenskum
hráefnum og inniheldur kollagen
úr íslensku fiskroði. Mér finnst
gott að vita til þess að framleiðslan
fari fram hér heima, enda treysti ég
íslenskri framleiðslu og vil styrkja
hana eftir fremsta megni,“ segir
Jóhanna að lokum.
Um Protis® Kollagen
Kollagen er náttúrulegt prótín og
eitt helsta byggingarefni líkamans.
Gott að vita um Protis® Kollagen:
n Ekkert gelatín eða sykur.
n Meira magn virkra efna en hjá
flestum samkeppnisaðilum.
n Engin aukaefni.
n Sýnilegur árangur á 30 dögum.
n Íslenskt hugvit og framleiðsla.
Protis® Kollagen er framleitt
úr íslensku fiskroði hjá PROTIS.
Varan er einstök blanda af bestu
innihaldsefnum sem öll styðja við
styrkingu á húð, hári og nöglum.
Kollagen úr fiski er áhrifaríkara
en kollagen úr landdýrum, þar
sem upptaka úr meltingarvegi er
betri.
Helstu innihaldsefni:
n SeaCol® er blanda af vatns-
rofnu kollageni úr íslensku fisk-
roði og vatnsrofnu þorskprótíni
úr íslenskum þorski. SeaCol®
tekur þátt í að styrkja vefi
líkamans og viðhalda teygjan-
leika.
n C-vítamín tekur þátt í myndun
kollagens í líkamanum.
n Hýalúron-sýra er eitt mest
rakagefandi efni náttúrunnar
og viðheldur meðal annars raka
húðarinnar.
n Kóensím Q10 er að finna í nær
öllum frumum líkamans. Það
er mikilvægt fyrir endurnýjun
fruma eins og húðfruma.
n B2- og B3-vítamín, sink, kopar
og bíótín fyrir hárvöxt, endur-
nýjun húðar og vöxt nagla. n
Protis® Kollagen fæst í næsta
apóteki, heilsuvöruverslun og
stórvöruverslun.
Einstaklega góð í húðinni og hún ljómar
Jóhanna Laufdal kynntist mætti kollagens fyrir um ári og hefur það hjálpað
henni mjög í baráttunni við liðaverki í höndum og tám. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
4 kynningarblað A L LT 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR