Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 40

Fréttablaðið - 02.04.2022, Side 40
Umsjón með störfunum hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Hildur Jóna Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is). Við leitum að öflugum og metnaðarfullum starfsmanni í starf sérfræðings á fjármálasviði fyrirtækisins í Reykjavík. Um er að ræða fjölbreytt starf tengt greiningum, skýrslu- og áætlanagerð, uppgjörsvinnu ásamt ýmsum öðrum verkefnum á fjármálasviði. Leitað er að talnaglöggum einstaklingi sem hefur metnað til að ná árangri í starfi. Helstu verkefni og ábyrgð: • Greiningar og upplýsingagjöf til stjórnenda. • Þarfagreining og uppbygging stjórnendaskýrslna. • Kostnaðargreining á framleiðslu. • Arðsemisgreining fjárfestingarverkefna. • Mánaðarleg uppgjörsvinna og ársreikningagerð. • Umsjón með áætlanagerð í samráði við stjórnendur. • Samstarf við stjórnendur í stefnumótandi verkefnum. Hæfniskröfur: • Háskólapróf í verkfræði, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi. • Reynsla af áætlanagerð og greiningu gagna. • Góður skilningur á rekstri fyrirtækja og framleiðslubókhaldi er kostur. • Gott vald á upplýsingatækni og viðskiptagreindartólum. • Þekking á Navision er kostur. • Góð samskiptahæfni. • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í starfi. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. Skaginn 3X og Baader á Íslandi stilla nú saman strengi sína og leita því að starfsmönnum sem vilja bætast í hóp hinnar alþjóðlegu Baader-fjölskyldu. Bæði eru fyrirtækin rekin á grunni aldargamallar reynslu við framleiðslu búnaðar, sem tryggir viðskiptavinum fyrirtækjanna sterkari stöðu við framleiðslu matvæla, á kröfuhörðustu markaði heims. Skaginn 3X þróar og framleiðir hátæknibúnað fyrir matvælaiðnað víðs vegar um heiminn með áherslu á heildstæðar lausnir til lands og sjávar. Lausnir fyrirtækisins byggja á sjálfvirkum tækjabúnaði með skilvirkni og sjálfbærni að leiðarljósi. Baader er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði vinnslulausna í matvælaiðnaði sem byggir á yfir 100 ára sögu. Við erum stolt af því að vera fjölskylduvænt fyrirtæki og góður vinnustaður þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi. Á Íslandi eru starfsstöðvar fyrirtækisins á Ísafirði, Akranesi, Reykjavík og í Kópavogi. Starfsmenn í dag eru ríflega 200 talsins. www.baader.com | www.skaginn3x.com Umsóknarfrestur er til og með 11. apríl nk. Sótt er um störfin á www.vinnvinn.is. Við leitum að sjálfstæðum og jákvæðum starfsmanni í fjölbreytt og krefjandi starf á fjármálasviði fyrirtækisins í Reykjavík. Helstu verkefni og ábyrgð: • Greiðsla innlendra og erlendra reikninga. • Skjalaumsjón og utanumhald á samningum. • Ferðabókanir starfsmanna. • Umsjón með móttöku. • Tilfallandi verkefni á fjármálasviði. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Góð þekking og færni af notkun viðskipta- og bókhaldskerfisins Navision er kostur. • Reynsla af gjaldkerastörfum kostur. • Góð almenn tölvukunnátta. • Þjónustulund, jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í starfi. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Sérfræðingur á fjármálasviði Aðstoðarmaður á fjármálasviði Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.