Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 46
kopavogur.is
Spennandi tækifæri fyrir
metnaðarfullan leiðtoga
Leikskólastjóri í leikskólanum Efstahjalla
Efstihjalli er 5 deilda leikskóli í grónu hverfi í göngufæri við Fossvogsdal, Kópavogsdal og Digraneshæð.
Leikskólinn er fjölmenningarskóli með tæplega 40% barna með annað móðurmál en íslensku. Unnið er að
allsherjar viðhaldi og endurbótum á húsnæði leikskólans sem verður lokið í maí. Útileiksvæði skólans er
nýuppgert.
Kópavogsbær er barnvænt samfélag sem er í stöðugri þróun og staða leikskólastjóra við Efstahjalla er
tækifæri fyrir áhugasaman leikskólastjóra með framsæknar hugmyndir og faglegt frumkvæði til að þróa
áfram metnaðarfullt starf með börnum og öflugum starfsmannahóp.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn
og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega
forystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við starfs-
menn, forráðamenn og menntasvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
· Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og
menntunarfræða
· Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
· Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
· Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
· Reynsla af rekstri leikskóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana er æskileg
· Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2022. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2022 eða eftir
nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð.
IðjuþjálfI
yfirmaður iðjuþjálfunar í Sóltúni
Staða iðjuþjálfa er laus til umsóknar. Iðjuþjálfi hefur yfirumsjón
með iðjuþjálfun íbúa á Sóltúni og ber ábyrgð á henni, ásamt því
að skipuleggja og veita þjálfun og meta árangur iðjuþjálfunar í
samræmi við hugmyndafræði, markmið og gæðakerfi heimili-
sins sem og rekstrar- og fjárhagsramma. Iðjuþjálfi er hluti af
stjórnendateymi Sóltúns.
Staða veitist frá 1. júní 2022 eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur Anna Birna Jensdóttir framkvæmda-
stjóri sími 5906000. Sótt er um stöðuna á www.soltun.is
ÖRYGGISVÖRÐUR
(SUMARSTARF)
SECURITY GUARD
(SUMMER POSITION)
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir
stöðu öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum
Electronic Recruitment Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking
an individual for the position of Security Guard.
Application instructions and further information
can be found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through
Electronic Recruitment Application (ERA).
Okkur vantar grafískan hönnuð
og viðskiptastjóra
Opnaðu QR-kóðann fyrir frekari upplýsingar.
Umsóknir ásamt ferilskrá berist
á umsoknir@pipar-tbwa.is fyrir miðnætti 10. apríl.