Fréttablaðið - 02.04.2022, Page 36
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2022.
Nánari upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, yrsa@hagvangur.is
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að
sinna starfinu. Um framtíðarstarf er að ræða og eru laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir lausa til umsóknar stöðu
skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar.
Skólastjóri ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og
mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í mótun skólastarfsins
og samstarfi skóla og íbúa. Skólastjóri ber ábyrgð á að starfað
sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla og
stefnumörkun sveitarfélagsins.
Leitað er eftir metnaðarfullum leiðtoga með víðtæka reynslu af
skólastarfi sem býr yfir áræðni og metnaði til að þróa skólastarfið
til enn frekari árangurs.
Helstu verkefni:
• Veita skólanum faglega forystu og leita leiða til að efla nám og kennslu
• Skipulag náms og kennslu, skólaþróun og gerð skólanámskrár
• Umsjón með þróun innra mats
• Ber ábyrgð á rekstri skólans, gerð fjárhagsáætlana og stjórn mannauðs
• Stuðlar að góðu samstarfi við önnur skólastig innan sveitarfélagsins,
foreldra og fræðsluyfirvöld
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf kennara og kennslureynsla skilyrði
• Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði uppeldis- og menntunarfræða
er skilyrði
• Reynsla af stjórnun skólamála og faglegri forystu á sviði kennslu,
nýbreytni og þróunarstarfs skilyrði
• Þekking á stefnumótun og reynsla af opinberri stjórnsýslu
• Þekking og færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun
• Þekking á sviði upplýsingatækni
• Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
• Framúrskarandi lipurð og færni í samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar
Í Grunnskóla Hornafjarðar eru um 250 nemendur
í tveimur aðskildum húsum auk frístundar fyrir
1. – 4. bekk.
Grunnskóli Hornafjarðar er framsækinn skóli
sem setur nemendur og velferð þeirra í forgang
og hefur menntun fyrir alla að leiðarljósi. Unnið
er eftir hugmyndarfræði uppeldis til ábyrgðar og
skólinn er bæði grænfánaskóli og heilsueflandi
skóli.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is