Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 49
kopavogur.is
Spennandi tækifæri fyrir
metnaðarfullan leiðtoga
Aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Efstahjalla
Efstihjalli er 5 deilda leikskóli í grónu hverfi í göngufæri við Fossvogsdal, Kópavogsdal og Digraneshæð.
Leikskólinn er fjölmenningarskóli með tæplega 40% barna af erlendum uppruna. Húsnæði leikskólans og
útileiksvæði er nýuppgert.
Kópavogsbær er barnvænt samfélag sem er í stöðugri þróun og staða aðstoðarleikskólastjóra við Efsta-
hjalla er tækifæri fyrir áhugasaman stjórnanda að þróa áfram metnaðarfullt starf með börnum og öflugum
starfsmannahóp.
Aðstoðarleikskólastjóri er staðgengill leikskólastjóra. Hann er leiðandi aðili í skipulagi faglegs starfs innan
leikskólans og tekur virkan þátt í stjórnun og umsjón starfsmannamála ásamt virku samstarfi við foreldra.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
· Framhaldsnám í stjórnun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi æskileg
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
· Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
· Góð tölvukunnátta
· Góð íslenskukunnátta og ritfærni
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2022. Ráðið verður í stöðuna frá 1. júní 2022 eða eftir
nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð.
www.vmst.is
Fyrirmyndarþjónusta Virðing Áreiðanleiki
Ert þú með
starfstækifæri
fyrir flóttafólk?
Stór hópur einstaklinga frá ýmsum þjóðríkjum með margskonar
menntun og starfsreynslu hefur komið til landsins undanfarna mánuði
sem flóttafólk og fleiri eru á leiðinni. Mikilvægt er að þau fái störf sem
fyrst þar sem reynsla þeirra fær notið sín og skapar þeim tækifæri
til að tengjast nýju búsetulandi.
Vinnumálastofnun leitar að fjölbreyttum starfstækifærum víðs vegar
um landið hjá áhugasömum fyrirtækjum og stofnunum sem geta
gegnt mikilvægu hlutverki við að skapa flóttafólki tækifæri
til virkrar þátttöku í samfélaginu.
Áhugasamir hafi samband með því að senda tölvupóst á netfangið
flottamenn@vmst.is
Vinnumálastofnun Grensásveg 9, 108 Reykjavík Sími 515 4800
— Góðir skipulagshæfileikar
— Góð færni í mannlegum samskiptum
— Jákvæð og sjálfstæð vinnubrögð
— Frumkvæði, drifkraftur og gott
þjónustuviðmót
— Góð íslensku- og enskukunnátta
— Góð færni á Word og Excel
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að slást í hóp starfsmanna
hjá RE/MAX sem hefur verið í mikilli þróun og er með sterka stöðu á
fasteignamarkaði
Við leitum að úrræðagóðum, talnaglöggum einstaklingi sem er einnig
góður í mannlegum samskiptum og kann listina að skapa traust á milli
aðila. Ef þú býrð yfir þeirri færni ásamt því að sýna nákvæm vinnubrögð
og góða eftirfylgni hvetjum við þig til að sækja um.
Um er að ræða þjónustustarf sem felur í sér móttöku viðskiptavina,
símsvörun ásamt almennu skrifstofustarfi og bakvinnslu í skjaladeild
fasteignasölunnar.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og
hvetjum við alla sem telja sig búa yfir þeirri getu og færni sem leitast er
eftir til að sækja um starfið.
Hjá RE/MAX starfar samhentur og skemmtilegur hópur fólks og
er mikið kapp lagt á að viðhalda góðum starfsanda.
Umsóknir og starfsferilskrá má senda á netfangið
starf@remax.is
METNAÐARFULLUM
EINSTAKLINGI Í FJÖLBREYTT
STARF HJÁ RE/MAX
VIÐ LEITUM AÐ